Dagur - 17.08.1982, Blaðsíða 9
?*
Er KA fallið?
eftir tap á heimavelli
gegn ísfirðingum
Ef KA ætlar að halda sér í fyrstu
deildinni í knattspyrnu er það
greinilegt að þeir hafa ekki valið
auðveldustu leiðina.
Eftir að hafa tapað fyrir ísfirð-
ingum á laugardaginn, hljóta
leikirnir sem eftir eru við Vest-
mannaeyjar, Víking og Breiða-
blik að verða mun erfiðari. Svo
virðist sem liðið sé hálfvæng-
brotið Elmarslaust, og ekki bæt-
ir úr skák þegar útispilararnir
þurfa að fara í markið, og það á
kostnað miðjunnar.
Það er í sjálfu sér ekkert
mikið að tapa leik í fyrstu deild
en að tapa fyrir lélegu liði ísfirð-
inga á sínum eigin heimavelli,
sem að vísu er ekki mjög mikils
virði því í þessum leik hvöttu
nokkrir ölvaðir ísfirðingar sína
menn allan tímann, en ekkert
heyrðist í stuðningsmönnum
KA.
Þessum leik lauk með sigri ís-
firðinga sem skoruðu þrjú mörk
en KA aðeins tvö.
Leikurinn var aðeins fimm
mín. gamall þegar fyrsta markið
kom. Þá myndaðist nokkur
þvaga við KA-markið og sak-
leysislegur bolti kom frá Gunn-
ari Péturssyni, yfir þvöguna
framan við markið og efst í blá-
hornið, án þess að markvörður-
inn Gunnar Gíslason ætti mögu-
leika á að verja.
KA lék undan norðangolunni
í fyrri hálfleik, en þrátt fyrir
nokkrar ágætar sóknarlotur
tókst þeim ekki að skora.
Á 14. mín. björguðu ísfirð-
ingar á línu eftir langa aukc
spyrnu frá Guðjóni og mis
heppnað úthlaup markmanns
ins.
KA notaði hléið í hálfleik t: 1
að þjálfa upp nýjan markman \
þar sem þjálfarinn ákvað aö
setja Gunnar Gíslason aftur i
sína gömlu stöðu úti á vellinum.
Það varð hlutskipti Ormars Öi
lygssonar að verja markið í
síðari hálfleik og verður hann
ekki sakaður um þau mörk sen i
liðið fékk á sig í síðari hálfleik.
KA sótti nær stanslaust síðai i
hálfleikinn en þó áttu ísfirðinga
eina og eina skyndisókn sen
margar voru hættulegar.
Á 24. mín. björguðu ísfirð
ingar aftur á línu eftir mikl;
pressu KA-manna. Á 37. mín
ætlaði Eyjólfur Ágústsson ai
renna boltanum fram hjá Gunn
ari Péturssyni, en það tókst ekk
betur til en svo að boltinn fó
beint fyrir fæturna á Gunnai
sem brunaði upp að KA-mark
inu, með vörnina á hælunum, ei
hann náði góðu skoti í stöngin.
og í mark. Þannig var staðan
tvö gegn engu þar til þrjár rgín
voru til leiksloka. Þá minnkað
Eyjólfur muninn í tvö gegn einu
en á næstu mín. bættu ísfirðing
ar við þriðja markinu.
Gunnar Gíslason minnkað
muninn með hörkuskoti i
þverslá og inn rétt fyrir leikslok,
en þrátt fyrir stanslausa sókn
KA-manna tókst þeim ekki að
jafna.
Svo lér of| að einstaka orrnslur
vinnast |>ótt striðiil lapist. ()g her
hefur Ashirni tekist að vinna íslirð-
ing i harattn uni hollann. Kn ekki
dugði það til sig-
urs. I.jósniynd: K.G.A.
Fram sigraði
Þór á þröskuldi
1. deildarinnar
Úrslitakeppni fjórða flokks fór
fram á Akureyri um helgina. Þar
léku átta lið alls staðar að af
landinu, meðal þeirra voru poll-
ar úr KA. Þeir léku í úrslitunum
um sjöunda og áttunda sætið við
Stjörnuna, og'töpuðu þeim leik
með þremur mörkum gegn einu.
