Alþýðublaðið - 08.12.1968, Qupperneq 8
8 JOLABLAÐ ALÞYÐUBLAÐSINS 1968
mmmmMmmmmmmmfmmmwtmvmHWWwvmwwwwwwwwwwMWiWiWWMWMWWiwwttwwwMHMWWWWWWVMWwwww
fe_
Gestur Gubfinnsson ræbir v/ð Brynjólf Oddsson u
Árið 1918 var tíðindaríkt ár í sögu íslands, eins og við höfum raxmar verið
minnt á oftar en einu sinni upp á síðkastið; lýst var yfir fullveldi íslenzku
þjóðarinnar, hatrömm drepsótt geis aði um mikinn hluta landsins — og
Katla gamla spjó eldi og eimyrju yfir Skaftfellinga og nágranna þeirra.
Já, það var sitt hvað að gerast árið 1918! Nú eru liðin fimmtíu ár — hálf
öld — frá þessum atburðum öllum og þess minnumst við með því að
birta hér stutt viðtal sem Gestur Guðfinnsson, blaðamaður, átti fyrir
skömmu við Brynjólf Oddsson, fyrrum bónda að Þykkvabæjarklaustri í
Álftaveri, um Kötlugosið 1918, en hann var einmitt einn af sjónarvottum
þess. Viðtalið birtist upplhaflega í FARFUGLINUM, tímariti Bandalags
íslenzkra farfugla.
Undur yfir dundu
upp úr Kötlugjá,
himín og græna grundu
grátlegt var að sjá
sautján hundruð fimmtíu
og fimm
voða meður vikur þrjár
varaði plágan grimm.
flæmdust frá jarðnæði sínu.
í t'lelni af hálfrar aldar af-
mæli gossins, fór ritstjórn Far-
fuglsjns þess á leit við Brynj-
ólf Oddsson á Þykkvabæjar-
klaustri í Álftaveri, að mega
spjalla við hann um Kötlu,
sem hann góðfúslega leyfði, en
flæddu út yfir alla bakka. Það
móaði ekki fyrir fjöllum. Hinn
óendanlegi sandur, leikvöllur
Kötluhlaupa, var regni drifinn,
svartur og Ijótur. Hvergi sást
stingandi strá, jafnvel geldinga
hnappurinn, lífseigasta og harð-
gerðasta jurt öræfanna, virtist
Útsýn af Hjörleifshöfða tíl Kötlu. — Ljósm. Páll Jónsson.
Þetta erindi er úr kvæði, sem
kveð'ð var um gos í Kötlu
1755, en gæti sjálfsagt engu
síður átt við síðasta Kötlugos
haustið 1918. Það stóð líka um
þrjár vikur eða frá 12. októ-
ber til 4. nóvember og því
fylgdu óumdeilanlega undur og
voði, jökulhlaup og öskufall,
tugir hrossa og hundruð sauð-
fjár týndust, einkum í Með-
allandi og Álftaveri, haglendi
spilltist og eyddist og ýmsir
hann var einmitt einn þeirra,
sem naumlega sluppu undan
Kötluhlaupinu 1918.
Það var stólparok og rigning,
þegar við ókum austur yfir
Mýrdalssand 8. september sl.
á leig að Þykkvabæjarklaustri,
allar flóðgáttir himinsins stóðu
opnar og vatnsgusurnar skullu.
í sífellu á bílrúðunum, vindur-
inn skók jeppann á veginum.
Árnar á sandinum ultu fram
kolmórauðar í ótal kvíslum og
eiga ónumið land á þessari víð-
áttumiklu sandeyðimörk.
Við rifjuðum upp nokkur
atriði úr sögu Kötlu á' leið-
inni yfir sandinn.
Katla er svo sem flestír vita
í Mýrdalsjökli suðaustanverð-
um í um 1000 m. hæð, grafin
undir 400 m. þykkum jökulís.
Hún hefur að líkindum gosið
oftar en nokkur önnur íslenzk
eldstöð síðan land byggðist, —
jarðfræðingar telja gos Kötlu
á sögulegum tíma orðin allt að
tuttugu talsins. Hún hefur því
gosið að meðaltali nálægt því
tvisvar sinnum á öld, en mis-
jafnlega langt hlé hefur verið
milli gosa.
Líklega er fyrstu heimild um
eldgos í Mýrdalsjökli að finna
í Landnámu. Þar stendur þessi
skemmtilega klausa og á senni-
lega við Kötlu: „Hrafn nafnar-
lykill var víkingr mikill. Hann
fór til íslands ok nam land
milli Hólmsár ok Eyjarár ok
bjó i Dynskógum. Hann vissi
fyrir eldsuppkvámu ok færði
bú sitt í Lágey. Hans sonr var
Áslákr aurgoði, er Lágeyingar
eru frá komnir.”
