Dagur - 02.06.1981, Page 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
; SIGTRYGGUR & PÉTUR
1 AKUREYRI
64. árgangur
Akureyri, þriðjudagur 2. júní 1981
42. tölublað
Aðalfundur Kaupfélags Eyfirðinga:
TRAUST FJARHAGSSTAÐA EN
ERFIÐLEIKARIREKSTRINUM
% Matvöruverslunin í fyrsta sinn gerð upp með tapi
% 150 milljóna gkr. afsláttur veittur á s.l. ári frá leyfilegu
„Þrátt fyrir ýmsa erfiðleika í Valur sagði, að matvöruverslun-
rekstrinum á s.l. ári, var þó ann- in í heild væri nú í fyrsta skipti gerð
að sem gekk vel og í heild má upp með tapi, en nettótapið nam
segja að fjárhagsstaða félagsins
í árslok 1980 sé mjög traust og
sennilega með því traustasta
sem gerist meðal íslenskra fyr-
irtækja,“ sagði Valur Arnþórs-
son, kaupfélagsstjóri í skýrslu
sinni á aðalfundi KEA, sem
haldinn var á föstudag og laug-
ardag í síðustu viku.
rösklega 26 milljónum gkr, eða
0,11% af heildarveltunni. Heildar-
salan án söluskatts nam 22,5
milljörðum gkr. Valur sagði að
ástæða slæmrar afkomu matvöru-
verslunarinnar væri fyrst og fremst
sú stefna stjórnvalda, að leyfa ekki
endurmat vörubirgða, og allt of lág
álagning á landbúnaðarvörum,
sem væri stærsti liðurinn í sölu
matvara. Þá væri vaxtabyrðin mjög
erfið, sérstaklega í sérvöruverslun-
inni.
Afkoma þjónustufyrirtækja
KEA var slæm í heildina og var
nettótap á rekstrinum rösklega 111
milljónir gkr. eða 6,42%. Mest
munaði um mikinn hallarekstur á
Hótel KEA, en þar nam tapið tæp-
lega 83 milljónum gkr. eða 11,11%.
Valur sagði að þessi hallí stafaði
fyrst og fremst af miklum sam-
drætti í sölu og að fyrirsjáanlegur
Málshöfðun til
brottnáms húss-
ins Skipagata 21
Þar sem eigandi Skipagötu 21,
sem er Skipaafgreiðsla Jakobs
Karlssonar við Torfunef, hefur
ekki sinnt kröfu Akureyrarbæj-
ar um að fjarlægja húsið af lóð-
inni án bóta og ekki náðst
samningar við hann þar um, fól
bæjarráð bæjarstjóra að höfða
mál til viðurkenningar brott-
námi hússins bótalaust.
Konur með
sér framboð?
„Þetta er ekki undir mínum rifj-
um runnið, en mér list vel á
hugmyndina“ sagði Soffia
Guðmundsdóttir bæjarráðs-
maður ef haft var samband við
hana og hún spurð hvort hún
væri viðriðin það að konur yrðu
með sérframboð í bæjarstjórn-
arkosningum að ári, en sögu-
sagnir þess efnis hafa verið í
gangi að undanförnu og hefur
Soffía verið sterklega orðuð
sem „kandidat“ í 1. sætið.
„Ég held að það þurfi eitthvað
svona, en auðvitað yrði maður
að sjá stefnuskrá slíks framboðs
áður en maður segir meira“
sagði Soffía.
Passíukórinn
með tónleika
fimmtudaginn 4. júní mun
Passíukórinn flytja Carmina
Burana eftir Carl Orff á
tónleikum í íþróttaskemmunni
á Akureyri og hefjast þeir kl.
20.30. Einsöngvarar með kórn-
um verða að þessu sinni Katrín
Sigurðardóttir sópran og
Michael Clarke bariton.
Píanóleikarar verða Paula
Parker og Bjami Jónatanssom
Slagverksleikarar verða 8 og fær
kórinn fjóra þeirra frá Reykja-
vík. Þetta verða 3. tónleikar
Passíukórsins á þessu starfsári
kórfélagar eru 35, stjórnandi
kórsins er Roar Kvam.
hámarksverði
væri mikill samdráttur í mannafla,
ef ekki yrði söluaukning.
Hjá sjávarútvegsfyrirtækjum
KEA varð hagnaður sem nam
rösklega 166 milljónum, eða 2,54%
af heildarveltu. Mest munaði þar
um mjög góða útkomu fiskverkun-
arinnar 1 Hrísey, þrátt fyrir tap í
frystingunni. Sagði Valur Arnþórs-
son að afkoma fiskverkunarinnar í
Hrísey væri líklega með því besta
sem þekktist á landinu, en
nettóhagnaðurinn nam 154
milljónum gkr. eða 5,8%.
Hjá iðnfyrirtækjum varð
nettóhagnaður að upphæð 17,6
milljónir gkr. eða 0,41% af veltu.
Þar af nam hagnaður af kjötiðnað-
arstöð 36 milljónum eða 1,40% og
af smjörlíkisgerð tæplega 12
milljónum gkr. eða 2,44%.
