Dagur - 19.09.1951, Qupperneq 12
12
Bagub
Miðvikudaginn 19. sept. 1951
Kartöfluuppskeran mun óvíða ná
meðallagi í héraðinu
Sums staðar nær alger uppskerubrestur
Kolaverðið dæmi um hin „hag
kvæmu" viðskipti í Áusturvegi
Norðurlandaþjóðir kaupa kol frá
Bandaríkjunum
Kartöfluuppskera hér í hérað-
inu mun óvíða ná meðaluppskeru
að þessu sinni og sums staðar er
nær alger uppskerubrestur og
hafa margir bændur, sem lagt
hafa fé og fyrirhöfn í kartöflu-
ræktun, orðið fyrir miklu tjóni.
Á einstaka bæjum í fram-
Eyjafirði skemmdist kartöflugras
af næturfrosti þegar í júlí, enn
meira um miðjan ágúst og aftur
seint í ágúst og enn varð frost-
nótt snemma í þessum mánuði.
Ofan á þetta bætist, að tíð hafur
verið köld og óhagstæð mestan
hluta sumarsins.
Lakast í Fram-Eyjafirði.
Eftir þeim upplýsingum að
dæma, sem blaðið hefur getað afl
að sér, munu uppskeruhorfur
einna lakastar í fram-Eyjafirði.
Sums staðar á Staðarbyggð verð-
ur nær alger upþskerubrestur, en
annars staðar sæmileg uppskera.
Næturfrostin fóru mjög misjafnt
yfir eftir legu garðanna. Á ein-
staka bæ svarar naumast kostn-
aði að leggja vinnu í að taka upp.
Svipaða sögu er að segja annars
staðar úr Eyjafirði fram.
Akureyri.
uppskeruhorfur hér á Akur-
eyri munu yfirleitt heldur léleg-
ar. í görðum hér ofan við bæinn
féll gras að verulegu leyti um
miðjan ágúst og eru uppskeru-
liorfur eftir því. f görðum nær
sjónum er ástandið talsvert
belra.
Neðan við meðallag á
Svalbarðsströnd.
í hinu mikla kartöfluræktar-
héraði á Svalbarðsströnd eru
horfur heldur lélegar yfirleitt,
þótt ekki eins slæmar og fram í
Eyjafirði. Næturfrost herjuðu
þar ekki í sama mæli og víða
annars staðar, en allt um það
telja bændur þar uppskeru yfir-
leitt neðan við meðallag og sums
staðar mun minna en það.
Sömu sögu er að segja úr
Höfðahverfi, þar mun uppskera
yfirleitt vera með lélegasta móti.
Ut með Eyjafii’ði vestanverð-
um mun hvergi að ræða um
góða uppskeru, en frostin hafa
gengið misjafnt yfir eftir legu
garðanna.
Að öllu samanlögðu er auðséð
nú þegar — enda þótt uppskeru-
Gott heilsuíar
Heilsitfar í bænum er ágætt um
þessar nntndir, sagði Jóhann Þor-
kelsson .héraðslæknir í viðtali við
blaðið í gær, og ganga hér engar
farsóttir. Ekki vissi héraðslæknirinn
til [tess að neitt kíghóslatilfelli
hefði komið tipp hér, en einhver
orðrómur um siíkt helur verið á
sveimi. Til dæmis um gott ástand
að þessu leyti, sagði læknirinn, að
er hann hafði næturvakt fyrir
nokkrum dögum, hefði aldrei verið
liringt í næsturlækni ,og væri slíkt
sjaldgæft.
sé hvergi nærri lokið, — að kar-
töfluuppskeran í ár hér um slóð-
ir hefur brugðizt að verulegu
leyti og er það að sjálfsögðu áfall
fyrir bændur og aðra, sem hafa
tengt. afkomu sína þessari ræktun
að meira eða minna leyti.
Greinaflokkur
um ísland í „Vi44
Seint í ágúst hófst greinaflokk-
ur uni ísland í sænska samvinnu-
tímaritinu Vi, sem er stærsta og
útbreiddasta vikublað SvíJjjóðar
(upplag 650.000).
Greinarnar ritar Jöran Forss-
lund ritstjóri, er hér var á ferð
í sumar og dvaldi meðal annars
um tírna hér í bæ. Fyrsta grein
Forsslunds heitir „Sillen gör liv-
et spánnande“ og fjallar eins og
nafnið bendir til um síldina,
Siglufjörð, síldarleitarflug o. fl.
Greinin er prýdd mörgum mynd-
um. Forsslund segir skemmtilega
frá lífinu í Sigíufirði í júlí og frá
starfsemi Kaupfél. Siglfirðinga.
