Dagur - 17.08.1982, Blaðsíða 4
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
RITSTJÓRNARSlMAR: 24166 OG 24167
SlMI AUGLÝSINGADEILDAR OG AFGREIÐSLU: 24222
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARM.: HERMANN SVEINBjORNSSON
BLAÐAMENN: ÁSKELL ÞÖRISSON OG GYLFIKRISTJÁNSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRÍMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: JÓHANNES MIKAELSSON
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT H.F.
Þáttaskil í
útvarpsrekstri
Laugardagurinn 14.8. markaði þáttaskil í út-
varpsrekstri á íslandi en þann dag tók form-
lega til starfa sérstök deild Ríkisútvarpsins
með aðsetri á Akureyri, en hún á að þjóna
Norðurlandi öllu. Ráðnir hafa verið fastir
starfsmenn til þess að veita þessari starfsemi
forstöðu og einnig hefur Ríkisútvarpið fest
kaup á húsnæði á Akureyri. Er gert ráð fyrir
að í því húsnæði muni bæði útvarp og sjónvarp
fá aðstöðu.
Ingvar Gíslason, menntamálaráðherra,
flutti ræðu í sérstakri dagskrá sem útvarpað
var sl. laugardag, og sagði hann m.a.:
„Á þessari stundu er þess minnst með há-
tíðlegum hætti að náðst hefur enn einu sinni
mikilvægur áfangi á starfsferli Ríkisútvarps-
ins. Sá áfangi felst í því að upp frá þessari
stundu er hafin reglubundin útvarpsstarfsemi
á Akureyri með föstu starfsliði sem ekki ber að
sinna öðrum verkefnum en þeim sem snerta
norðlenskt útvarpsefni.
Að þessu máli hefur verið unnið markvisst
síðan 19. janúar 1981, þegar ég sem mennta-
málaráðherra skipaði 5 manna nefnd til þess
að kanna hver væri efnislegur og fjárhagsleg-
ur grundvöllur þess að Ríkisútvarpið ræki
fréttastofu með föstu starfsliði á Norðurlandi.
Fjórðungsþing Norðlendinga hafði fjallað um
þessa hugmynd og ályktaði um hana á þing-
um sínum, enda skipaði ég nefndina í sam-
ræmi við óskir Fjórðungsþings og í fullum
samráðum við framkvæmdastjóra Fjórðungs-
sambandsins, Áskel Einarsson.“
í lok ræðu sinnar sagði Ingvar: „Frá upphafi
hefur Ríkisútvarpið verið að vaxa og dafna
þrátt fyrir erfiðleika endrum og eins á löngum
starfsferli. Áfangarnir á vegferð þess eru orðn-
ir margir. í dag minnumst við þess að einum
þessara mörgu áfanga er náð. Fastri útvarps-
starfsemi á Norðurlandi. Megi gæfa og gengi
fylgja þessari starfsemi nú og ævinlega."
Andrés Björnsson, útvarpsstjóri, flutti
ávarp við þetta tækifæri og sagði í niðurlagi
þess: „Ég hef þá trú að sá þáttur fjölmiðlunar
sem nú er verið að tryggja við annað mesta
fjölmennissvæði landsins muni skila góðum
árangri og reynast heilladrjúgur öllum sem
hans njóta í framtíðinni. Fjölbreytni og al-
menningsþátttaka vex á öllum sviðum sem
Utvarpið nær til. Fyllri og sannari mynd skap-
ast af mannlífi í blíðu og stríðu, af landi og
þjóð. Nýir straumar og nýjar hugmyndir fá út-
rás og mótast. Með því er tilgangi þessara að-
gerða í útvarpsmálum náð.
Ég óska Akureyringum, Norðlendingum og
öllum útvarpsnotendum á landi hér til ham-
ingju með þennan dag og aukna þátttöku í
fjölmiðlun sem hann boðar. “
UTVARP
NORÐURLAND
Útvarp Norðurland - sérstök
deild innan Ríkisútvarpsins -
tók formlega til starfa sl. laug-
ardag. Flutt var eins og hálfs
klukkustundar löng dagskrá frá
Akureyri og um kvöldið hafði
Ingvar Gíslason, menntamála-
ráðherra, boð inni fyrir gesti að
Hótel KEA.
Fyrst um sinn verður starfsemi
útvarpsins á Akureyri, sem nær
yfir allt Norðurland, rekin í gamla
hljóðhúsinu við Norðurgötu en
útvarpið hefur keypt húsið Fjöln-
isgötu 3a þar sem nú er trésmíða-
verkstæðið Pan.
