Dagur - 22.06.1982, Page 11

Dagur - 22.06.1982, Page 11
Sumarstarf Svif- flugfélagsins hafið Sumarstarf Svifflugfélags Ak- ureyrar er hafið á Melgerðis- melum. Þeir sem hafa áhuga á að læra svifflug geta fengið nánari upplýsingar hjá Snæ- birni Erlendssyni (s:23443) og Jóni Magnússyni (s:25482) á kvöldin. Kennt er á tveggja sæta kennslusvifflugu og þarf nemandi að fara 30-40 flug með kennara áður en hann telst fær um að fljúga einn. Hvert kennsluflug kostar 70 krónur. Eftir námið geta menn farið að glíma við uppstreymið á eins manns svifflugum og byrjað að kanna leyndardóma svifflugsins til hlítar. Samvinna útgerðarinnar og málmiðnaðar- fyrirtækjanna Eins og kunnugt er, þarf fiski- skipafloti landsmanna á margs konar þjónustu að halda frá málmiðnaðarfyrirtækjum. Gífur- legt fé fer í að halda flotanum við og ríður því á miklu að þar sé gætt hagsýni bæði af hálfu útgerðar og smiðja. Ein forsenda slíkrar hag- syni er að þessir aðiar hafi með sér góða samvinnu, en á það hefur þótt nokkuð skorta til þessa með þeim afleiðingum, að þessi mikil- væga þjónusta hér innanlands hefur ekki verið með þeim hætti, sem útgeðarmenn og málmiðnað- arfyrirtæki hefðu óskað. l'jóðar- hagsmunir krefjast þess að á ís- landi sé öflug og góð þjónusta við fiskiskipaflota landsmanna. Undanfarin misseri hefur Iðn- þróunarverkefni Sambands málm- og skipasmiðja gengist fyrir tilteknum endurbótum í fyrirtækjum, sem fást við skipa- viðgerðir. Skráningarkerfi - allt frá verkbeiðnum og til eftir á út- reikninga - hafa verið endurnýj uð og samræmd og jafnframt unnin á grundvelli norsks flokkunarkerfis með því að bjóða í auknum mæli, föst verð í viðgerðir. Eftir því sem þessi mál komust í betra horf í smiðjunum, sáust enn betur þeir vankantar, sem oft á tíðum eru á undirbúningi viðgerða bæði af hálfu smiðjanna og ekki síður frá hendi útgerðanna. Vegna slælegs undirbúnings fer oft mun meiri tími í sjálfa viðgerðina en ástæða er til og hún því mun dýrari en ella. Bæði samtök útgerðarinnar (LÍÚ) og málmiðnaðarfyrirtækj- anna (SMS) hafa haft áhuga á að beita sér fyrir úrbótum í þessu máli og með fyrrgreindum endur- bótum í smiðjunum skapaðist loks grundvöllur til að hefja virk- ar aðgerðir. Eftir all ítarlega at- hugun af hálfu LÍÚ og SMS var ákveðið að þýða og staðfæra norskt námskeið, sem fjallar um undirbúning og framkvæmd skipaviðgerða og hefur oft verið haldið í Noregi sameiginlega fyrir þá aðila sem hafa umsjón með viðgerðum af hálfu útgerða og smiðja. Námskeið þetta tekur fjóra daga frá kl. 9 að morgni til 19 að kvöldi og er efni þess mjög viðamikið. Eftir að starfsmenn Iðnþróun- arverkefnis SMS og LÍÚ höfðu þýtt námskeiðið og staðfært í janúar sl. hefur það verið haldið tvisvar hér á landi og alls hafa sótt það 30 menn frá smiðjum, útgerð- um og tryggingarfélagi. Leiðbein- endur hafa verið Brynjar Har- aldsson tæknifræðingur (SMS) og Kristinn Halldórsson útgerðar- tæknir (LÍÚ). Af viðbrögðum þátttakenda að dæma er ljóst, að með þessu samstarfsátaki SMS og LÍÚ hefur verið brotið blað í þróun skipaviðgerða hér á landi. Með þessum hætti hefur bæði skapast sameiginlegur umræðu- grundvöllur um dagleg vandamál, sem fylgja viðhaldi skipa og svo hitt, að farið er kerfisbundið yfir alla þá þætti, sem meginmáli skipta ef viðgerð af þessu tagi á að heppnast og vera samkeppnisfær við erlenda samkeppnisaðila. Sem dæmi um innihald nám- skeiðsins skulu nefnd nokkur við- fangsefni þess: Verklýsingar, áætlanagerð, mat á verkum, mat á tilboðum, val á verkstæði, undir- búningur fyrir framkvæmd sjálfr- ar viðgerðarinnar og uppgjör. Um öll þessi atriði er fjallað ítar- lega á námskeiðinu bæði í vinnu- hópum og með fýrirlestrum. Tek- ið er raunhæft íslenskt dæmi um viðgerð og það síðan notað sem rauður þráður allt námskeiðið með tilheyrandi útreikningum og lokauppgjöri. Auk þess eru fluttir fyrirlestrar um starfsemi Siglinga- málastofnunar ríkisins og eðli og starf flokkunarfélaga. Þátttak- endur á þessu námskeiði fá einnig með sér mikið efni, sem þeir geta nýtt við dagleg störf. dief pepsi SYKURLAUST 1 1 MN VEGNA! Ertþú á réttri lítm? jdWí-Í Sfe2 -*ÖA<3ttö-<i«l

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.