Dagur - 22.12.1965, Blaðsíða 25

Dagur - 22.12.1965, Blaðsíða 25
J Ó L A B L A Ð D A G S 25 brekkna á railli og Jækir allir kol- raórauður, beljandi flaunuir. , Auðvitað skildu allir stráx, lrtáð gerzt hafði. Jarðskjálítar eru ekki sjaldgæf fyrirbæri í landi voru, og lullorðna fóikið hafði haft af þeim reynslu og oftar en einu sinni. Jón gamli (}<>n Jóhannsson fyrr- um ráðsmaður á Tjörn, dáinn 1948) sem verið hafði að bera af af- rakshrúgu.r uppi á túni, kom nú heim þangað^sem allt heimilisfólk- ið var fyrir í einum hóp. Hann glotti allmeinlcga þegar liann kom og mun hafá séð, að sumir í hópn- um voru með nokkrum áhyggju- svip. „Kom eitthvað fyrir?“ spurði hann, ,,þið eruð eittht’að svo und- arleg.“ Síðan sagði hann, að þetta hefði nú ekki verið ntikil jarðhræring rnóts við það, sem hann myndi eftir frá sínum yngri árum. Þegar við svo fórum að litast unr og sáum að lambhúsið var lirunið og hálft fjóshlöðuþakið lá niðri í tóftinni, þá varð hanri þó að viður- kenna, að líklega hefði þetta verið þó nokkur jarðskjálfti. Þegar nti fyrstu óttaáhrifin voru liðin hjá, var farið að lmgsa til ein- hverr'a öryggisráðstafana, því búast mátti við öðrum kipp á hverri stundu, kannske sínu meiri en þeim fyrsta. Fyrst af öllu varð að forða kún- um út'úr fjósinu. Það var nýlegt hús, steypt tneð tdrfþaki og hafði ekki látið' á sjá. Kýrnar voru sýni- lega hræcldar, en hræðslan gleyntd- ist brátti í þeim ofsalega fögnuði sem grípur kýr, þegar þær eru leyst- ar út eftir langan, dimman vetur á básunum. Því næst var farið að athuga í- búðarhúsið. Það var nýbyggt og vel byggt að talið var. Það virtist við fyrstu sýn hafa staðizt raunina með ágætum og.ekkert skemmzt, þótt síðar kærni annað í ljós. Með ltálf- Sæland eftir jarðskjólftan. Fremst sézt ofninn sem hrundi yfir dívaninn. um huga gengu foreldfar nrínir inn til að líta á verksummerki inni í húsinu. Þar hafði enginn stórskaði skeð, nokkuð af brotnu leirtaui lá á eldhúsgóllinu og húsgögri færð úr stað, annað ekki. Sama var að segja úr fjárhúsunum. Þau voru líka ný- lega byggð og stóðu sig vel. Sem við nú vorum að eigra þarna í kringum húsin í ltálfgerðu ráða- leysi, sást bíll koma utan veginn frá Dalvík og lor sá geyst. Þetta var vörubíll, einn af þeim fáu, sem hér var þá til á bérnskuárum bílaalday. Akvégurinn til.! Akureyrar lralði opnazt í kring' um 1:930,- en áður höfðu þó bílar verið’á Dalvik ogj í 1 notkun hér innan .sveitar íi riiokkait j ár. uu ■ ;: ; t:;.: i■ ;< , Þessi l)íll stöðvaðist hér við heim reiðina og út úr honum stukku bíl- stjórinn og farþeginn, Haraldur Stefánsson bóndi í Ytra-Garðshorni (dáinn 1958). Við sáum strax að Harakli var mikið niðri fyrir. „Hvernig er ástandið hér?“ spurði hann, þegar hann hafði kastað á okkur kveðju. Siðan sagði hann okk ur tíðindin, og þau voru æði ískyggi leg: Allt Dalvíkurkauptún á tjá og tundri, flest luis meira og minna löskuð, fólkið í óða önn að bera tit búslóð sína, en kornabörn, sjúk- lingar og rútnlæg gamalmenni liggjandi á flatsængum hér og jtar um plássið. Sömuleiðis luunin lnis á bæjum, þar sem þeir höfðu haft tal af l’ólki. Haraldur hafði ekki langa viðdvöl. Hann átti sjálfur konu og börn heima í gömlum torf bæ og gat að sjálfsögðu búi/.t við hinu versta< þ.egar lieim kienii. • . Þessar fréttir urðú ekiki til-að auka á rósemi hugans. Ekki bættó það úr. skák, að; nú fóru að linnasti nýjar u jarðhræringar, 1 Smákiiþþiri i i voru það’ að vgsu og ihreinn ba.raiá-i leikur hjá fyrsta, stóra kippnum. F.n þeir boðuðu alltaf komu sína með þtessum Ógnvekjandi, þunga gný, sem ekki var hægt að giöggva sig á, hvaðan kom, en alltaf fylgir jarðskjálfta og stafar líklega af hreyf ingu sjálfs yfirborðs jarðarinnar. Hvernig sem því er varið, þá voru áhrifin alltaf þessi á okkur mann-

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.