Dagur - 22.12.1965, Blaðsíða 10

Dagur - 22.12.1965, Blaðsíða 10
10 JÓLABLAÐ DAGS bræðranna rökuðu gærur, því þá voru þær allar rakaðar og notað skinnið til skógerðar, en bræðurnir sem báðir voru mildir smiðir, gripu á þeim verkum og nokkur kvöld fóru í að höggva upp mylnusteinana, því vindmylna var á bænum, enda á þeim árum mikið um kornmölun, bæði í vind- og vatnsmyln- um. Eftir skamma dvöl, riðu foréldrar mínir heim, en ég varð eftir af fúsum vilja, fullur áhuga á að sjá og reyna sem flest, og svo átti ég að stunda bók- legt nám hjá Vilborgu, þegar vetraði Og meðal apnars átti ég að byrja á dönskujiámi.! | . Sbm að þkum lætur, er nú farið að ■ fyrnasti yfir ýmsa ,atburði frá þessum æskuárum og verunni í Ærlækjarseli, i pn þó.er enp ýmislegt í fersku minni, i baeði atburða og kynna við fólk á heim- i ilinu, nágrannabæjum, og . gestkom- endum. Að líkindum hafa göngur verið seinna á ferð í Axarfirðinum en í inn- sveitum S.-Þingeyjarsýslu, því að skömmu eftir að norður kom, fékk ég að fara á Hvirfilvallarétt uppi í Axar- firði. Þótti mér nafn réttarinnar skrítið og einnig bæjarnafnið Smjörhóll, en á réttinni vakti Óli á Smjörhóli athygli mína með einhverju. Þá man ég eftir Ærlækjarbræðrum Jóni og Einari, sem á x'éttinni voru. Eitt sinn ekki alllöngu síðar, fóru móðurbræður mínir að hyggja að kind- um er þeir áttu í hólma vestur í Jökulsá og að sjálfsögðu hlaut ég að fara með, annað tjóaði ekki. Fóru þeir bi'æður báðir ásamt vinnumanni Birni Halldórs- syni að nafni, stórum og þi-ekmiklum manni og vorum við að sjálfsögðu allir ríðandi. Þarna var áin nokkuð bi'eið og hólminn talsvert langt frá austur- landinu. Ekki var áin djúp né sti'öng þai-na, en auðvitað koi'guð, svo að ekki sá til botns og dýpið á miðjar síður þar sem mest vai*. Riðum við aiú allir út í ána og dálítiðidreift, nema hvað Bjössi Halldóik reið viðihlið mína til öi'ýggis, því ekki var rriéi' treýst um of 'til elns eða neinsju-ien í ábyrgðí tnikil • 'þeiftta bx-æðra ef út af bæi'i. Á að gizka í miðri kvf?l, yeii gg ekki .fyri'i til en að til mín er þrifið allsterklega og mér kippt úr söðlinum. Er þar Björn að verki, sem stokkið hafði af baki í klof- djúpu vatni til þessara vei'ka. Vissi ég ekki hvei'ju þetta sætti og lá við að mislíka alvarlega við Björn en þá sagði hann mér, að hesturinn minn hefði ver- ið í sandbleytu og að þetta hefði verið nauðsynlegt til varúðar. Ekkei't vissi ég hvað sandbleyta var og hafði engra óþæginda orðið var af hennar völdum þó vei'a kunni að hesturinn hafi eitt- hvað hnykkt sér til og ég þá talið eðli- legar hreyfingar svona úti í miðri Jökulsá. Reyndi ég svo að trúa því að hér hefði einhver alvara verið á ferð- um, því um góþvildina og umhyggju- semina í minn garð, var ekki að efast. Lánaðist svo fei'ðin að öllu hið bezta. Eitt sinn fékk ég svo að fara til kii'kju að Skinnastað, en þar var þá prestur Þorleifur Jónsson (Skinnastaða-Leifi) sá er kenndi Fi'iðriki Danakonungi ís- lenzkuna. Sú ferð varð mér eftii'minni- leg og er enn sakir lærdóms er ég i hlaut í þeirri ferð, ekki samt í andleg- um skilningi, enda Þorleifur ekki öðr- i um líklegri til þess háttar áhrifa. Kynnt . ist ég honum allmikið síðar og þótti raunar nokkuð til hans koma, þegar . bötri hlið hans vissi út. Að lokinni messu, sem ég man nú ekkert hvei'nig fram fór, nema hvað mér fannst hún standa óþarflega lengi, var kirkjugestum boðið til di-ykkju í stofu inni, eins og yfirleitt mun siður við sveitakii’kjur. Með því að farið var nokkuð að líða á dag, var ég víst orð- inn í þörf fyrir næringu, eins og títt er um unglinga, að minnsta kosti þegar lengist milli máltíða, svo að ég leit hýrum augum til velbúins boi'ðs, ásamt

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.