Alþýðublaðið - 04.12.1968, Blaðsíða 7
ÍÞRÓTTIR
4- desember 1968 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7
22 leikmenn valdir
til ,landsliðsleikja‘
ritstj. örn
EIÐSSON
Margt á döfinni hjá stjórn KSÍ:
Það er og verður sífelldur
höfuðverkur forystumanna íþrótt
anna, livernig afla megi fjár
til að standa undir hinum geysi-
lega kostnaði við að gera íþrótta
mennina sem bezt úr garði til
keppni. Síauknar kröfur um
hæfni íþróttamannanna í þessu
eina áhugamannalandi íþrótt-
anna baka forystunni mikið álag,
og dugir þá sá bezt, sem mesta
útsjónarsemina og klókindin hef-
ur.
Nú hefur stjórn.KSÍ ákveðíð,
að reyna all-nýstárlega fjáröflun-
arleið, til að afla fjár til að
kosta æfingar og ferðalög lands-
iiðsins í vetur. Munu á næstunni
verða prentaðir sérstakir miðar,
sem seldir verða á 100 króriur
og er sérstaklega ætlast til að
velunnarar knattspyrnunnar
styrki starfsemina rrieð því að
kaupa nokkra miða. Miðarnir
verða númeraðir, og munu gilda^
sem happdrættismiðar jafnframt,
en vinningur verður ferð til Nor
egs með landsliðinu. Má ætla að
fjárupphæð vinningsins í íslenzk
ÁRMENNINGAR!
Körfuknattleiksdeild
Aðalfundur deildarinnar verð-
ur haldinn fimmtudaginn 5.12.
kl. 21,30 í Café Höll.
Körfubolti
í kvöld
t KVÖLD, miðvikudagskvöld
kl. 20,15 verða leiknir að Há-
logalandi síðustu leikirnir í 3.
og 4. flokki. í 3. flokki leikur
Ármann gegn KR og ÍR gegn
KFR. KR er nú efst í 3. flokki
með 4 stig. í 4. flokki Ármann
gegn KFR og ÍR gegn KR. Ár-
mann er nú efst í 4. flokki með
4 stig. Ástæða er til að hvetja
fólk til að koma og sjá þessa
síðustu leiki yngstu flokkana,
en fyrri leikir þeirra hafa verið
spennandi og skemmtilegir. Ör-
ugglega eiga unglingar þessara
flokka meiri athygli skilið fyrir
áhuga sinn og vilja að iðka
íþróttir.
i iiii ll lli iiii iii ii ll lll i ■1111111111111111111111111111111111111111111
um krónum verði einhvers stað
ar milli 30 og 40 þúsund, svo
segjá má að höfðinglega sé boð
ið.
Til að vekja áhuga fólks á knatt
spyrnunni hefur KSÍ ákveðið að
á miðana verði letrað hið nýja
kjörorð knattspyrnunnar: ,.Styðj
um landsliðið”, og er ætlast til
að þetta kjörorð verð fólki hvatn
ing til að styðja við bakið á
knattspyrnunni, bæðj fjárhags-
lega og jafnframt með því að
veita landsliðinu „móralskan”
stuðning á áliorfendapöllunum.
Hinn nýí einræðisherra knatt-
sþyrriunnar, Hafsteinn Guðmunds
son hefur skýrt frá starfsáætlun
vetrarins, en hún hefst í dag
með fundi KSÍ með 22 leikmönn-
um, sem valdir hafa verið til
landsliðsæfinga. Ekki verður um
æfngar sem slíkar að ræða, en
' leiknir æfingarleikir með stuttu
millbili gegn hinum ýmsu fél-
öggum. Fyrsti æfingarleikurinn
verður n.k. sunnudag, 8. desem-
ber Fer hann fram í Keflavík,
og ieikur þá fyrsta uppstilling
liðsins gegn ÍBK, Liðið, sem leik
ur þá er þannig skipað, (en þess
verður að gæta, að vaiið er sér
staklega fyrir hvern leik):
Þorbergur Atlason
Jóhannes Atlason
Framhald á 8. síðu.