Gera þarf talsverðar breytingar
á því húsnæði svo það henti þeirri
starfsemi sem það á að hýsa í
framtíðinni og gera menn sér von-
ir um að á næsta ári verði búið að
taka allt það húsnæði í notkun.
Hér í opnunni fylgir ræða Ingvars
Gíslasonar, mennamálaráðherra,
sem hann flutti í dagskránni sl.
laugardag og einnig ávarp And-
résar Björnssonar, útvarpsstjóra,
sem hann flutti við sama tækifæri.
Þá eru í opnunni myndir sem
K.G.A. tók í hófi menntamála-
ráðherra á Hótel KEA.
IMenntamálaráðherra hélt hóf á Hótel KE A í tilefni opnunar norðurlandsdeildar Ríkisútvarpsins. Hér sést hann ásamt
konu sinni taka á móti Jónasi Jónassyni og Sigrúnu Sigurðardóttur konu hans. Myndir KGA.
Andrés Bjömsson, útvarpsstjóri:
„Nýir straumar og
nýjar hugmyndir fá
útrás og mótast“
Góðir áheyrendur
Deginum í dag er ætlað að
marka nokkur þáttaskil í þróun-
arsögu Ríkisútvarpsins, þar sem
nú er verið að skapa og tryggja að-
stöðu til útvarps frá Akureyri og
Norðurlandi í mun ríkara mæli en
verið hefur.
Frumforsenda þessarar þróun-
ar í fjölmiðlum er auðvitað bætt
og aukin tækni til dreifingar efnis,
sem mjög er umrædd. Má líklega
segja að stökkbreyting hafi orðið í
þessu efni eftir að örbylgjusam-
bandi var komið á út um land. En
margt þarf til að slíkt samband
komi að gagni. Fastri aðstöðu til
dagskrársendinga hefur verið
komið upp og útvarpið hefur nú
fest kaup á húseign hér á Akur-
eyri sem ætti að geta dugað til
dagskrárvinnslu og útsendingar
útvarps og jafnvel sjónvarps eitt-
hvað framvegis.
Þannig eru nú fyrir hendi tækni-
legar og efnislegar forsendur auk-
innar útvarpsstarfsemi og er það
gleðiefni fyrir útvarpið og hina
nýju þátttakendur norðanlands,
og mun án efa auka hlutdeild al-
mennings í útvarpsrekstri sem
mjög er nú keppt eftir.
Mjög verður tíðrætt um sam-
göngur og samskipti manna og
þjóða í milli, og ekki síst um æski-
legar framfarir í þeim efnum hér
innanlands, en bylting í tækni sem
gengur yfir er forsenda þess að
slík spor verði stigin.
Samgöngur eru annað og meira
en farvegir lofts og láðs og lagar,
með flugvélum, bílum eða
skipum. Þær eiga ekki síður við
um sendingar á tali, tónum og
myndum. Þessar nýju flutnings-
leiðir þjappa saman fólki, minnka
veröldina ef svo mætti segja.
Margt er rætt um vegakerfi
landsins, um fullkomnun þess og
endurbætur. Vafalaust verður
áður en langt líður unnt að aka
bifreiðum um landið á langt um
skemmri tíma en nú gerist og með
hagkvæmari og ódýrari hætti. En
enginn skyidi gleyma í þessum
miklu umræðum að tafarlausar og
auðveldar samgöngur af hverju
tagi sem er, eru ekki algjört eða
einhliða takmark í sjálfu sér. Þær
bera með sér möguleika til margs-
konar breytinga á lífi manna og
lífsviðhorfum en meginatriði
málsins er heldur lítið rætt. Hver
er flutningurinn, hvað er í
bílnum, hvað er á örbylgjunni?
Ég hef þá trú, að sá þáttur
fjölmiðlunar sem nú er verið að
tryggja við annað mesta fjöl-
mennissvæði landsins muni skila
góðum árangri og reynast heilla-
drjúgur öllum sem hans njóta í
framtíðinni. Fjölbreytni og al-
menningsþátttaka vex á öllum
sviðum sem útvarp nær til. Fyllri
og sannari mynd skapast af mann-
lífinu í blíðu og stríðu, af landi og
þjóð. Nýir straumar og nýjar hug-
myndir fá útrás og mótast. Með
því er tilgangi þessara aðgerða í
útvarpsmálum náð.
Ég óska Akureyringum, Norð-
lendingum og öllum útvarpsnot-
endum á landi hér til hamingju
með þennan dag og aukna þátt-
töku í fjölmiðlum sem hann
boðar.
4 - DAGUR — 17. ácjúst1982