í heildina sýnir reksturs-
reikningur ársins 1980 hagnað að
upphæð rösklega 47 milljónir gkr.
en heildarvelta félagsins í aðal-
rekstri var 50,8 milljarðar, að
viðbættum afurðareikningum, og
hafði aukist um 47,3% frá fyrra ári.
Heildarvelta félagsins og sam-
starfsfyrirtækjanna nam 65,6
milljörðum og hafði aukist um
57,2% frá.fyrra ári.
Fjármunamyndun í rekstri
félagsins á árinu varð alls 1.367
milljónir gkr., en auk þess voru
tekjur utan reglulegrar starfsemi
rösklega 450 milljónir gkr., aðal-
lega jöfnunarhlutabréf, og færðust
þær beint á höfuðstól.
Það kom frarn í ræðu Vals Arn-
þórssonar, að ekki væri grund-
völlur fyrir endurgreiðslu tekjuaf-
gangs til félagsmanna að þessu
sinni, þar sem rekstursafkoma
verslunarinnar gæfi ekki svigrúm
til þess. Hins vegar mætti geta þess,
að félagið hefði á síðasta ári lækk-
að vöruverð frá leyfilegu hámarks-
verði um 150 milljónir gkr., sem
mætti teljast myndarlegur fyrir-
fram greiddur tekjuafgangur.
Mjög vel var mætt á fundinum,
en þar áttu sæti 244 fulltrúar 7.305
félagsmanna í KEA, sem á síðasta
ári starfaði í átta byggðarlögum, en
það níunda sem er Hjalteyri, hef-
ur nú bæst í þann hóp.
Sjá nánar í opnu
Léleg þjónusta
Þessi ungi sveinn horfði tortrygginn á Ijósmyndarann þegar hann brá upp mynd
inni, en langaði þó greinilega til að handleika þessi nýstárlegu tæki. Mynd: áþ.
Hafa Flugleiðir ekki yfir nægum
flugvélakosti að ráða? Þessi
spurning brann á vörum margra
sem áttu leið til eða frá Akureyri
s.l. miðvikudag. Vegna þoku var
flugvöilurinn á Akureyri ófær
fram að hádegi, en þrátt fyrir að
hann opnaðist um það leyti, kom
fyrsta Flugleiðavélin til Akur-
eyrar um kl. 18.
Klukkan 12.15 fór flugvél frá
Flugfélagi Norðurlands til Ólafs-
fjarðar og þaðan suður til Reykja-
víkur. Sama vél kom til Akureyrar
á undan Flugleiðavélinni.
Ástæðan fyrir því að Flugleiðir
sendu ekki fyrr vél norður, mun
vera sú að á þriðjudag var ekki
flogið til nokkurra staða og þegar
ekki var hægt að lenda á Akureyri
um morguninn voru ferðir dagsins
skipulagðar í samræmi við það. Að
vonum voru t.d. þeir sem þurftu að
treysta á flug Flugleiða á milli Ak-
ureyrar og Reykjavíkur lítt ánægðir
með þjónustuna s.l. miðvikudag.
Einn viðmælanda blaðsins hafði
uppi þau orð að á slíkum dögum
væri rétt að gefa farþegum kost á að
komast með leiguflugi — ef slík vél
væri til staðar. Sá hinn sámi tók
fram að ekki ætti að skipta máli þó
leiguflugvélin væri í eigu annars
fyrirtækis, en að sjálfsögðu yrði
vélin að vera nægjanlega örugg og
fargjald hóflegt.
Ekki neinn svefnfriður
vegna ágangs flugnanna
— Ibúar í Lyngholti una illa „sambýlinu“ við fiskihjallana
Sú ákvörðun Útgerðarfélags Ak-
ureyrar að staðsetja fiskihjalla
norðan Glerár rétt við íbúðargöt-
una Lyngholt hefur mætt mikilli
mótspyrnu íbúa götunnar. Segjast
þeir ekki geta búið við það ástand
lengur að ekki sé hægt að opna
glugga á húsum sínum vegna yfir-
gangs flugna frá hjöllunum, og
lyktin sem frá hjöllunum berst
smýgur allsstaðar inn og gerir
fbúunum lffið leitt.
„Hér hefur ekki verið sofið við
opinn glugga í mörg ár, ef það ger-
ist óvart, vaknar maður í fnyknum
og flugnamergðinni“ sagði einn
fbúanna f Lyngholti f samtali við
Dag.
„Það stendur ekki á okkur að
færa hjallana þegar við fáum við-
unandi pláss fyrir þá“ segir hins-
vegar Gísli Konráðsson fram-
kvæmdastjóri Útgerðafélags Ak-
ureyrar.
Bæði Byggingarnefnd og Heil-
brigðisnefnd hafa fjallað um mál-
ið og gert ákveðnar bókanir i
sambandi við það.
Sjá nánar á bls. 5
Gripió hefur verið til þess ráðs f einu
húsanna að klæða opnanlega glugga af á
þennan hátt.
AUGLÝSINGAR OG ÁSKRIFT: 24167 - RITSTJÓRN: 24166 OG 21180