Dagur - 22.12.1965, Blaðsíða 21

Dagur - 22.12.1965, Blaðsíða 21
JÓLABLAÐ DAGS 21 Svínavatn. Gamli bærinn að falli kominn. (Ljósm.: Á. S.) hún áður verið á Auðkúlu, en hún var ekkja síra Hannesar Sigurðssun- ar, sem sat á Auðkúlu við miðja ('ilcl- ina. Síra Asmundur fékk aðstoðar- prest aldamótaárið, og tók hann við káílinu eftir hans dag og hélt til 1817, er hann drukknaði á Svína- vatni. \'ar það síra Jón Jónsson eldri. Þá kom annar Jón Jónsson litlu yngri og hélt einnig til dauða- dags eða um 11 ár. Var hann jafn- framt prófastur í Húnaþingi frá 1819. Síra Jón Jónsson eldri á Auð- kúlu var fósturbróðir frú Helgu á Auðkúlu. Var hann hinn mesti bú- maður og hæfileikamaður, læknir góður og smiður, söngmaður og hagmæltur. Til eru prentuð (Hól- ar 1799) erlil jóð hans eftir hinn síð asta Hólabiskup, herra Sigurð Stef- ánsson. Þjóðsögur eru af síra Jóni eldra, eins og síra Sigurði forvera hans og áður gat. Þannig hefur oft farið um látna hæfileikamenn er brátt verður um, að þjóðsagan held ur jarðlífi þeiffa áfram. Kona síra Jóns var Ingibjörg dóttir síra Odds í Miklabæ. Eitt barna þeirra settist að í Svínadal, Sigurbjörg, er átti Þorstein Helgasön á Grund. Er hún þriðja prestdóttirin á Auð- kúlu, er giftist Grundarbónda. Síra Jón Jónsson yngri kom að brauðinu þegar er nafni hans var allur og þótti ganga hart fram í að ná jörðinni og koma ekkjunni burt. Síra Jón var son Jóns biskups Teitssonar og Margrétar Finnsdótt- ur biskups Jónssonar. Hannes, síð- ar biskup, fóstraði Jón frænda sinn, en er próðir hans varð ekkja á IIól- um og settist að búi í Neðra-Ási, fór Jón til hennar. Bjó hann þar til aldamóta. Síra Jóri prófastur á Auðkúlu var andríkur gáfumaður og skáld, Jrótt lítt flíkaði því. En myrkfælni mun hafa sótt nokkuð að honum og Jrví Auðkúlufólki. Börn síra Jóns og konu hans, Jór- unriar Þorsteinsdóttru lfá Neðra- Ási, voru mörg, elztur síra Jón á Barði. Af Jreim settust að í heima- högum Sigríður, sem giftist Davíð Jóhannessyni í Litla-Dal, og Jór- unn, sem átti fyrr síra Jóhann Páls- son á Auðkúlu og eftir liann ráðs- mann sinn, Jóhannes Ögmundsson, og bjuggu þau að Gafli í Svínadal. Þrír næstu prestar á Auðkúlu sátu Jrar allir aðeins skamrna hríð, og raunar enginn lengi á árabilinu 1803—1856. Þótti þetta óvenjulegt og eru um Jrað þjóðsögur. Þessa aldarhelft getur alls 9 Kúlupresta, og bregður nú við frá því er feðgar og frændur sátu áður 50—83 ár á hinu búsældarlega hefðarbóli. Svo rík var hefðin or.ðin,, að ekkj var talið einleikið um Jónana, §em þó héldust í embættinu hinn eldrf 14 ár, en hinn yngri 11 ár. — Síra Þor- lákur B. Thorgrímssen lifði aðeins á Jrriðja ár á Auðkúlu. Síra Jóhann Pálsson, sem átti Jórunni dóttur síra Jóns yngra, dó eftir 7 ára prest- skap. Síra Einar Guðbrandsson frá Brjánslæk, sem kom gamlaður að Kúlu efir langa embættisveru á Hjaltabakka lézt á öðru árinu eftir að hann fluttist uppeftir. Allt voru þetta miklir hæfileikamenn, ekki sízt síra F.inar, enda gafst honum kostur á að sýna það hinum fremur, þar sem hann var prestur alls nær 30 ár. Eftir síra Einar kom annar roskinn prestur að Auðkúlu, ári eldri en hann. Þetta var síra Sigurð- ur Sigurðsson og var frá Skipalóni við Eyjafjörð. Rósa kona hans var sonardóttir síra Jóns Ketilssonar á Myrká, alinn upp í Myrkárdal. Áttu þau hjón erfitt lengi og voru á hrakningi, en þunglyndi Jrjáði síra Sigurð mjög framan af. Fékk hann Bægisá, er síra Jón Þorláks- son féll frá og hélt í 10 ár, 1820— 1830. Son þeirra hjóna var Sigurð- ur bóndi í Þverbrckku í Qxnadal, og síðar Silfrastöðum, en sagnir eru um þá feðga frá veru Jreirra nyrðra. Átti Sigurður. bóndi að hafa klárað vcikburða smala sinn, eri faðir hans jarðað í kyrrþey. Kannast margir við Jressa sögu, en ]>ví er hún svo mögnuð, að aldrei fengust mála- lok. , Síra Sigurður fór suður að Reynivöllum frá Bægisá og var þar 13 ár áður kæmi að Auðkúlu, og var Rósa frá Myrkárdal kona hans þá önduð. Síra Sigurður varð nær níræður. Er hann gaf upp Auðkúlu

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.