Dagur - 12.09.1951, Page 9
Miðvikudaginn 12. sept. 1951
DAGUR
Bréí:
Samþykkt bæjarráðs
um reikning frá Afl hf
Þar sem eitt af blöðum bæjar-
ins hefur birt samþykkt bæjar-
ráðs varðandi reikninga frá Afl
h.f., fyrir raflagnir í Samkomu-
húsi bæjarins vegna stai-frækslu
hússins sem kvikmyndahúss, vil
eg taka fram eftirfarandi:
Það er alrangt, er bæjarráð lét
bóka og samþykkti, að reikning-
urinn sé fyrir lagnir AÐ sýning-
arklefa, og hefði bæjarráði átt að
vera kunnugt um, að í samningi
um leigu Samkomuhússins segir
meðal annars:
7. gr .— Leigutaka heimilast
að nota húsið méðal annars til
kvikmyndasýninga, og skal leigu
sali útbúa sýningarklefa til þess,
3x4.5 mtr. á stærð, gerðan sam-
kv. fyrirmælum reglugerðar þar
um, og með öllum nauðsynlegum
raflögnum og töflu fyrir þær,
þannig útbúinn að hægt sé að
hafa þaðan stjórn á ljósum húss-
ins, rafmagnsbúnaði sýningar-
tjalda og svo frá gengið að tengja
megi við 2 kolbogaljós,
vélar og 1 mjófilmu-sýningarvél
við raflögn.
(Eg bað fulltrúa
um afrit af þessari grein samn-
ingsins, en bæjarstjóri neitaði að
láta það af hendi. — Forstjóri
Skjaldborgarbíós sýndi hins veg-
ar þá lipurð að afrita greinina.)
Eins og sést af ofanrituðu, þá
er ekki aðeins um að ræða lagnir
að sýningarklefa eingöngu, held
ur 'allar þær lagnir, sem nota þarf
vegna kvikmyndarekstursins. Þar
að auki þurfti að leggja alveg
nýjár lagnir í svonefndan bæjar
stjórnarsal, vegna breytinga
honum vegna byggingar sýning-
arklefans.
Að endingu vil eg taka fram,
að reikningurinn var að fullu
greiddur af bæjargjaldkera, eftir
að hr. Sigurðuí- Helgason raf-
magnseftirlitsmaður • Rafveitu
Akúreyrar hafði yfirfarið verkið
og kynnt sér reikninginn og af-
hent hann til bæjarráðs athuga-
semdalaust.
Eg hef orðið þess var, að sam-
þykktin hefur verið skoðuð
meðal almennings sem tortryggni
á heiðarleik fyrirtækisins, þótt
samþykktin feli ekki í sér annað
en ókunnugleika á málefninu, og
sé fremur hvatvíslega orðuð af
svo hárri stofnun.
Að gefnu tilefni skal það tekið
fram, að aðrar lagnir Samkomu-
hússins, svo sem ljósalögn, hita-
lögn og leiksviðstöflur með til-
heyrandi búnaði, eru að öllu leyti
Afl- h.f. óviðkomandi.
Eyjólfur Þórarinsson,
rafv.ir^
Smábarnaskólinn
byrjar aftur miðvikudág-
inn 3. okt. n. k. — Börnin
mæti til viðtals þriðjudag-
inn 2. október kl. 1—3 e. h.
í skólanum, Gránufél.g. 9.
Jenna og Hreiðar
Fjólugötu 11. Sími 1829.
Tilboð óskast
í flutning skólabarna í Öngulsstaðahreppi næstkom-
andi vetur. Tilboðin sendist undirrituðum formanni !;
skólanefndar fyrir 1. október næstkomandi.
Benjamín Kristjánsson, Syðra-Laugalandi.
Maðurimi minn og faðir okkar,
RICHARD KRISTMUNDSSON, læknir,
andaðist 7. þ. m. — Útförin ákveðin síðar.
Eiísabet Jónsdóttir og börn.
