Dagur - 17.08.1982, Side 12
Akureyri, þriðjudagur 17. ágúst 1982
NYLONHÚÐAÐAR GRJÓTHLÍFAR @ 1
FRAMAN Á BÍLA. Wk 1
Nýbygging Sjafnar gengur samkvæmt áætlun. Ljósmynd: KGA.
Nýbygging Sjafnar:
Framkvæmdir
ganga vel
Óhöpp
íum-
ferðinni
Mjög harður árekstur varð á
horni Þórunnarstrætis og
Hrafnagilsstrætis á laugardag.
Þar skullu saman fólksbifreið
og langferðabifreið. Fólksbif-
reiðin skemmdist mjög mikið
en meiðsl konu, sem ók henni,
reyndust minni en óttast var í
fyrstu. Konan var flutt á sjúkra-
hús en reyndist óbrotin og mun
hafa fengið að fara heim á
sunnudag.
Á föstudagskvöldið var bifreið
ekið á ljósastaur í Höfðahlíð.
Bifreiðin skemmdist nokkuð og
var ökumaður hennar fluttur á
sjúkrahús. Meiðsli hans reyndust
ekki alvarleg, en hann mun grun-
aður um að hafa ekið ölvaður.
Á laugardag var bifreið ekið
útaf á milli brúnna yfir Eyjafjarð-
ará rétt innan við flugvöllinn.
Bifreiðin fór útaf við ræsi og
skemmdist eitthvað en um meiðsli
var ekki að ræða.
Ferðaskrif-
stofaá
Húsavík?
„Ég get ekkert sagt um þetta
mál á þessu stigi því það er á
viðræðugrundvelli enn sem
komið er,“ sagði Auður Gunn-
arsdóttir hótclstjóri á Hótel
Húsavík er við inntum hana
eftir hvað liði stofnun nýrrar
ferðaskrifstofu á Húsavík.
„Það er ekki búið að stofna
þessa ferðaskrifstofu ennþá, en
þeir sem eru í viðræðum varðandi
málið eru aðilar sem myndu hafa
hagsmuna að gæta ef af þessu yrði
eins og Hótel Húsavík, Húsavík-
urbær, sérleyfishafar og Flugleið-
ir svo einhverjir séu nefndir. Það
þarf að fara að gerast eitthvað í
þessu máli áður en um langt líður,
ef þetta á að koma til fram-
kvæmda t.d. á næsta ári,“ sagði
Auður.
Framkvæmdir við nýbyggingu
Efnaverksmiðjunnar Sjafnar
ganga samkvæmt áætlun og
mun framkvæmdum verða
haldið áfram í haust og vetur.
Sá hluti byggingarinnar sem nú
er unnið við verður tveggja
hæða og mun hýsa svamp- og
sápuframleiðsluna.
Búið er að skipta um jarðveg
fyrir alla bygginguna, en eftir er
að reisa málningarverksmiðjuna
og iagerhúsnæði. Að sögn Aðal-
steins Jónssonar forstjóra Sjafnar
hefur ekki enn verið tekin
ákvörðun um áframhald þeirra
framkvæmda.
Ekki er að fullu ákveðið hversu
mikið verður unnið í því húsnæði
sem gert verður fokhelt í haust.
Steypt munu verða gólf, en ekki
er ákveðið hvort múraðir verða
útveggir.
Gott útlit með
berjasprettu
Senn líður að þeim tíma sem
menn nota venjulega til hug-
leiðingar um ber og berja-
sprettu. Dagur hafði samband
við nokkra „berjabændur“ og
spurðist fyrir um útlitið í berja-
málum.
Sigurður Stefánsson bóndi í
Stærra-Árskógi á Árskógsströnd
hefur undanfarin ár selt aðgang
að berjalandi og kvað hann útlitið
vera heldur gott með berja-
sprettu. Væri hann vanur að opna
svæðið í kring um 20. ágúst og
myndi líklega gera það einnig í a
ef hlýnaði í veðri. Skógræktarfc
lag Eyjafjarðar hefur í nokkur i
haft opinn berjamó að Miðháls
stöðum í Öxnadal og þaðan feng
ust þær upplýsingar að útlitið væi
gott. Mikið væri af berjum en þai
væru smá.
Svipaða sögu er að segja af öðr
um góðum berjalöndum við Eyja
fjörð. Útlitið er gott með berja
sprettu og um 20. ágúst getur fóll
byrjað að dusta rykið af berjaföt
unum og tínunum.
Safn lifandi runna og
tijáa á Akureyri
Listigarðurínn, garðyrkjustjóri
og Skógræktarfélag Eyjafjarð-
ar hafa nú tekið höndum saman
um að koma á fót safni lifandi
runna og trjáa á Akureyrí.
Söfn sem þessi kallast „Arbor-
etum“ á fræðimáli og eru þekkt
víða erlendis en hér á landi er
ekkert slíkt safn. Að sögn Jó-
hanns Pálssonar forstöðumanns
Listigarðsins er reyndar töluvert
safn af trjám og runnum í garðin-
um en hin eiginlega arboretum
byggðu meira á því að hver teg-
und fengi meira rúm og að rækt-
aðir væru heilir lundir af hverri
tegund við aðstæður sem hæfðu
henni, s.s. við læki, í holtum
o.s.frv.
Jón Rögnvaldsson gekk með
þann draum að koma upp safni
sem þessu á Akureyri en entist
ekki aldur til þess. En það var
Björgvin Steindórsson sem gerði
fyrstu drögin með könnun í
brekkunum á Akureyri, allt frá
kirkjunni suður að Kjarna, í þeim
tilgangi að safninu yrði komið
fyrir á þessu svæði og þar yrði
jafnframt útivistarsvæði í tengsl-
um við Kjarnasvæðið. Könnun
þessi var prófritgerð Björgvins frá
Garðyrkjuskólanum íHveragerði
og fékk mjög góða dóma.