Þá lýsir hann síldai-flugi og
Siglufjarðarferð með Grumman-
flugbát Flugfél. íslands, sem hér
hefur bækistöð og þykir honum
glæfralegt að lenda flugvél í
hinum þrönga firði, en aljt fór
það vel og þakkar hann það
flugmönnunum „kapten Aðal-
björn (Kristbjarnarspn) och
second pilot Kristján" (Mikaels-
son).
„Þór“ Norðurlands-
meistari
Knattspyrnumót Norðurlands fór
fram hér í bænunt um-helgina, og
voru þátttakendur bæði knatt-
spyrnuíélögin hcr og' lvnattspyrnu-
félag’ Sighd jarðar. Knattspyrnufé-
lagið Þór hér ,í bæ sigraði, hlaut 4
stig, K. A. hlaut 2 stig en K. S.
ekkert stig.
Tregur fiskafli
við Eyjaf jörð
Nokkrir bátar í’ótf til- liskjar frá
Dalvtk, Hrísey og l.itla-Árskógs-
sandi og fleiri verstöðvum við Eyja-
fjöíð. en afli ér trégur. Gæftir hafa
verið ntjög slopular. nú síðari hluta
sumars. Aflinn er lagður ttpp í
hraðl'rystihús í Dalvík og Ilrísey, en
auk þess nturi eitthvað tcra saltað.
Rússar kaupa síld
af Bretum
lírezka síldarútvegsneíndin behir
nýlega gert samning’ um sölu á 44
þós. umnuni at sko/kri sumarsíld
og austurstrandarhaustsíld til Rúss-
lands og á afskiptm að vera lokið
fyrir 31 .j;m. n. k. Þá sclja ISretar
og li) þús. tuniiur til Austur-Þý/ka-
lands í skiplum fyrir áburðarteg-
uiidina Kainite. -- Bretar gera sér
vonir um meiri síldarsölu lil Rúss-
lands.
Starfsmenn KEA
á handfæri - lítill afli
Útgerðarfélag KEA bauð starfs-
miinnum kaupfélagsins í handfæra-
leiðangur á nts. Snæfelli sl. sunnu-
dag, og var farið út í mynni Eyja-
l'jarðar. Veður var allgott, en afli
tregur. Fcngust í allt um 250 fiskar
á skipið yfir dagitui. Er þetta miklu
niinni veiði en í fyrra, en starfs-
menn KEA fóru þá í slíkan Ieið-
angur á sömu slóðir.
- Landhelgismálin
(Framhald af 1. síðu).
einn skugga á framkvæmdina. 1
krafti brezk-danska sáttmálans
frá 1901 áttu brezkir togarar að
fá að veiða einni mílu nær landi
en önnur skip, þeir áttu ekki að
hlýta línu, sem dregin er fjórar
mílur frá Horni og Langanesi,
heldur máttu Jteir enn um sinn,
einir togara, sækja inn á flóa og
firði samkvæmt gömlu landhelg-
isákvæðunum. Enda þótt hin
nýja reglugerð kippti að veru-
legu leyti fótunum undan tog-
veiðum vélbáta hér fyrir Norð-
urlandi og hefði þannig beinlínis
mikil áhrif á afkomu útvegsins
hér, sættu menn sig við þetta, af
því að þeir skildu höfuðnauðsyn
baráttunnar fyrir friðun land-
grunnsins
og þeir treystu því að forrétt-
indi Breta yrðu afnumin jafn-
skjótt og samningar leyfðu.
Nú hefur þessi óviðunandi að-
staða verið framlengd og norð-
lenzkir fiskimenn og útvegsmenn
hljóta að taka málið allt til at-
hugunar á ný í ljósi þess, sem nú
hefur gerzt. Nú er ætlast til þess
að brezkir togaraeigendur sitji
einir að ágætum fiskimiðum enn
um sinn og þeir fái óáreittir að
eyðileggja árangurinn af þeirri
friðun, sem fjarvistir íslenzkra
togbáta og togara frá þessum
miðum skapar. Virðist þama
lengra gengið en góðu hófi gegn-
ir. Krafa norðlenzkra fiskimanna
og útvegsmanna mun þó ekki
verða að opna miðin aftur fyrir
öllum togurum, heldur að land-
lielgisreglugcrðin verði fram-
kvæmd eins og efni standa til án
tillits til hagsmuna brezkra tog-
araeigenda, sem fram til þessa
hafa ekki sýnt hagsmunum ís-
lenzkra fiskimanna mikla nær-
gætni.
Ofullkomin tilkynning.
Engin skýring hefur fengizt á
því, hvað rak ríkisstjórnina til
Jjessa undanhalds í landhelgis-
málinu. Þrátt fyrir háværar um-
ræður í Bretlandi í heilt ár, hef-
ur ríkt alger þögn í stjórnarráð-
inu í Reykjavík. Tilkynningin á
dögunum gaf enga viðunandi
skýringu. Hún var svo ófullkom-
in og sagnafá, að furðu gegnir
þegar um er að ræða stórfellt
hagsmunamál, sem varðar alla
landsmenn.