Mikil jökulhlaup ásamt gífur-
legum jakaburði fylgja ávallt
gosum í Kötlu og er mestur
hluti Mýrdalssands undjr vatni
í Kötluhlaupum. Reiknað hefur
verið út. að í síðasta Kötlugosi
hafi vatnsmagnið komizt upp í
100 000—200 000 rúmmetra á
sek. Kötlugosum fylgir einnig
mikið öskufall, en um hraun-
rennsli er hins vegar ekki að
ræða.
Okkur var tekið með kostum
og kynjum á Þykkvabæjar-
klaustri. Brynjólfur er fæddur
þar og uppalinn, einn níu syst-
kina, hefur búið þar allan sinn
búskap og dvelur nú í ellinni
hjá syni sínum. Hilmari Jóni og
konu hans, Brynju Bjarnadótt-
ur, sem tekið hafa við jörð-
ínni.
Þót.t Brynjólfur sé orðinn all
roskinn maður, kíominn um
sjötugt, ber liann aldurjnn vel.
Hárið er að vísu hvítt, sem að
líkum lætur, en svipurinn er
skýr og festulegur, augnaráð-
ið rólegt og íhugult. Hann er
mikill að vallarsýn, höfði hærri
en allur lýður, herðabreiður,
gildur um úlnliði og hendurn-
ar sterklegar, enda af kunnug-
um talinn afrenndur að afli.
þegar liann var upp á sitt lúð
bezta, yfirlætislaus og flaslaus
í framkomu og hreyfingum,
eins og títt er um mikla at-
gervismenn. Við fyrstu sýn
minnir hann mig á sjóhetjurn-
ar görnlu, sem ég kynntist
vestur í Breíðafjarðareyjum á
uppvaxtarárum mínum. Það
kemur reyndar á daginn, að
sjómennskan er honum heldur
ekki alveg lokuð bók, hann hef-
ur róið margar vertíðir fyrr á
árum og úr fleiri en einni veiði
stöð: í Mýrdalnum, á Miðnesi,
í Höfnum og Vestmannaeyjum,
stundaðí bæði sjó og land eins
og flestir íslendingar allt fram
á fyrstu tugi þessarar aldar.
Við víkjum fljótlega talinu
að Kötlu og hinum eftirminni-
lega degi, laugardeginum 12.
október 1918.
— Þið voruð í smalamennsku,
þegar gosið hófst?
— Já, við vorum í smala-
mennsku, vorum búnir að
smala afréttinn og erum á
heimleið, dreifðir hérna viðs
vegar langleiðina á' svæðinu
undan jökli austur að Kúða-
fljóti. Þá var almenningsrétt-
in hérna ofan við Skálmina,
til hægri handar, þegar farið
er upp veginn í Skaftártung-
una, því þá er búið í gkálma-
bæjarhraunum.
— Hvernig urðuð þið varir
við gosið?
— Ja, það var nú þannig,
að við vorum farnir að nálg-
ast hver annan, sem komum
með féð úr afréttinum, og það
eru alltaf efst í huga manna
dægurmáhn. Það var mjkið
slátrað þá í Vík og einmitt
meira en vanalega fyrir gras-
leysið eftir frostaveturinn
mjkla, en vegna þess hvað
miklu var slátrað, þá er þrotið
tunnur og salt. En ekki var
nema um sjóleiðina að ræða til'
allra aðdrátta til Víkur og eins
að flytja afurðirnar þaðan
til Revkjavíkur. Og það verður
að stoppa nokkra daga og hitt-
ist eimnitt svo á, að stoppið
verður um ’þetta leytj og fyrir
það eru ekki fleiri eða færrl
á Sandinum út og austur; ann-
ars voru alltaf ekki færri en
tveir rekstrar á Sandinum og
svo aftur þeir, sem komu frá
rekstrinum á austurleið með
afurðirnar, því að þá var flut.t
slátrið alla leið austur að
Skeiðarársandi og jafnvel aust-
ur í Öræfj.
En þegar við hittumst þarna
sunnan við Laufskálavörðu, þá
förum við ag ræða um það, að
það sé nú örugglega leiði til
Víkur (það var kallað leiði,
þegar dauður sjór var), því að
það liöfðu allir áhuga á, að
fært yrði fyrir skipið með
tunnurnar og saltið ttl Víkur,
svo að halda mætti áfram
slátrunínni.
En þá verður einhverjum að
orði. að það sé furðu mikið
hljóð, þ. e. sjávarhljóð, og
segir svo, að það sé nú æði
vestarlega. En það var þá bara
ekki annað en að þá var kom-
inn þyturinn í gosið. Hann var
við vestur og það lagði eins og
vatnsþoku yfjr jökulinn og
mvwuwvvwwwwwwwwwuwivWiuvwwwwwwwwwwMWWWwwwiwmmwuwmwwMiwiwwwwwwwwuwwv