Bæjarstjórn Akureyrar hefur
samþykkt að safninu verði komið
þarna fyrir smám saman, gang-
stígar gerðir um brekkurnar,
lundirnir merktir og svæðið gert
þannig úr garði að bæði verði
gagnlegt og skemmtilegt fyrir fólk
að ganga þar um og skoða.
Jóhann sagði að enn lægju að-
eins grófustu drög að safninu
fyrir. Nokkur hluti lands á þessu
svæði er í einkaeign og er eftir að
ákveða hvort sveigt verðí framhjá
þessum landsvæðum eða samið
við landeigendur.
Byrjað að
taka upp
„Þetta er sæmileg uppskera að
stærðinni til en það eru ekki
mjög margar undir,“ sagði Ingi
Þór Ingimarsson bóndi í Neðri-
Dálksstöðum er Dagur spjall-
aði við hann, en Ingimar er far-
inn að taka upp kartöflur og
hefur selt á almennan markað.
„Kuldakastið núna getur sett
strik í reikninginn, en ég reikna
með, ef ekkert óvænt kemur upp,
að uppskeran verði í góðu meðal-
lagi. Ég setti niður tvö og hálft
tonn og er búinn að taka upp eitt
og hálft tonn.“
Ingi Þór sagði að meðalupp-
skera gæfi 8-10 falt miðað við það
sem sett hefði verið niður. Hann
sagðist aðeins vera farinn að taka
upp eftir pöntunum til að setja á
sumarmarkað en myndi annars
ekki byrja að taka upp af fullum
krafti fyrr en í september. Þess
má geta að í fyrra lauk Ingi Þór
við að taka upp tveimur dögum
áður en snjóa festi, og var hann
einn örfárra kartöflubænda sem
sluppu með allt sitt undan snjó í
það skiptið.
Finnbogi ráðinn
„Það er í sjálfu sér ekki mikið
að segja af starfi Iðnþróunar-
félags Eyjafjarðarbyggða enn
sem komið er,“ sagði Helgi
Bergs bæjarstjóri á Akureyrí i
samtali við Dag, en Helgi er
formaður félagsins.
„Það hefur verið meginverk-
efni stjórnarinnar til þessa að
koma félaginu af stað ef svo má
segja. Við höfum haldið 5-6
stjórnarfundi frá því stjórnin var
kosin og á þeim fundum hefur
fyrst og fremst verið unnið að því
að koma fyrirtækinu á legg.“
- Nú hafið þið ráðið Finnboga
Jónsson sem starfað hefur hjá
Iðnaðarráðuneytinu sem fram-
kvæmdastjóra félagsins, er það
ekki?
„Jú, stjórnin hefur samþykkt
að leita eftir því við hann í sam-
ræmi við hans umsókn að hann
taki við þessu starfi en það er enn
eftir að semja við hann um kaup
og kjör. Við eigum von á því að
hjólin fari að snúast af fullum
krafti þegar við verðum komnir
með starfslið að félaginu og að-
stöðu fyrir okkur," sagði Helgi
Bergs.
# Steingrímur
heldur áfram
Sem kunnugt er sagði Stein-
grímur Bernharðsson, banka-
stjóri Búnaðarbankans á Ak-
ureyri upp störfum fyrir
skömmu og mun hann hafa
verið óánægður með ein-
hverjar þær reglur sem yfir-
völdin fyrir sunnan gera úti-
bússtjórum að vinna eftir.
Steingrímur sem unnið hefur
í Búnaðarbankanum í yfir 30
ár mun vegna eindreginna tll-
mæla bankaráðs hafa fallist á
að framlengja starfsferil sinn
hjá bankanum.
# Rugluö kvik-
myndasýning
Bíógestir í Borgarbíói fengu
óvænta þraut að glfma við á
fimmtudagskvöldið. Þá var
sýnd mynd um þrælahald,
margir drepnir og mikið
gerðist, en það sem vafðist
fyrir bíógestum var að eftir að
sumar söguhetjurnar voru
dauðar sáust þær í fullu fjöri,
þær voru í miðjum hrakning-
um og druliugar upp fyrir
haus en birtust síðan f
skjannahvítum hitabeltis-
klæðnaði strax á eftir. Eftir
tæplega klukkutfma sýningu
kom The end og iisti yfir leik-
endur en síðan kom næsti
kafli á undan þeim síðasta og
þar á eftir sá sem átti að vera
annar í röðinni. Spólurnar
rugluðust sem sagt. Einn bíó-
gesta hafði orð á því að þeir
hefðu átt að biðja fólk afsök-
unar á þessu úr því ekki var
hægt að fylgjast betur með
sýningunni og leiðrétta mis-
tökin strax.
# Margtþarf
að lagfæra
Yfirmaður á einum stóru tog-
aranna á Akureyri hafði sam-
band við S&S og mótmælti
sumu af því sem þar kom fram
f síðasta blaði. Hann sagðí
t.d. að hásetahlutur á Sólbaki
og Kaldbaki hafi verið svip-
aður í fyrra, en ekki helmingi
hærri á Sólbaki. Kaldbakur
var hins vegar með helmingi
meiri afla. Varðandi vinnu-
álagið sagði hann að meiri afll
krefðist að sjálfsögðu meiri
vinnu en hún skiptist á fleiri
hendur á þeim stóru. Hann
sagðist skilja áfstöðu háset-
ans og vita að fyrir sunnan
færi besti mannskapurinn á
litlu togarana. Margt þyrfti að
lagfæra og samræma f samn-
ingum sjómanna á togurun-
um.