Dagur - 02.06.1981, Blaðsíða 12
Akureyri, þriðjudagur 2. júni 1981
m
VATNSKASSAHOSUR
s
(O
Norðlensk samvinna um byggingaframkvæmdir:
SIGLFIRSK EININGAHUS
REIST VIÐ BORGARSÍDU
í sumar verður gert skemmti-
legt átak í byggingarfram-
kvæmdum við Borgarsíðu hér á
Akureyri. Að átakinu standa
Byggir s.f. á Akureyri með
framieiðslueiningum frá Hús-
einingum h.f. á Siglufirði, gleri
frá íspan h.f. á Akureyri, en
teikningar gerði A. Viðar
Olsen, byggingatæknifræðing-
ur. Boðin verða fimm hús til
sölu.
Hæð og ris
úr timbri
Húsin, sem hér um ræðir eru
hin nýju tvílyftu einingahús frá
Siglufirði, sem vakið hafa sem
mesta athygli meðal húsbygg-
enda undanfarið. Húsin eru reist
á fáeinum dögum, en unnt er að
taka þau í notkun í tveimur
áföngum, þar sem innrétta má
neðri hæðina fyrst, en þá efri,
síðar, ef vill. Margir hafa hrifist af
þessum nýju húsum, m.a. vegna
þess að unnt er að innrétta efri
hæðina í baðstofustíl, þar sem
halli á risi er góður. Þar má hafa
þaksperrur og skammbita sýni-
lega. Hús þessi hafa hlotið nafnið
Fjarðarhús, en verð þeirra hefur
verið sambærilegt við verð á 4ra
herbergja íbúð í Reykjavík.
Þrjú byggingar-
stig í boði
Fjarðarhúsin við Borgarsíðu
verða fimm talsins — Borgarsíða
23-31. Húsin eru 163,5 m2
(Brúttó), sérhönnuð fyrir þessar
lóðir. Grafið verður út fyrir híl-
skúr og bílastæði. Hægt verður að
velja milli 3ja byggingarstiga við
kaup á húsunum.
Fyrsta byggingarstig er þegar
húsið er fokhelt, frá gengið að
utan, — útveggja einingar
klæddar að utan, útihurðir og
gluggar frágengnir í einingum
með tvöföldu verksmiðjugleri,
Þaksperrur klæðning og bárujárn
á þak, þakrennur og tilheyrandi.
Annað byggingarstig er þá að
viðbættu efni í innveggjaeiningar
og innihurðum í bæði efri og
neðri hæð, ásamt klæðningu á
útvegg og loft efri hæðar. I út-
veggi kemur 6” einangrun en í
loft kemur 7” einangrun.
Þriðja byggingarstig bætir við
efni í innveggjaeiningar og inni-
hurðir í bæði neðri og efri hæð
ásamt klæðningu og einangrun í
loft neðri hæðar. Stigi á milli
hæða fylgir með þessu bygging-
arstigi.
Norðlensk
samvinna
Eins og minnst var hér á að
framan er hér um að ræða
myndarlegt átak í byggingarmál-
um hér norðanlands. Hér er um
að ræða samvinnu hjá Húsein-
ingum, fspan og Byggi um að
gera Byggi s.f. kleift að bjóða til
sölu fimm hús við Borgarsíðu nú
Grétar sýnir
Á laugardaginn kl. 16 opnar
Grétar Ingimarsson sýningu
á málverkum og tcikningum í
Iðnskólanum. Þetta er fyrsta
einkasýning Grétars, en áður
hefur hann sýnt á nokkrum
samsýningum.
Grétar sýnir 20 olíumálverk
og u.þ.b. 40 pastelmyndir og
nokkrar tússmyndir. Myndimar
eru flestar gerðar eftir 1977.
Sýningin verður opin á virkum
dögum frá kl. 17 til 22, en um
helgar milli kl. 15 og 22.
Sýningunni lýkur sunnudaginn
14. þ.m.
Ólafsfirðingar
gera hafbeitar-
tilraun í ósnum
í rúma viku hafa rösklega sjö
þúsund laxaseiði verið geymd í
tveimur flotbúrum í ósnum t
innanverðum Ólafsfirði. Hér er
um að ræða gönguseiði, sem
vógu hvert fyrir sig um 25
grömm þegar þeim var sleppt í
búrin. Ætlunin er að sleppa
seiðunum eftir u.þ.b. sex vikur,
en þá eiga þau að hafa náð 40 g
þyngd og vera orðin vön söltu
vatni. Miklar vonir eru bundnar
við þessa tilraun, sem er gerð í
samvinnu félags landeigenda,
Fiskifélags íslands og Ólafs-
fjarðarbæjar.
Nýr blaðamaður
•* « *
Gylfi Kristjánsson
Nýr blaðamaður hefur nú
hafið störf á ritstjórn Dags.
Hann heitir Gylfi
Kristjánsson, 32ja ára gam-
all, ættaður úr Reykjavík.
Gylfi var áður blaðamaður
á dagblaðinu Vísi í rösklega
fimm ár og þar áður annaðist
hann íþróttaskrif fyrir Morg-
unblaðið, sem lausráðinn
blaðamaður. Gylfi mun ann-
ast öll almenn störf á ritstjórn
blaðsins.
