Alþýðublaðið - 08.12.1968, Qupperneq 9
I
JOLABLAÐ ALÞYÐUBLAÐSINS 1968 9 "
mwwwwwwmHWUMMwwwwwMiwwwwwwiWwwmwmmwwwtwww
fm Kötlugosið 7978
austur allan fjallgarðinn. En
það sem við skynjuðum og var
eiginlega einkennilegast, það'
var að hundarnir, þeir voru
farnir að taka spretti og vilcíu
stökkva undan okkur og snéru
svo til baka aftur. Og það á-
gerðist þessi niður, sem við
heyrðum, og einhver segir,
svona kannski í gamni og al-
vöru: Ég held þetta sé nú bara
í henni Kötlu.
En það var ekki sinnt meira
um þetta, við héldum áfram
með okkar rekstur og vorum
farnir að nálgast það mikið,
að við sáum orðið fram undir
réttina. Og við vorum að fara
fyrir svokallaðan Hrauntanga,
sem er nokkuð langt fyrir
sunnan Iiaufskálavörðuna, ofan
við grasið, há sjáum við að það
fara emhverjir frá réttinni og
fram yfir Skálm, og rétt í því
sjáum við að menn koma á
hörkuferð utan að og yfir
Ljósavatnahálsinn og ríða
þarna austur að rétt. Og þá
eigum við ekki orðið langt efUr
að ná grasinu, en eins og geng-
ur eru orðnar latar kindur,
þegar búið er að reka lengi,
svo það voru flestir sem gengu
og teymdu hesta sína á eftir
fénu.
Og það snýr við lamb, svo
að Jón Gíslason hann verður
að snúa sér við til þess að
fara fyrir og um leið og hann
snýr sér við þá segir Jón: ,,Það
er þá hún Katla!“ Og þá skal
ég nú ekki segja nákvæmlega,
úrlega ekkert um að tala, það
fóru allir á hesta og götuna
og auðvitað, ekkert sinnt um
féð og átti að reyna að kom-
ast yfir Skálmina. Þá var ekki
Brynjólfur Oddsson
vegurinn. sem nú er þarna, en
beygt austan við grashálsinn um
Sauðhól, það er grashóll, sem.
stendur alveg rétt við veginn,
en þegar við kornum fram fyrir
hólinn, þá sjáum við bað, að
vatnið er komið austur úr
Skáiminni og stefnir fyrir aust-
an Skálmarbæ. Og þegar við
lítum við, þá kemur önnur flóð-
alda, sem er það hærri, að
hún kemur austur af hálsinum.
Það kom svona í bylgjum. Og
hann var þarna leitarstjórinn
Kötlugos. Myndina gerði Gunnar Hjaltason,
en það hefur ekkj verið fram
yfir hundrað metra, sem hún
átti eftir að okkur, þegar hann
snéri sér við. Þá var það flóð-
bylgja, sem kom þarna við
Hrauntangann, og það var nátt-
með okkur og ég held, að við
höfum verið einna fyrstir við
Jón, það var svona nokkuð eft-
ir því hvað menn höfðu fríska
hesta, og köiluðum svona, hvort
það væru hcldur hraunin eða
Ljósavatnahálsinn. og hann
svaraði því án hjks, að það
væru hraunin. Þá var sandeyða
og eiginlega vatnsfarvegur þar
á milli, en það var ekkert
sinnt um það, við hleyptum
hestunum austur yfir grjótið
og sandinn og svo var gras þar
við hraunbrúnina og lækur
meðfram, grasið var valllendis
bakki, kallaðir Sauðdalir. Þeg-
ar við vorum komnir upp í
grasið þeir sem fyrstir voru,
þá snérum við okkur við til að
sjá til þeirra síðustu, og þá
mátti heita, að félli saman það
vatnsfióð sem við vorum að
ríða undan fyrst og það, sem
kom að vestan. En þetta gekk
nú allt saman vel,
Brynjólfur situr andspænis
okkur við borðið í stofunni á
Þykkvabæjarklaustri. Hann
taiar hægt og skýrt, frásögnin
er blátt áfram, orðskrúðs-
laus, nákvæm og trúverðug.
Það leynir sér ekki að atburð-
irnir standa honum ennþá
I'fandi fyrir hugskotssjónum
að fimmtíu árum liðnum eins
og þeir hefðu gerzt i gær.
Öðru hverju réttir hann úr
sér í sætinu, hækkar röddina
lítið eitt, hraði frásagnarinnar
eykst, áherzlurnar þyngjast,
við skynjum ósjálfrátt alvöru
þess sem er að gerast, sjáum
hið æðisgengna kapphlaup,
þeysireið leitarmannanna und-
an flóðbylgjunni sem óðfluga
nálgast þá á sandinum, grasið
og hraunbrúnina fram undan,
og finnum til léttis meÓ sögu-
manni, þegar öllum er borgið.
Og Brynjólfur heldur á-
fram:
— Við vissum ckkert hvað
var að gerast fyrr en vjð kom-
um í hraunbrúnina, sem var
mikiu hærri, en þar var hátt
sker og stóð á bví þríhyrnu
landmælingarmerki eftir
dönsku sjólíðana og þá var þar
mikið af réttarfólki fyrir, sem
haíði ekki treyst sér yfir
Skálmina, en var farið-á undan
okkur og þá voru þeir, sem
smöiuðu hérna utast aliir
komnjr þar, það voru þeir,
sem við sáum til. Svq þá var
allur mannskapurinn heimtur
úr smalamennskunni. Og
þarna var náttúrlega staðið og
litazt um, en þá var byggð í
Skálmarbæjarhraunum í aust-
urbrúninni á hrauninu og
vestan við Kúðafljót, • og það
var haldið þangað til bæjarins. ■
Þá var hlaupið komið fram
úr Kúðafljóti og bar nú æði
bátt, því það yfirgnæfði
hraunið austanmegin, svo það
þótti eiginlega ekki vistlegt
neitt að halda til í bænum, og
það var verið að bjarga svona
því allra verðmætasta þar í
hærri kofa, sem stóð uppi á
hraunbrúninni. Svo var. haldið
þar lengra inn í hraunið í
beitarhús að nafninu til og þar
var haldið til um nóttina og
náttúrlega heimafólkið líka.
Þá var auðvitað ekkert að
Framhald á 13. síðu.
ENGAR ÞVOTTAHENDUR
Þér þurfið ekki lengur að óttast þurrt og
sprungið hörund og þrútnar þvottahendur,
því að nú er ÞEL komið í verzlanir.
ÞEL ' er íslenzkur ,,lúxusþvotfalögur“ og hefur inni að
halda „Dermal” efni, sem verridar og mýkir hendurnar,
eins og handáburður, gerir þær enn fegurri og gúmmí-
hanzkana algjörlega óþarfa.
ÞEL er fyrir allan viðkvæman þvott einnig uppþvott,
vinnur fljótt og vel og hefur góðan ilm.
Þvoið úr ÞEL og verndið hendurnar.
Allur þvottur verður ánægjulegri með ÞEL.
ÞEL
íslenzk úrvalsframleiðsla frá
FRIGG