Alþýðublaðið - 04.12.1968, Blaðsíða 11
4- desember 1968 ALÞYÐUBLAÐIÐ -H
• — María, nornin iþín!
— Já, sagði hún rólega. Ég
er þín, ef þú vilt mig. Ég hef
sagt þér það áður. Þú hefur
keypt mig og borgað fyrir mig.
Hún beið eftir kossi, en ég
ýtti henni. frá mér. — Fari það
til fjandans, kona! Ég vil ekki,
að þú sért „keypt og borguð”.
Hún fór ekkert hjá sér. —
Ég orðaði þetta ekki rétt. Ég
er hjá þér af því, að ég vil vera
hjá þér. Viltu nú kyssa mig?
Hún hafði kysst mig áður, en
nú k y s s t i hún mig! Ég sökk
niður í gullna móðu og mig lang
aði aldrei til að koma aftur upp
á yfirborðið. Loksins varð ég að
reyna að anda og ég stundi
móður og másandi: — Nú fæ ég
mér saeti!
— Þakka þér fyrir, Sammi,
sagði hún og leyfði mér að setj*
ast.
— María, sagði ég. — Elsku
María, gerðu dálítið fyrir mig.
— Hvað er að? spurðj hún
áköf.
— Segðu mér, hvernig er hægt
að fá' að borða hér. Ég er glor
hungraður.
Hún virtist undrandi en þó
svaraði hún: — Auðvitað skal
ég sjá um það!
— Ekki veit ég, hvernig henni
tókst það. Kannski hefur hún
hnuplað einhverju úr forðabúri
Hvita hússins, en með matinn
kom hún. Brauðsneiðar og bjór.
Ég var rétt búinn að borða þriðju
sneiðina, þegar ég sagði: —
Hvað heldurðu, að fundurinn
standi lengi, María?
— A.m.k. 2 klukkutima. Hvers
vegna spyrðu?
— Þá, sagði ég og gleypti
síðasta bitann, — höfum við
tíma til að fara út, inn á skrán
ingarstofuna, gifta okkur og
koma hingað áður en Karlinn
saknar okkar.
Hún leit á mig, en svaraðx
engu. — Hvað segirðu þá?
spurði ég.
— Ég skal gera það, ef þú
vilt, en mér finnst að við ætturn
að sleppa því.
— Viltu ekki giftast mér?
— Þú liefur ekkert að gera
vig að kvænast, Sammi.
i— Svaraðu mér!
— Vertu ekki reiöur, elskan.
Þú mátt eiga mig, hvort sem
við gerum samning eða ekki.
Hvar, sem er; hvenær, sem er;
og hvernig, sem er. En þú þekk
ir mig ekki enn. Eftir að þú
hefur kynnzt mér betux’, viltu
mig áreiðanlega ekki.
— Ég er ekki vanur að skipta
um skoðun.
Hún leit fyrst upp og svo
undan. Ég roðnaði. — Það stóð
dálítið sérstaklega á þá, mót-
mælti ég. Það gæti aldrei komið
fyrir aftur næstu öldina. Það
var ekki ég, sem sagði allt þetta,
heldur var það...
Hún greip fram í fyrir mér.
— Ég veit það, Sammi og þú
þarft hvorki að sanna mér eitt
né neitt. Ég svík þig aldrei og
ég vantreysti þér ekki heldur.
Komdu eitthvað með mér um
helgina eða flyttu til mín;— Ef
ég reynist vel, hefurðu alltaf
tíma itil að gera úr mér HJið,
sem langamma kallaði „heiðvieða
konu”, þó guð einn viti, hj4rs
vegna hún gerði það. ,S
Var þetta ekki sanngja.
En svona vildi ég alls ekki
það. Hvers vegna tekur
maður, sem alltaf hefur for)
hjónabandið eins og heitan
inn, allt í einu upp á þyiiXað
þrá ekkert heitara en þaðji
Þegar fundurinn var búijm
fór Karlinn með mig í göngu-
ferð. Já, það var gönguferð,
þó að við gengjum ekki lengra
en að Baruch minnismerkinu.
Þar settist hann, handlék ptpuna
sína og yggldi sig. Það var þöjxa
eins og svo oft í Washingtorí-pS
enginn í garðinum. J3
— Við gerum gagnárás Tým
miðnætti, sagði hann. .
Seinma bætti hann við. jí—
Við ráðumst á allar þrívídcGir-
stöðvar, dagblöð og slmstoíwar
á rauða svæðinu.
— Ágætt, svaraði ég. — Htá>ð
fáum við marga menn?
Hann svaraði ekki spunjígg-
unni, heldur sagði: —■ Mér’
ekkert á það.