Þess má geta að með komu
Gylfa fjölgar starfsmönnum á
ritstjórn Dags um 50%.
þegar, en húsin verða tilbúin til
afhendingar í ágúst/september.
Teikningar og
upplýsingabækur
til reiðu
Sigurður Sigurðsson hjá Byggi
s.f. sagði blaðinu í viðtali nú fyrir
helgina, að allar upplýsingaryrðu
gefnar hjá fyrirtæki sínu að
Sunnuhlíð 10, sími 24719, en þar
verður einnig hægt að fá
teikningar og upplýsingabók um
einingahús. Upplýsingatími
verður daglega frá kl. 7-10 (19-22)
fram til 10. júní n.k.
Sagðist Sigurður vonast til að
þetta yrði aðeins fyrsta átakið í
miklu stærra byggingarverki, þar
sem augljóst væri að fólk kynni
að meta falleg og vönduð hús,
sem hægt væri að kaupa á við-
ráðanlegu verði.
Ósinn er um margt sérstakur og
e.t.v. mjög vel fallinn til hafbeitar.
Dr. Björn Jóhannesson og Unn-
steinn Stefánsson hafa rannsakað
vatnið síðan 1978 og nt.a. hefur
komið í ljós að fyrstu 2,5 m eru
ferskt vatn, en þar fyrir neðan er
það salt. Ferska vatnið úr ánni
flýtur einfaldlega ofan á því salta
og til sjávar og blöndun er tiltölu-
lega lítil. Hitamælingar, sem gerðar
voru í ágúst s.l. sumar sýndu að
hitinn í salta laginu var 20 stig og
helmingi minni í því ferska. í des-
ember var hitastigið athugað enn á
ný og þá var ís á vatninu. Þá var
salta vatnið á 4 m. dýpi um 10 stig. 1
apríl var slata vatnið 8 stig og ísinn
enn á vatninu. Skýringin á vatns-
hitanum er e.t.v. sú að salta vatnið
tekur betur við sólarhita og það
blandast lítið við yfirborðslagið.
Búrin eru 4 m. djúp og er talið að
seiðin geti vanist vel söltu og fersku
vatni vegna umræddrar lagskipt-
ingar í ósnurn. Könnunin beindist
m.a. að því hvort þessi seiði verði
ekki vel undir það búin að fara í
sjóinn í sumar og skili sér því vpl á
næsta og þarnæsta ári. Næsta vor
verða settar upp gildrur við ósinn
og ætlunin er að telja laxana sem
koma heim á ný. Stangveiðimenn
hugsa gott til glóðarinnar, ef laxi
verður hleypt upp í ána.
Seiðin voru fengin frá Laxamýri,
en laxinn þaðan er stórvaxinn. Það
er Sveinbjörn Árnason, Kálfsá, sem
annast fóðrun seiðanna, en Ingi-
mar Jóhannsson, fiskifræðingur
hefur átt stóran þátt í að ráðist var í
þessa tilraun.
ÍD
la
£7
r—n f 1 SÍI
gjL II i. - mU
# Þakkirtil
bæjaryfir-
valda á
Akureyri
Það er sjaldan sem menn
þakka yflrvöldum, hvaða
nafni sem þau kunna að
nefnast, en að sjálfsögðu ber
að virða það sem vel er gert.
Bæjaryfírvöld á Akureyri hafa
að undanförnu látið sá í auð-
svæði og vörubílar hafa los-
að gróðurmold á vanhirta
bletti. Ljóst er að þegar búið
er að slétta úr öllum þelm
moldarhlössum, sem sjá má
víða á Akureyri þessa dag-
ana, og þegar gras er farið að
spretta á nýjum svæðum,
verður allt annað um að litast
í bænum.
§ En betur
má gera
í miðbænum
Þrátt fyrlr að bæjaryfirvöld
geri sitt hvað til að bærinn líti
betur út geta einstaklingar
lagt sitt af mörkum Ifka og
raunar er það siðferðisleg
skylda hvers og eins. Mlðbær
Akureyrar veitir t.d. ekki af
andlftslyftingu. Það er rauna-
legt að sjá sum húsin í hjarta
bæjarins — þau Ifta út eins
og eigendur þeirra séu blá-
snauðir ölmusumenn. Fyrir
tveimur árum sfðan birti
blaðið myndir af bakhliðum
margra húsa f miðbænum og
benti á að ýmlslegt mætti
betur fara. Því miður hafa
eigendur og umráðamenn
flestra þeirra, ef ekki allra,
látið það vera að gera nokkuð
og bíða e.t.v. eftir opinberum
styrk til að snurfusa húsin.
% Lofsvert
framtak
Eins og fram kemur á þessari
síðu ætla Ólafsfirðingar að
reyna fyrir sér með hafbeit
laxa. Þetta framtak Ólafsfirð-
inganna er lofsvert og vonandi
snúa sem flestir laxanna aftur
heim. Ef tilraunin heppnast
má allt eins gera ráð fyrir að
Ólafsfirðingar geti skapað
umtalsverða atvinnu í sam-
bandi við hafbeitina og e.t.v.
hafið ræktun á fleiri sjávar-
skepnum.