Dagur - 16.11.1982, Side 6
Mér hefur alltaf þótt flugstöðv-
ar vera fremur hcillandi hús.
Sífellt er eitthvað að gerast í
þeim, fólk að koma og fólk að
fara, en sumir bíða eftir næstu
vél eða þá þeirri þarnæstu.
Flugstöðvar hafa orðið mörg-
um að yrkisefni - ekki síst
kvikmyndaleikstjórum sem
hafa séð í þeim prýðileg svið
fyrir harm-, gaman- og
spennumyndir. Eg veit ekki
hvort flugstöðin á Akureyri
muni nokkru sinni verða
þungamiðjan í kvikmynd en
svo mikið er víst að umsvifin
aukast stöðugt á Akureyrar-
velli. Síðast liðið sumar komu
flugvélar Flugleiða fimm
sinnum í dag til Akureyrar frá
Reykjavík og í júní næsta
sumar er áætlað að hefja
reglulegt áætlunarflug milli
Akureyrar og Kaupmanna-
hafnar. Eflaust munu margir
verða til þess að notfæra sér
þær ferðir, sem er áætlað að
verði einu sinni í viku til að
byrja með.
Fríhöfnin kemur ekki
strax
Fyrir nokkru síðan kom Herbert
Jónsson tollvörður fram á flu.g-
völl og skoðaði húsnæðið með
tilliti til áætlunarflugsins. Ekki
þýðir að hafa eftirlitið minna hér
en í Keflavík og er í ráði að
suðurhluti farþegasalarins verði
fyrir þá farþega sem eru að
koma að utan eða í þann veginn
að fara af stað. En því miður
verður að hryggja hluta af til-
vonandi farþegum með þeim
tíðindum að það er ekki fyrir-
hugað að setja á fót frfhöfn fyrir
þá. Það verður að bíða aukinnar
umferðar til útlanda og aukins
rýmis í flugvallarbyggingunni.
Tæknin hefur svo sannarlega
haldið innreið sína í afgreiðslu
Flugleiða á Akureyrarvelli. í
herbergi inn af afgreiðslunni er
hann Alex til húsa, en það er
bókunartölva sem er tengd við
móðurstöð í Reykjavík. Það
kom fram í samtlali við Bergþór
Erlingsson, starfsmann Flug-
leiða, sem sat fyrir framan skjá-
inn þegar ég átti þarna leið um,
að Álex hefur stóraukið mögu-
Ieika starfsmanna Flugleiða til
að þjóna farþegum. Eins og til að
leggja áherslu á orð sín studdi
hann á nokkra takka og farþegal-
isti næstu vélar frá Reykjavík til
Akureyrar birtist á skjánum. Við
athuguðum líka ýmislegt fleira
sem Alex getur gert sáum m.a.
hvaða vélar færu um Keflavíkurf-
lugvöll og hvort væru laus sæti
með þeim.
Nú er unnið að endurbótum á
herberginu sem Alex er geymd-
ur í, en fram til þessa hafa kapl-
arnir sem hann dregur sína nær-
ingu úr hangið upp á veggjum.
Þegar dregur nær jólum verður
búið að koma þessum líftaugum
í stokka, mála og setja fallegt
teppi á gólfið. Alex hefur sem
sagt bætt farþegabókhaldið og
það sem meira er - þann getur
refsað þeim sem panta far á
ákveðnum tíma en mæta ekki.
Það er nauðsynlegt að útskýra
þetta örlítið nánar - Gerum ráð
fyrir að farþegi panti t.d. far til
Reykjavíkur kl. 9 á föstudags-
morni og til baka á mánudegi.
Hann hættir við að fara á tilsett-
um tíma suður, veit að það er
laust sæti síðdegis og fer án þess
að láta Alex vita. Þegar Álex
verður þess áskynja að farþeg-
inn hefur ekki farið suður um
morguninn þurrkar hann um-
svifalaust út pöntunina norður á
mánudaginn. Hugsunarleysi far-
þegans getur sem sagt komið
honum í koll þegar hann ætlar
heim.
Allir voru að spyrja um
flugið
Þorsteinn Jónasson vaktstjóri
tók því vel að upplýsa mig um
leyndardóma hússins á Akur-
eyrarflugvelli, hússins sem sagt
er að hafi kostað eina milljón á
sínum tíma. Þeim peningum
hefur eflaust verið vel varið, en
sumir minnast þó enn græna
braggans með örlitlum söknuði.
