Dagur - 16.11.1982, Qupperneq 5
Námsstefna um viðhald og
endurbætur gamalla húsa
Byggingaþjónustan, Hallveig-
arstíg 1, Reykjavík og Fræðslu-
miðstöð iðnaðarins, gangast
fyrir námsstefnum um viðhald
og endurbætur gamalla húsa,
og er þá fyrst og fremst átt við
timburhús og járnvarin timbur-
hús.
Með námstefnum þessum verð-
ur leitast við að koma sem mest-
um og bestum upplýsingum á
framfæri til byggingameistara,
eigenda gamalla húsa og forráða-
manna bæjar- og sveitastjórna.
Mjög færir fyrirlesarar hafa
verið fengnir til að þessar náms-
stefnur megi takast sem best og
má þar nefna m.a. Leif Blumen-
stein, byggingafræðing, sem ræðir
og kynnir verklega hlið varðandi
viðgerðir og endurbyggingu gam-
alla húsa, Hjörleif Stefánsson,
arkitekt með fagurfræðilega hlið
málsins, Þór Magnússon, þjóð-
minjavörð, varðandi húsfriðunar-
lög í framkvæmd og fl., Hörð
Ágústsson, listmálara, sem fjallar
um ágrip af íslenskri húsagerðar-
sögu, Guðmund Pálma Kristins-
son, verkfræðing, sem ræðir
kostnaðarhlið við endurbyggingu
húsa og Helga V. Guðmundsson,
deildarstjóra, sem kynnir og út-
skýrir lánamöguleika og styrki
varðandi ofangreint.
Ofangreindar námsstefnur
verða haldnar á Akureyri dagana
26. og 27. nóvember n.k. og í
Reykjavík dagana 3. og 4 des-
ember. Námsstefnan á Akureyri
verður haldin á Hótel KEA í sam-
vinnu við Meistarasamband bygg-
ingarmanna á Norðurlandi og
Trésmiðafélag Akureyrar. Par
mæta aúk ofantaldra aðiia og
flytja erindi, Gísli Jónsson form.
húsfriðunarsjóðs Akureyrar og
Unnið að lagfæríngum á gömlu húsi.
Sverrir Hermannsson, bygginga-
meistari. Helgi Bergs, bæjar-
stjóri, setur námsstefnuna og
Ingvar Gíslason, menntamála-
ráðherra mun flytja ávarp í náms-
stefnulok.
Tilkynningar um þátttöku skuiu
berast til Byggingaþjónustunnar,
Hallveigarstíg 1, Reykjavík,
sími: 29266 eða til Byggingaþjón-
ustunnar á Akureyri í síma 96-
21022.
Lágmarksþátttaka á hvort
námskeið eru 30 manns.
AKUREYRARBÆR
Viðtalstímar
bæjarfulltrúa
Miövikudaginn 17. nóvember nk. kl. 20-22 veröa
bæjarfulltrúarnir Helgi Guðmundsson og Jón G.
Sólnes til viötals í fundarstofu bæjarráös, Geisla-
götu 9, 2. hæö.
Bæjarstjóri.
KJORNARHffiE#
Juvel hveiti
2 kg poki
aðeins
HRfSALUNDI 5
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 60., 62. og 65. tbl. Lögbirtingablaðsins 1981 á
fasteigninni Lundargötu 8, norðurenda, Akureyri, þingl. eign
Jóseps Hallssonar, fer fram eftir kröfu Gunnars Sólnes hrl. á
eigninni sjálfri föstudaginn 19. nóvember nk. kl. 16.30.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 81., 83. og 87. tbl. Lögbirtingablaðsins 1981 á
fasteigninni Ásabyggð 4, Akureyri, þingl. eign Árna Vals
Viggóssonar, fer fram eftir kröfu Tryggingastofnunar ríkisins á
eigninni sjálfri föstudaginn 19. nóvember 1982 kl. 14.00.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 21., 26. og 29. tbl. Lögbirtingablaðsins 1982 á
fasteigninni Dalsgerði 6a, Akureyri, þingl. eign Grétars Gísla-
sonar, fer fram eftir kröfu bæjargjaldkerans á Akureyri á eign-
inni sjálfri föstudaginn 19. nóvember nk. kl. 15.30.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 64., 66. og 68. tbl. Lögbirtingablaðsins 1982 á
fasteigninni Fjólugötu 2, Akureyri, þingl. eign Margrótar Harð-
ardóttur, fer fram eftir kröfu Jóns Kr. Sólnes hdl. á eigninni sjálfri
föstudaginn 19. nóvember nk. kl. 16.00.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
16'. nóverrtbér 1982^ DAGUR* - 5