Dagur - 17.08.1982, Blaðsíða 3
Grímsey
Grímsey:
Gríðarlega mikið
um ferðamenn
Frá Grímsey
„Héðan er allt gott að frétta,“
sagði Steinunn Sigurbjörns-
dóttir í samtali við Dag á dög-
unum.
„Hér hefur vinnuflokkur verið
að undirbúa hafnargerð sem áætl-
að er að ráðast í næsta sumar ef
einhverjir fjármunir verða fyrir
hendi þá.
Hér bíða allir spenntir eftir
vindmyllunni sem væntanlega
kemur í næstu viku. Það verður
gaman að sjá hvort hún dugi til að
hita upp húsin tvö sem við hana
tengjast.
Nýi Drangur hefur komið hér
einu sinni og okkur þótti hann
heldur ljótur en það er notagildið
sem mestu máli skiptir og það á
eftir að koma í ljós hvernig hann
reynist. Það var blíðskaparveður
þegar hann kom og þá stóð hann
sig ágætlega. Annars söknum við
gamla Drangs. Hann er búinn að
þjóna okkur svo vel og dyggilega
og brást okkur aldrei. Maður.
saknaði hans þegar hann fór í síð-
ustu ferðina á þriðjudaginn.
Það hafa verið ógæftir undan-
farið en þeir eru á sjó núna og það
er farið að glæðast hjá þeim
aflinn. Svo er síldin farin að sýna
sig hérna. Þeir lögðu net til prufu
um daginn og veiddu vel í beitu.
Framan af sumri var heldur kalt
í veðri hjá okkur en sólskin og
þurrt. En að undanförnu hafa
komið alveg yndislegir kaflar.
Grassprettan var léleg framan af
en er orðin sæmileg núna og menn
eru byrjaðir að heyja þeir sem
einhvern búskap hafa. Annars fer
sauðfé hér fækkandi og unga fólk-
ið nennir ekki að standa í bú-
skapnum. Því finnst betra að fá
vöruna unna upp í hendurnar.
Það hefur verið gríðarlega
mikið um ferðamenn í sumar og
hér hefur verið starfrækt matsala
og svefnpokapláss í félagsheimil-
inu. Drangur hefur komið tvisvar
í viku, stundum með stóra hópa.
Um verslunarmannahelgina
var yndislegt veður hérna og var
þá haldin fjölskylduhátíð fyrir
Kiwanysmenn upp við svokallaða
Hólatjörn, virkilega skemmtilegt
útivistarsvæði. Þar skemmtu sér
allir konunglega, ungir og gamlir
en við söknuðum þess að ekki
skyldu fleiri koma úr landi því
veðrið var stórkostlegt, sjórinn
spegilsléttur, sólskin og blíða.
Sumt tjaldaði og sumt var í poka-
plássi og svo voru dansleikir og
fólkið skemmti sér konunglega
vel.
Ég man nú ekki eftir fleiru.
Þetta hefur sem sagt allt gengið
vel hjá okkur og við kvörtum
ekki.“
Líf og fjör í höfninni í Grímsey
> » Hestamannafélagið Funi heldursína árlegu
bæjarkeppni laugardaginn 21. ágúst kl. 1.
Unglingakeppni á eftir.
Melgerðismelamót
verður haldið sunnudag
ágúst nk. og hefst kl. 10.00
22.
Keppnisgreinar:
1. Gæöingakeppni A og B flokkur.
2. 150 m skeið, opinn flokkur.
3. 250 m stökk, opinn flokkur.
4. 300 m brokk.
Skráning verður miðvikudag 18. ágúst, fimmtudag
19. ágúst, föstudag 20. ágúst frá kl. 19-21 hjá
Guðmundi Óskarssyni (Léttir) sími 21441, Smára
Helgasyni (Funi) sími 31164 og Hauk Laxdal
(Þráinn) sími 23227.
Á laugardag verður tekið á móti skráningu á Mel-
gerðismelum frá kl. 16-18.
Dagskrá mótsins:
1. Kl. 10. Undanrásir kappreiða.
2. Kl. 13. Hópreið allra viðstaddra hestaunnenda
um svæðið.
3. A-B flokks keppni gæðinga.
4. Úrslitasprettir kappreiða.
Hestamóttaka hefst föstudaginn kl. 18. Vin-
samlega hafið samband í síma 31160 (Ketill).
Nú er tilvalið tækifæri fyrir unga sem
aldna að ríða á Melgerðismela.
Léttir, Funi, Þráinn.
Hafnarstræti 88
Vorum að
taka upp vörur
Opið 4-7 • Föstudaga 1-7 Laugardaga 10-12
Kirkjugarðurinn
í Grímsey
Þar sem fyrirhugað er að slétta gamla kirkjugarð-
inn í Grímsey eru þeir sem hug hafa á að merkja
leiði aðstandenda sinna beðnir að hafa samband
sem fyrst við undirritaða.
Jórunn Magnúsdóttir, sími (96) 73118.
......
Hafið þið prófað SALAT- og
BRAUÐ barinn á BAUTANUM?,
ef ekki þá ættuð þið að reyna hann
sem fyrst. Bæði seldur sem sérrétt-
ur og með öðrum réttum.
Um helgar á kvöldin verðum við
einnig með SALAT- og BRAUÐBAR
í SMIÐJUNNI. Fylgir hann öllum
réttum, en er ekki seldur sem sér-
17. ágúst‘1982 - DAGUR - 3