Hann stendur enn, ellimóður
með skakka hurðakarma.
Hundruð þúsunda hafa geng-
ið um sali nýju byggingarinnar
og oft hefur verið líf og fjör í
húsinu á annatímum. Um jól
og páska hefur varla verið hægt
að þverfóta í því og Þorsteinn
sagði að flestir hefðu farþegarnir
suður verið um eitt þúsund á ein-
um degi. Þá kom Boeing þota
fjórum sinnum til Akureyrar til
að ná í farþega. Ég veit ekki
hvaða met hann Guðmundur
Stefánsson í vöruafgreiðslu
Flugleiða á í fórum sínum, en
gæti trúað að þau væru mörg.
Hans farþegar eru pakkar af
ýmsum stærðum og gerðum og
allir eru þeir afgreiddir með
sömu róseminni.
Síminn hringir og kona spyr
Þorstein hvenær morgunvélin
komi frá Reykjavík. Hún fær
þau svör að vélin hafi bilað og
brottför sé áætluð um hádegi.
Klukkan var um ellefu og engin
vél hafði komið að sunnan og
aftur hringdi síminn. Álagið var
þó mun meira í afgreiðslunni og
það bætti ekki úr skák að tvær af
línunum voru óvirkar. Allir
voru að spyrja um flugið, ég held
að spurningarnar hafi allar verið
eins: Hvenær er von á vélinni,
hvenær fer vélin suður? „Það er
ótrúlegt hvað fólk sýnir okkur
mikið umburðarlyndi, ef eitt-
hvað fer úr skorðum,“ sagði
Þorsteinn. „Mín skoðun er sú að
það beri að segja því rétt og satt
frá ástandi mála, en þá og því
aðeins er fólk rólegt. Ánnars má
líka segja um þær tarnir sem
koma hér um jól og páska að þá
eru farþegarnir afskaplega þol-
inmóðir. Stundum er það merki-
legt hvað langlundargeð manna
er mikið. Þegar þessar tarnir
koma virðist mér það skipta fólk
mestu máli að það komist á leið-
arenda, það er ekki að veltafyrir
sér nokkrum klukkustundum til
eða frá. Ég viðurkenni fúslega
að þjónustan við farþegana
verður þá ekki alltaf sem skildi
en fólkið sýnir okkur skilning.
Ætti að staðsetja Fokker
á Akureyri?
Þorsteinn neitaði því að starfs-
fólkið á Akureyrarflugvelli væri
skammað ef veður hamlaði
flugi. En oft er það svo að fólk á
erfitt með að skilja af hverju er
ekki flogið þegar veður er prýði-
legt á Akureyri og í Reykjavík.
Þorsteinn minnist þess að fyrir
nokkrum árum kom um hálfs
mánaðar kafii í febrúar að dag
eftir dag var spáð ísingu í lofti.
Var því suma daga ekkert flogið
eða ekki fyrr en seint um kvöld,
en allan tíman var bjartviðri
bæði á Akuréyri og í Reykjavík.
„Auðvitað er mikið tillit tekið
til veðurspárinnar, en ef hún
segir að illt veður sé í aðsigi eru
vélarnar ekki sendar af stað,“
sagði Þorsteinn og sagði mér nú
frá bakkanum fræga sem situr
oft úti í firði og kemur í veg fyrir
að flugvélar geti lent á Akureyri.
Það er e.t.v. réttara að segja
„kom“ því nýtt aðflug úr suðri
hefur gert það að verkum að
skýja- og þokubakkinn, sem ætt-
aður er úr Hörgárdal og leggur
yfir svæðið sem takmarkast af
Oddeyri og Svalbarðseyri hindr-
ar einnig flugumferð. Þessi
bakki hefur oft gert starfsmönn-
um vallarins gramt í geði, því
æði oft hafa flugvélarnar verið
að sveima í ágætu veðri milli
Hjalteyrar og Svalbarðseyrar en
ekki komist í gegnum bakkann.
Á sömu stundu hafa tilvonandi
DAGURÁ
AKUREYRARFLUG
Svipmyndir úr flugstöðinni.
Guðmundur í riki sínu, Vöruafgreiðslu Flugieiða.
Þorsteinn Jónasson.
Friðrik Adólfsson sér um afgreiðslu á vélum Flugfélags Norðurlands.
Gunnar Egilsson flugumferðarstjóri.
6-DAGUR-16. nóvember 1982