Um fyrsta og annað sætið léku
Fram og Valur. Fram sigraði
með einu marki gegn engu, enda
þjálfar þá landsliðsþjálfarinn
Jóhannes Atlason.
Þór vann mjög þýðingarmikinn
leik í annarri deildinni á laugar-
daginn þegar þeir lögðu Sand-
gerðinga að velli á þeirra heima-
velli. Þessi lið höfðu hlotið jafn-
mörg stig fyrir þennan leik
ásamt FH, en nú að þessari um-
ferð lokinni eru Þórsarar í öðru
sæti deildarinnar, tveimur stig-
um á undan næstu liðum.
Það var Guðjón sem skoraði
fyrsta markið á 10. mín. og Haf-
þór bætti við öðru rétt áður en
flautað var til hálfleiks. Um
miðjan síðari hálfleik bætti Ein-
ar Árason við þriðja markinu,
en hann var þá rétt kominn inn
á.
Skömmu síðar minnkuðu
Sandgerðingar muninn í þrjú
gegn einu, en það urðu lokatölur
leiksins. Þessi leikur var nokkuð
harður og Þór mun betri aðilinn.
Með þessum sigri eru þeir
komnir með annan fótinn í
fyrstu deildina þ.e.a.s. ef þeir
fylgja þessum sigri eftir í næstu
leikjum, en þeir eiga fjóra leiki
eftir í deildinni.
Markaregn
hjá stúlkunum
Rafn
að
hætta
Fyrir leik KA og Isfirðinga færði
stjórn knattspyrnudeildar KA
dómara leiksins Rafni Hjaltalín
blómvönd, en þessi leikur var
síðasti fyrstu deildar leikur sem
Rafn dæmir hér á Akureyri, en
hann er nú kominn á aldurstak-
mörk dómara í fyrstu deild og
dæmir því sína síðustu leiki í
sumar. Rafn hefur dæmt knatt-
spyrnuleiki hér á Akureyri og
um allt land í tugi ára og eru leik-
ir hans eflaust orðnir nokkur
hundruð.
Tveir leikir í annarri deild
kvenna fóru fram um helgina.
Fyrst lék KA við Hveragerði og
unnu auðveldan sigur, sjö mörk
gegn engu. Mörk KA skoruðu
Sigrún Sævars 3, Hrefna Magg
og Vanda Sigurðardóttir 2 hvor.
Daginn eftir léku Hveragerð-
isstúlkurnar við Þór og sigraði
Þór örugglega með fjórum
mörkum gegn engu. Mörk Þórs
gerðu Anna Einars 2, Laufey
Pálsdóttir 1 og Inga Bragadóttir
1.
KA-stúlkurnar eru efstar í
þessum riðli og komnar mað
annan fótinn í úrslitakeppnina.
Aðalsteinn
meiddur
Rafni afhent blóm fyrir leik KA og ÍBÍ.
Það vakti athygli á laugardaginn
að Aðalsteinn Jóhannsson var
ekki í KA-markinu. Hann
meiddist í leiknum á móti Kefla-
vík um siðustu helgi. Sprunga
mun vera í hryggjarlið hjá hon-
um og þrátt fyrir það að hann
mætti til leiksins og byrjaði að
hita upp, tóku meiðslin sig upp
og treysti hann sér ekki til að
leika. Varamarkmaður liðsins
hafði ætlað sér í allt sumar að
skreppa einn túr á togara, til að
afla sér smávegis peninga fyrir
næsta vetur, en hann stundar
nám í MA, þegar hann fór vissi
hann ekki hvernig ástatt var fyrir
Aðalsteini og hefði að sjálf-
sögðu ekki farið ef hann hefði
vitað hvernig ástatt var. Von-
andi verður hann kominn fyrir
næstu helgi, því óvíst er hvort
Aðalsteinn getur leikið meira í
sumar.
U.ágúst 1982 - DAGUR - 9