Dagur - 22.12.1965, Síða 44

Dagur - 22.12.1965, Síða 44
44 Wulffs á Akureyri. Allt var loftið tjaldað innan hvítum léreftum, og var salurinn prýddur flciggum og Ijósum og þótti þá ekki óveglegri mörgum kirkjum. Þessi mikla aðsókn vakti enn íiýja áhugaöldu, svo að nú var þess beðið með óþreyju, að hinn afdni og heilsuveili prófastur safnaðist til feðra sinna. Var ])ess lteldur ekki mjög langt að bíða, því að hann andaðist fám árum seinna, 17. okt. 1859. Kirkjusmíðin liafin. Aðeins nokkrum vikum eftir lát prófasts, hinn 23. nóv. 1859, sóttu Akureyringar enn, sem sámþykki sóknarbænda, um það lil konungs, að Hrafnagilskirkja mætti leggjast niður og tekjur hennar flytjast til væntanlegrar kirkju á Akureyri. ákar þetta leyli veitt með konungs- bréfi 29. júní 1860. Nú var tekið á ný að safna lof- orðttm um framlög til kirkjubygg- ingar á Akureyri, því að gömlu gjafaloforðin frá 1848 voru flest að engu orðin. Þeir, sem þá höfðu heitið gjiifum, voru nú margir dánir en aðrir fluttir burt. Sumir voru orðnr svo gamlir og fátækir, að þeir gátu lítið af mörkum látið. Fengust því að þessu sinni ekki nema um 516 rd. En til viðbótar vð þetta kom ,,portion“ Hrafna- gilskirkju, setn í fardögum 1860 nam 876 rd., auk þess sem sjálf kirkjan var metin á 400 til 500 rd. En ekki mátti selja hana til niður- rifs fyrr en nýja kirkjan væri orðin messufær. Var því ]>etta síðasttalda fé ekki handbært að sinni. Sennilegt var talið, að kirkja næglega stór og sómasamlega búin gripum mundi kosta þrjú til fjögur þúsund ríkb’dali, og vantaði ])ví mikið fé til kirkjusmíðinnar. Hvorki fékkst styrkur né lán frá kirkjustjórninni, svo að það varð helzta úrræði bygginganefndarinn- ar, en í henni voru Eðvald Möller og Páll Th. Johnson, verzlunar- stjórar, og Jón Finsen liéraðslækn- ir, að sækja um 1000 rd. lán hjá Möðruvallaklausturskirkju, svo að hægt væri að hefja byggingu þegar í stað. Fékkst þetta lán með 3% ársvöxtum til tíu ára, þannig að greiða skyldi 100 rd. á ári. Var þá fyrir hendi, þegar reiknað var með gjafafénu og innistæðu Hrafnagils- kirkju alls 2392 ríkisdalir. Reisugildið. Þótti nú fært að hefja smíði k irkjunnar á iitmánuðum 1862, og miðaði byggingu hennar svo vel á- fram, að reisugildið var haldið 28. maí um vorið með mikilli viðhöfn. Þetta var miðvikudaginn fyrir upp- stigningardag og segir svo um þenn an atburð í Nórðanfara (I. ár., bls. 60): „Fagnaðarveifa var á hverri stöng og siglutré, fallbyssunum var skotið, svo að bergmálaði í fjöllun- um.... blómakrans festur upp á grindina, gleðiópin hljómuðu, staupin klingdu full af hinum gleðjandi og hressandi liig, sem oft- ast verður að vera annars vegar þá mikið er um dýrðir og samkoma manna á að vera sem indælust og minnilegust." En ritstjórinn bætir svo við: „F.n oss yirðist Bakkus ætti hvergi nærri að koma við slík tækifæri, fremur en erfisdrykkjur . . . ,'og aðra álvarléga atburði. Það lrefði miklú betur átt við að'fá sökn arpréstinú til að flytjá andlega ræðu óg' syngja fágran sálm.“ Af þessú virðist méga ráða, hð cnginn prestur hafi vérið nærri staddur og er það reyndar mcrki- legt, ef svo hefur verið. Yfirsmiður jTessæ'ar kiikju var Jón Stefánsson, trésmíðameistari. Kirkjan var 24 álna löng, 14 álna breið, 5% alin undir bita og hvelfing 2]/2 alin. Var það einkum gagnrýnt við bygging- una, að turninn væri yfir austur- enda og þótti sumum það ganga JÓLABLAÐ DAGS , bneyksli næst. En inngangur var að vestan, altari undir austurgafli og prédikunarstóll milli kórs og fram- kirkju eins og venja er til. Ekki kom' ofn eða söngloft í kirkjuna fyrr. cn mörgum árum seinna og mun turninn þá hafa verið færður og gerð forkirkja að vestan. Þegar komið var frarn í febrúar- mánuð 1863 voru peningar til kirkjubyggingaririnar mjög á þrot- um og horfði óvænlega um fram- hald byggingarjnnar. Þá buðust tveir menn úr byggingarnetndinni, verzlunarstjórarnir Eðvald Möller og Páll Th. Jolnrsen til að lána fé sem þyrfti til að ljúka innbyggingu l.irkjunnar, svo að hún gæti orðið messuher í fardögum, Urðu allir þessu fegnir og var þá aftur tekið til við kirkjusmíðina og unnið ó- sleitilega að henni þangað til henni var lokið. Fyrsti söngflokkurinn. Engar heimildir hef ég í hönd- um um vígslu Akureyrarkirkju, en sjá má það af dagbók Sveins Þór- arinssonar að hún hefur farið fram sunnudaginn 28. júní 1863. Svo undarlega bregður við, að þessa atburðar finnst varla getið í Norð- nnfara, eins og áhuginn virðist þó hafa verið mikill fyrir kirkjubygg ingarmálinu til ])ess tíma. Segir aðeins í smáletursgrein allra síð- ast í júlíblaðjnu, að kirkjan hafi verið , vígð af sóknarprestinum séra Daníel Halldthssyni prófasti 4 sunnudag .eftir trínitatis að við- stödduni 315 manns og venjuleg messugcvð flutt. á ef'tir. Ilins veg- ar er þess getið í ágústblaðiriu, að þegar messað hafi verið í kirkj- unn í fyrsta sinn hafi söngurinn þótt takast heldur ólaglega, og varð þetta til þess, að Bcrnhard Steincke, verzlunarstjóri, Jón Fin- sen héraðskeknir og Jóhannes Halldórsson cand. theol. tóku sig saman um að „stofna söngskóla,

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.