Alþýðublaðið - 08.12.1968, Síða 3
IÖLABLAÐ ALÞÝÐUBLAOSINS 1968 3
JOL
Nú byrja blessuð jólin
með bjartra Ijósa fjöld
og heilög sólna sólin
nú signir allt í kvöld.
Þú hátíð hátíðanna,
sem heimi boðar frið,
svo augu aumra manna
sjá opin himins hlið.
Ég kem í kirkju þína,
þú kóngur dýrðar hár,
þér gjöf að gefa mína:
af gleði runnin tár.
Ó ég, hinn smáði smái,
á smátt að færa þér
en þú hinn helgi hái,
gafst himnaríki mér.
Ég baðast birtu þinni,
þú bjarta himinrós,
sem Ieiðst, svo loks ég finni
mitt líf við dauðans ós.
Þú lýsir Ijósum geima
og lífgar sérhvert strá:
Þú einn átt alla heima
og allra sálna þrá.
Ólína Andrésdóttir
111111111 ■ 111 ■ ■ ■ ■ i ■ 11111111 ■ 111 ■ 1111111111111 ■ 111 ■ 111111111111111 ■ i ■ 11111
VÍSUR UM
VINDINN
Á jólanótt ef blæs veður,
andlát valdsmanna þá skeður.
Aðra nótt ef verður vindur,
vill gróður lítt gleðja kindur.
Þriðju nótt ef veður þylja,
þá kóngar við heiminn skilja.
Fjórðu nótt ef fram gýs andi
ferlegt hungur varð í landi.
Fimmtu nótt ef fram hljóp þytur,
fram sté margur í menntum vitur.
Sjöttu nótt ef sendist bylur,
sælu gæða jörð ei hylur.
Sjöundu nótt með gust metur
meðalár, — það var ei betur.
Áttundu nótt ef gengur gola,
gamalmenni andlát þola.
Níundu þá nótt vill blása,
nóg mun þá landfarsótt rása.
Tíundu nótt teikna stormar,
tjón á gripum ár það formar.
Elleftu nótt ef varð glaður,
undir niðri deyr fénaður.
Tólftu nótt hver tér með kvíða
takist stríð í löndum víða.
Ókunnur höf.
llllllll■lllll■lllll(l•ll■lll■■l■lr■lll■■llllllll■ll■■<l••■ll
lllllll•lllllllllll■l■llllll■l■ll■ll■■■■■l|||■■ll■l■■•(lll|l■*■■■■l■■■<