Arlegt unglingamót Tennis og badmintonfélags Reykjavíkur verð
ur haldið í íþróttahúsi Vals laugardaginn 4. desember nk. og
hefst kl. 14.00. Keppt verður í þremur aldursflokkum drengja og
stúlkna einliðaleik. Þátttaka er öllum helmil. Þáfttökutilkynning
um þarf að skila til Garðars Alfonssonar sími 41595 fyrir 12 þ.m.i'
Þórir Lárusson kjörinn
formaður SKRR
Aðalfundur Skíðaráðs Reykja
víkur var haldinn í Tjarnar-
búð uppi 31. okt. sl. Fundar
stjóri var Þórir Jónsson en
Henrik Hermannsson fundar-
ritari. Formaður minntist í
upphafi Otto Rieders skíða
þjálfara og vottuðu fundar
menn minningu hans virð-
ingu sína með því að rísa úr
sætum.
í kjörbréfanefnd voru kosn
ir Leifur Miiller, Reynir Ragn
arsson og Halldór S.gfússon.
Rétt til fundarsetu höfðu 5
fulltrúar ÍR, Ármanns, KR og
Skíðafélags Reykjavíkur, tveir
frá Val og íþróttafélagi kvenna
og einn frá Víking. Mættir
voru allir fulltrúar nema einn
frá SKFR og fulltrúar ÍK.
í fjárhagsnefnd voru kjörn
ir Stefán Hallgrímsson, Leif-
ur Gíslason og S.gurður R.
Guðjónsson.
Skýrsla fráfarandi stjórnar
lá vélrituð frammi en Þórir
Lárusson form. las hana og
skýrði. Lárus Jónsson gjald
keri las endurskoðaða reikn-
inga ráðsins.
Nokkrar umræður urðu um
væntanlega lyftu við Skíðaskál
ánn í Hveradölum og einnig
um þjálfun skíðamanna á veg
um Skíðaráðsins. Þórir Lárus
son skýrði málin og sagði það
skoðun sérstakrar nefndar
sem um málið hefði fjallað,
að nauðsynlegt væri að hraða
framkvæmdum við litla lyftu
til bráðabrigða, en jafnframt
að halda uppi athugunum
varðandi stóra lyftu sem kæmi
síðar.
Erfiðleikar höfðu verið á
samæfingum og þær síðan
fallið n ður vegna óánægju
innan raða skíðamannanna
sjálfra.
Þórir Jónsson ræddi um, að
fé til þjálfunar væri of lítið
og vinna þyrfti að því að
hækka það með auknum
styrkjum frá íþróttasjóði rík
isins.
Fjármálanefnd mælti fyrir
tveimur breytingartillögum á
fjárhagsáætlun 1) að liðurjnn
kennsla og þjálfun hækkaðj
úr kr. 7000.— í 10.000.— en á
móti kæmi lækkun 1 ðsins
þátttaka í fnótum úr 41,000,—
í 38.000. — .
Umræður urðu um þessi
mál, en tillögur nefndarinnar
voru síðan samþykktar.
Lýst var tilnefn;ngu fulltrúa
í Skíðaráðið næsta ár þannig:
Frá Ármanni Bjarni Einars-
son aðalfulltrúi. Varafulltrúi
Halldór Jónsson.
Frá ÍR Þórir Lárusson aðal
fulltrúi. Varafulltrúi Þorberg-
ur Eysteinsson.
Frá KR Hinrik Hermannsson.
Varafulltrúi Le'fur Gíslason.
Frá Val Stefán Hallgríms
son aðalfulltrúi. Varafulltrúi
Guðmundur Frímannsson.
Frá Víking Björn Ólafsson
aðalfulltrúi. Varafulltrúi
Ágúst Friðriksson.
Frá SKFR Lárus Jónsson að-
alfulltrúi. Varafulltrúi Leifur
Miiller.
Þórir Lárusson var síðan
Framhald á 8. síðu.