— Hvers vegna ekki? 'þ
— Forsetinn skipaði öllui
fara úr að ofan. Þaú skí
komust ekki til fólks á
svæðunum. Hvað gerist
Ég yppti öxlum. — Við gö»m
gagnárás.
Það eru liðnir meira en tuttugu
og fjórir tímar og livað hefur
komið fyrir af þvl, sem átti að
koma fyrir?
— Hvernig ætti ég að vita
það?
— Þú ættir að vita það, ef það
verður þá nokkru sinni maður
úr þér. Hérna ... hann rétti mér
lykil, — fljúgðu til Kansas City
og líttu í kringum þig. Forðastu
fréttastofnanir og lögregluna.
Forðastu þ á. Skoðaðu allt og
láttu þá ekki ná þér. Hann leit
á fingur sér og bætti við: —
Komdu aftur hálftíma fyrir xnið-
nætti. Farðu nú.
— Ekki er það nú langur
tími til að skoða heila borg,
sagði ég kvartandi. — Það tekur
mig þrjá klukkutlma að komast
til Kansas City.
— Rúma þrjá klukkutima,
svaraði hann. — Vertu ekki að
beina að þér athyglinni með því
að fá hraðasekt.
— Þú veizt vel, að ég er var-
kár.
— Af stað.
Og ég fór af stað. Lykillinn
var að bílnum, sem við höfðum
komið í. Ég sótti hann á umfer®>
arpallinn. Umferðin var lítil og
ég minntist á það við umsjónai’-
manninn. — Vöruflutningar
verða allir að fara fram á jörð-
inni, sagði hann. — Hernaðar-
ástandið og.. Ertu með leyfi
frá hernum?
Ég gat fengig leyfi með því
að hringja í Karlinn, en hann
er ekki beint hrifinn af því, þeg-
ar hann er ónáðaður vegna smá-
muna — Líttu á bílinn, sagði ég.
Hann tók lykilinn og setti
hann inn í vélina sina. Ég hafði
liaft á rcttu að standa. Hann
varð hlessa. — Það er naumast
sagði hann. — Forsetinn hlýtur
að elska þig heitt
Þegar ég var lagður af stað,
tók ég stefnuna til Kansas City
og stillti á hámarks leyfilegan
hraða. Svo reyndi ég að hugsa.
Mjálmarinn mjálmaði í hvert
skipti, sem ratsjárgeislar féllu
á okkur, en ég sá aldrei neinn á
skerminum. Það leit út fyrir að
bíllinn, sem Karlinn lét mig fá,
mætti ferðast þessa leið. Ég fór
að velta þvi fyrir mér, hvað hann
hefði átt við með þvi, sem hefði
átt að gerast á rauða svæðinu
— og þá skildi ég hann.
Glugga- og dyraþéttingar
Þéttum opnanlega glugga úti og svalahurðir.
Varanleg þétting — nær 100%.
Þéttum í eitt skipti fyrir öli með ,.Slottslist-
en“.
Ólafur Kr. Sigurðsson og Co.
Sími 83215 — 38835.
BIFREIÐAEIGENDUR
Tökum að okkur réttingar, ryðbætingar, rúðuísetningar o.fl.
Tímavinna eða fast verðtilboð. Opið á kvöldin og um helgar-
Reynið viðskiptin- —
RÉTTINGAVERKSTÆÐI KÓPAVOGS
Borgarholtsbraut 39, sími 41755.
Xrúin flytnr fjöll. — Við flytjum allt annað
SENPIBÍLASTÖÐIN HF.
BÍLSTJÓRARNIR AÐSTOÐA
Bifreiðaeigendur athugið
Ljósastilllilngar og allar almennjar bifreiSa-
viðgerðir.
BIFREIÐAV ERKSTÆÐI N. K. SVANE
Skeifan 2 — Sími 34362.
ÓDÝRIR SKRIFBORÐSSIÓLAR
Falleglr. þægilegir og vandaðir*
Verð aðeins kr. 2.500,00.
G. Skúlason og Hiíðberg h f-
Þóroddsstöðum
Sími 19597.
ATHUGIÐ
Geri gamlar hurðir sem nýjar, skef upp, olíuber og lakka.
Olíuber einnig nýjar hurðir og viðarklæðningar utanhúss.
Fjarlægi málningu af útihurðum og harðviðarlita þær-
GUÐMUNDUR DAVÍÐSSON.
SÍMI 36857*
HÚSGÖGN
Sófasett, stakir stólar og svefnbekkir. — Klæði gðmul hús-
gögn. — Úrval af góðu áklæði, — meðal annars pluss í mörgura
litum- — Kögur og leggingar*
BÓLSTRUN ÁSGRÍMS.
Bergstaðarstræti 2. — Stml 16807.