Dagur - 16.11.1982, Qupperneq 1
SKARTGRIPA-
SKRÍNUM
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
65. árgangur Akureyri, þriðjudagur 16. nóvember 1982 127. tölublað
Fasteignamarkaðurinn á Akureyri:
„Mikið framboð
en lítil eftirspurn“
Ölvuð
stúlka
olli
tveimur
árekstrum
Hún gekk ekki erfíðleikalaust
ökuferðin hjá ungu stúlkunni á
Akureyri á laugardagskvöldið.
Það var reyndar ekki von, því
hún var ölvuð og hafði litla
stjórn á ökutæki sínu.
Á Ráðhústorgi ók stúlkan aftan
á bíl. Ekki lauk ökuferðinni þó
þar, því stuttu síðar ók hún á bíl í
Kaupvangsstræti á móts við Hótel
KEÁ. Missti stúlkan stjórn á bíl
sínum, fór yfir á hinn vegarkant-
inn og ók þar á bíl sem kom á
móti. Urðu talsverðar skemmdir
á bílunum, engin meiðsli á fólki
og lauk ökuferð stúlkunnar þar.
Þá ók maður á ljósastaur í Gler-
árgötu á móts við Þórunnarstræti,
og var sá ökumaður grunaður um
ölvunarakstur.
Gáfu starfs-
mannafélaginu
lOOþúsund
í tilefni af 100 ára afmæli Sam-
vinnuhreyfingarinnar hefur stjórn
verksmiðja SÍS gefið starfs-
mannafélaginu 100 þúsund
krónur. Júlíus Thorarensen,
formaður félagsins, sagði í sam-
tali við Dag að uppi væru hug-
myndir um kaup á sjónvarpi og
tilheyrandi videóbúnaði. „Ef það
verður af þessum kaupum þá
munum við koma þessum tækjum
fyrir í sal starfsmannafélagsins,“
sagði Júlíus.
Kostnaður við
Laxdalshús
tæplega
100 þús. krónur
Framlag bæjarsjóðs Akureyrar
til húsfriðunarsjóðs var 130
þúsund krónur á þessu ári og
um sl. mánaðamót var búið að
bókfæra kostnað við Laxdals-
hús kr. 61.855. í þessari tölu
eru ekki vinnulaun fyrir lóðar-
framkvæmdir.
Á fundi í stjórn húsfriðunar-
sjóðs, sem haldinn var fyrir
skömmu, lagði garðyrkjustjóri
fram reikinga fyrir lóðavinnu og
hirðingu, samtals kr. 30.992.
Skýringin á því hve þetta hefur
farið langt fram úr áætlun er helst
sú að vinna við hellulögn og efn-
isöflun til hennar var miklu meiri
en gert var ráð fyrir.
Stjórn húsfriðunarsjóðs sam-
þykkti á fundinum að fela Sverri
Hermannssyni að vinna áfram
innivinnu á neðri hæð Laxdals-
hússins eftir því sem fé hrekkur
til.
„Ástandið á fasteignamark-
aðnum hefur verið afskaplega
dapurt að undanförnu, og það
sem farið hefur af íbúðum hef-
ur nær undantekningarlaust
verið í skiptum,“ sagði Bene-
dikt Ólafsson hdl. og fasteigna-
sali á Akureyri í spjalli við Dag
fyrir helgina.
„Það er greinilegt að fólk er
fjárvana og er ragt við að hella sér
út í kaup sem það sér ekki fyrir
endann á hvernig á að fjármagna.
Fólk er orðið mun varkárnara í
þessum málum en áður var.
Hvassviðrið af vestri sem ganga
átti yfír í nótt virðist hafa orðið
minna víðast hvar en gert hafði
verið ráð fyrir og ekki var vitað
um neitt meiriháttar tjón þegar
Dagur kannaði málið í morgun.
Þó fuku þakplötur af húsi við
Þingvelli, gamla býlinu á leið-
inni upp á Sólborg. Þá mun
eitthvert tjón hafa orðið á verk-
smiðjubyggingu Árna Árna-
sonar, rétt norðan Akureyrar.
Þó veðrið hafi verið betra en
menn áttu von á komu samt mjög
miklir vindstrengir ofan af Gler-
árdal. Lentu þeir mest á Síðu-
hverfinu. Sumar rokurnar voru
mjög sterkar og t.d. gekk illa að
hemja stóran og þungan Land-
Verð á fasteignum hefur hækk-
að mjög mikið á þessu ári en ég sé
ekki í fljótu bragði hvernig sú
þróun getur haldið áfram. Stað-
reyndin er sú að það er mikið
framboð á fasteignum en afskap-
lega lítil eftirspurn,“ sagði Bene-
dikt.