Meðan ekki birtist önnur skýr-
ing á hinni nýju afstöðu ríkis-
stjórnarinnar, hlýtur hún að sæta
harðri gagrtrýni.
Hin stórkostlega verðhækkun,
sem orðið hefur á kolum hér nú
upp á síðkastið á rót sina að rekja
til þess ,að pólska stjórnin hefur
ákveðið verðhækkun á útflutn-
ingsverði pólskra kola, er nemur
66% síðan samið var um kola-
kaup frá Póllandi í fyrra.
Þegar Pólverjar hófu að hækka
kolaverðið stórlega í vor er leið,
varð það m. a. til þess, að Norð-
urlandaþjóðirnar kipptu að sér
hendinni með kolakaup frá Pól-
landi og keyptu í þess stað frá
Bandaríkjunum, þar sem kolin
eru nú miklu ódýrari í innkaupi
en í Póllandi.
Þrátt fyrir hinn mikla fragt-
mismun reyndust amerísk kol
mun ódýrari en pólsk komin á
land í Danmörk, enda munu
stór skip hafa verið notuð til
flutninganna og losun farið
fram á ódýrasta hátt, með
kolahegrum.
Hvers vegna keyptu íslendingar
ekki frá USA?
Aðstaða íslendinga til að kaupa
kol frá USA er mun lakari en
Norðurlandaþjóðanna. Er ekki
hægt að nota eins stór skip og
sæta eins lágum frögtum, og að-
staða til losunar hér er miklu
lakari en í hafnarborgum erlend-
is. Samt er líklegt að amerísk kol
hefðu orðið eitthvað ódýrari hér
en pólsk, en þá er þess aá gæta
að pólsku kolin eru keypt fyrir
íslenzkar framleiðsluvörur í
vöruskiptum, en amerísk kol
kosta frjálsa dollara. Auk þess
vilja íslenzk stjórnarvöld í
lengstu lög reysta að halda í hin
„hagkvæmu“ viðskipti í Austur-
vegi, sem kommúnistar hafa
mest dásamað.
Afstaða kommúnista.
Það er augljóst, að það tiltæki
Pólverja að hækka kolaverðið
upp úr öllu valdi, án þess að
bæta það á nokkurn hátt með
verðhækkun á þeim vörum, er
þeir fá frá okkur, er gangster-
mennska í viðskiptum, því að
Pólverjar láta miklu miima magn
af kolum fyrir fiskinn sem þeir
fá og aðrar afurðir, en íáðgert
var er samið var við þá.
Kommúnistar hér heima liafa
„sjaldan sýnt betur innræti sitt
en í sambandi við þetta kola-
mál, því að í stað þess að segja
þann sannleika, að kommún-
istastjórnin pólska hafi svikið
samninga, saka þeir íslenzku
ríkisstjórnina um „kolaokur“.
Kolaverðið hér og í Rvík.
Kommúnistar hér hafa gert
mikið veður út af þeim verðmis-
mun, sem er á kolum hér og í
Reykjavík og vilja kenna hann
kolasölunum! Allir, sem þessum
málum eru kunnugir vita, að mis
munurinn byggist á því, að syðra
er landað úr kolaskipum með
kolakrana, en hér í skúffum, sem
sturtað úr á bíla. Hér er enginn
kolakrani til. Auk þess sem kola-
kraninn sparar stórfé í losunar-
gjöldum, styttir hann mjög los-
unartíma skipanna og veldur
þannig lægri fragt. Þessa ein-
földu hluti þykjast kommúnistar
hér ekki skilja.
Ilin „hagkvæmu“ viðskipti.
Kommúnistar hafa ekki um
annað meira skrafað en hin „hag-
kvæmu“ viðskipti, sem íslend-
ingar geti haft við einræðisríkin
í austri, en ríkisstjórnin af fjand-
skap sínurn hafi útilokað. Al-
menningur hefur nú kynnzt
þessum „hagkvæmu“ viðskiptum
að nokkru. Kolaverðið er komið
upp úr öllu valdi og nýlega hefur
ungverskt hveiti, sem keypt var
til landsins ,hækkað verð á öll-
um brauðum og er þó mun lé-
legri vara en það hveiti, sem
fram til þessa hefur aðallega ver-
ið flutt til landsins.
Ðrengir við heyvinnu
Margir kaupstaðadrengir hafa hjálpað til í sveitunum í sumar. —
Unglingariíir stjórna víða vélum og þykja ekki síðri við það en
fullorðna fólki'ð. — Myndina tók fréttamaður ECA síðastl. sumar.