Útför bróður míns,
KRISTJÁNS EGGERTSSONAR,
sem andaðist 8. þ. m., fer fram á Möðruvöllum í jlörgárdal
laugardaginn 15. sept. og hefst kl. 2 e. h,
f '‘iL'
Davið Eggcrtsson.
Gagnfræðaskóli Akureyrar
Öll þau börn, er luku prófi sl. vor frá Barnaskóla
Akureyrar og eru skólaskyld í Gagnfræðaskólanum,
eru béðin að koma til viðtals við mig — eða aðstand-
endur þeirra fyrir þeirra hönd — hið allra fyrsta, til
þess að ákveða í samráði við mig, hvort þau skuli setj-
ast í bóknáms- eða verknámsdeild skólans. Eg verð
venjulega til viðtals heima kl. 5—7 síðdegis.
Akureyri, 10. sept. 1951.
Þorsteinn M. Jónsson, skólastjóri.
Við íramleiðum nú attur
HELLU-of na
15 ára reynsla hér á landi
Kynnið ykkur verðið
H.F. OFNASMIÐJAN
Reykjavík — Sími 2287
Eg þakka ykkur öllum, er sýnduð samúð, og með nærveru
ykkar heiðruðuð útför föður míns,
FRIÐFINNS ST. JÓNSSONAR
frá Skriðu.
Páll Friðfinnsson.
fyrirliggjandi
félag Eyfirðinga
Véla- og varahlutacleild.
Höfum fyrirliggjandi:
Sláttuvélar, Herkúles, 3V2' sænskar.
Sláttuvélar, Herkúles, 4', sænskar.
Sláttuvélar, Heros, 3 x/i', tékkneskar.
Rakstrarvélar, Herkules, 30 tinda, sænskar.
Rakstrarvélar, Kuli, 36 tinda, tékkneskar.
Snúningsvélar, Vertex, gaffalvélar, tékkneskar.
Kartöfluupptökuvélar, Herkules, sænskar.
Kaftöíluílokkunarvélar (handsnúnar), sænskar.
Raðhreinsarar, „Troll“, norskir.
Hreykiplógar (litlir), norskir.
Plógar á Farmall A.
Plógar Genius Nr. 11 (við dráttarvél W-4).
Plógar Gertius Nr. 14 (þrískornir).
Diskaheríi 19BF (einfalt), við dráttarvél W-4.
Keðjur á Farmall A.
Keðjur á Farmall Cub.
Samband ísl. Samvinnufélaga
Véladeild.
Jarðarför móður okkár og tengdamóður,
frú RANNVEIGAR ÓLAFSDÓTTUR,
sem lézt 8. þ. m., fer fram frá heimili hennar, Myrká, Hörgár-
dal, miðvikudaginn 19, sept. kl. 2 e. h.
Böm og tengdabörn.
Innilega þakka ég ykkur, sem sýnduð mér vinarhug
með heimsóknum, skeytum og gjöium á sextíu ára af-
mæli mínu, 31. ágúst síðastliðinn.
. .Heill og hamingja fylgi ykkur öllum.
Þríhyrningi, 3. sept. 1951.
Vilhelmína Hansdóttir.
*$x$<$*§>$»$»$&$><$*§?§x§x§»$»§>&&§x$»§*$»$*§x$-§«s>>œx§><§x$&&<§*$<§x$><§x§>G>®®&&<§><&<§>Q
Vörumerki, sem aliir geta treyst
Smurningsolíur, benzín og brennslu-
olíur á allar vélar til lancls og sjávar.
Samvinnumenn! Verzlið við yðar eigið félag.
Það borgar sig.
Kaupfélag Eyfirðinga
Olíusöludeiid.
Saumanámsfceið
Hálfs mánaðar dagnámskeið (6 skipti). Þriggja vikna
kvöldnámskeið (6 skipti). Hefjast á næstunni. Nánari
upplýsingar í Gránu félagsgötu 11 (austari dyr sunnan),
og í síma 1689 kl. 5—7 e. h. daglega.
BERGÞÓRA EGGERTSDÓTTIR.