„Það eru greinilega minni pen-
ingar í umferð en var,“ sagði
Ólafur Birgir Árnason fasteigna-
sali. „Það er erfiðara fyrir ungt
fólk sem er að byrja að komast
áfram í peningamálum, því gamla
Rover jeppa á leið yfir nýju
Glerárbrúna um klukkan hálf
ellefu í gærkvöldi.
Þegar Dagur ræddi við einn
þeirra sem vann við að halda í
horfinu hjá verksmiðjuhúsi Árna
Árnasonar, Þórhall Gíslason,
sagði hann að los hefði verið kom-
ið á einangrun og annað smávegis
um klukkan hálf átta í gærkvöldi,
en þakplötur hefðu enn ekki
losnað. Starfsmenn voru að setja
þungar sprengjumottur ofan á
þak hússins fram undir miðnætti
þar sem mest var hætta á að það
lyftist. Þarna gekk á með miklum
hvössum byljum annað veifið.
Hjálparsveit skáta á Akureyri
var í viðbragðsstöðu í alla nótt.
reglan að þeir sem eiga peninga fá
frekar lánafyrirgreiðslu er fyrir
hendi.
Það er talsvert mikið um íbúða-
skipti og áberandi að fullorðið
fólk skiptir til þess að minnka við
sig. Þetta gerir markaðinn flókn-
ari og kostar mun meiri vinnu hjá
okkur fasteignasölunum,“ sagði
Ólafur.
Hann vildi einnig koma því á
framfæri að þegar verið er að gera
verðsamanburð á íbúðum á Ak-
ureyri og t.d. í Reykjavík væri
Búisi var við hvassri norðanátt á
Akureyri þegar liði á daginn.
Hjá lögreglunni á Siglufirði
fengust þær upplýsingar í morgun
að þar hafi ekkert verið að veðri
nema svolítið hvasst hafi verið
fram yfir miðnætti. Á Húsavík
hvessti um sex-leytið í morgun og
þar var komin norðlensk stórhríð
um átta leytið. Hvasst var á Dal-
vík í nótt en ekki svo að til skaða
yrði. Hjá lögreglunni í Ólafsfirði
fengust þær upplýsingar að þar
hefði allt verið með kyrrum kjör-
um í nótt, enda næði vestan áttin
sér sjaldan verulegu upp þar ytra.
Allir bátar voru í landi og tog-
arar komu til hafnar í gærkvöldi,
enda fyrirvari á óveðursspánni
nokkuð góður.
ekki tekið tillit til þess að yfirverð
er á íbúðum í Reykjavík, þær eru
yfirleitt stærri og sameign nær
undantekningarlaust mun stærri.
Ólafur sagði að beinn verðsaman-
burður væri ekki raunhæfur nema
þessi atriði væru tekin með í
reikninginn.
Þeir fasteignasalar sem Dagur
ræddi við voru sammála um að
íbúðaverð hafi hækkað mikið á
Akureyri á þessu ári, alveg fram
undir haustið, en hefði síðan að
mestu staðið í stað.
Vilja kanna
jafnrétti
Jafnréttisnefnd Akureyrar
samþykkti að beina því til
bæjarráðs að nefndin fái fjár-
veitingu á næsta fjárhagsári til
að standa straum af kostnaði
vegna könnunar á stöðu jafn-
réttismála á Akureyri. Nefndin
telur að hún þurfi eitt hundrað
þúsund til verksins.
Ganga frá
pöntun á
toglyftu
Á dögunum fól íþróttaráð Akur-
eyrar íþróttafulltrúa og forstöðu-
manni Skíðastaða að ganga frá
pöntun á Bohrer toglyftu frá
Sviss, sem á að setja niður í Hóla-
braut, Hlíðarfjalli, í stað kaðal-
lyftu. Umrædd toglyfta á að hafa
svipaða afkastagetu og togbrautin
sem fyrir var.
Loðdýrabú
á Hrapps-
staða-
grundum
Skipulagsnefnd Akureyrar hef-
ur samþykkt að stofnað verði
loðdýrabú á Hrappsstaða-
grundum. Það eru þeir Gunnar
og Guðmundur Blöndal sem
sóttu um leyfið og ætla þeir að
reka kanínubú á umræddu
landi.
Hafa þeir loforð fyrir því að fá
keyptan eða leigðan einn hektara
úr landi Víkings Guðmundssonar
fyrir þessa starfsemi. Skipulags-
nefnd óskaði eftir að nánari stað-
setning yrði lögð fyrir nefndina til
samþykktar, en lagði til að leyfið
yrði til 20 ára.
Starfsmenn Norðurverks þurftu að njörva límtrésverksmiðjuna fyrir norðan Lónsbrú niður og notuðu til þess jarðýtur
og fleira. Mynd: áþ.
Hvassviðrið minna en gert hafði verið ráð fyrir
Ekki vitað um
neitt verulegt tjón