Dagur - 16.11.1982, Qupperneq 7
Myndir: áþ & KGA.
‘VELLI
farþegar og flugvallarstarfs-
menn séð til sólar og heyrt til
flugvélarinnar sem hefur orðið
að snúa við. „Það er við skilyrði
af þessu tagi sem aðflug úr suðri
kemur e.t.v. hvað mest að
notum,“ sagði Þorsteinn „fyrir
utan styttingu flugtímans."
Lengi hefur Akureyringa
dreymt um að á Akureyri væri
staðsett flugvél sem flygi á hverj-
um morgni til Reykjavíkur. Þá
gætu menn verið komnir suður
um eða fyrir klukkan níu, en í
dag er komutími þangað um kl.
10. Þorsteinn sagði að í þessu
efni væri h^gara um að tala en í
að komast. Hann benti á að það
þyrfti að stækka flugskýlið og
hafa hér búsetta flugvirkja og
áhöfn. Með öðrum orðum
myndi allur tilkostnaður hækka
á sama tíma og leitað er aðhalds
í rekstri. En Flugleiðir hafa
reynt að koma til móts við við-
skiptavini sína og látið vélarnar
fara fyrr frá Reykjavík til Akur-
eyrar svo farþegar frá Akureyri
kæmust snemma til höfuðborg-
arinnar.
En að sjálfsögðu væru ýmsir
kostir því samfara að ein Flug-
leiðavélanna ætti heimahöfn á
Akureyri. Oft er það svo að vél-
ar geta komist frá Akureyri, not-
fært sér þau augnarblik þegar
verður hlé á veðri. Ósjaldan
hafa menn séð vélar frá F.N.
lyfta sér til flugs og fara suður
þegar vélar Flugleiða bíða þar
og koma ekki norður. Og þar að
auki hafa vélar F.N. oftlega get-
að lent á Akureyrarflugvelli á
veturna en ekki vélar Flugleiða.
Það hefur fólk stundum átt erfitt
með að skilja en í þeim tilfellum
getur því verið til að dreifa að
litlar vélar þurfa mun styttri
vegalengd til að hemla á en þær
stóru.
Næsta skref er
farmiðaprentari
í mörg ár hafa starfsmenn Flug-
leiða háð heilagt stríð gegn þeim
sem panta sæti og sitja síðan
heima án þess að láta nokkurn
mann vita. Að sjálfsögðu er það
ekkert annað en óafsakanlegur
trassaskapur að lyfta ekki upp
tóli og segja við starfsfólkið á
vellinum: því miður kemst ég
ekki. Vildir þú gjöra svo vel að
sjá til þess að nafn mitt yrði
strikað út af listanum? Máski er
það séríslenskt fyrirbæri að láta
ekki vita af sér - og þó. En svo
mikið er víst að kurteisi og tillits-
semi kostar ekki (nema andvirði
eins símtals) mikið en getur gert
lífið léttbærara fyrir starfsfólk
flugvallarins og einhver annar
fær strax sætið en þarf ekki að
bíða í óvissu.
Þorsteinn sagði að starfsfólk
Akureyrarflugvallar ætti ekki í
fórum sínum „svartan lista“ yfir
þá sem panta en fara ekki, en
hann ítrekaði að með ALEX,
bókunartölvu Flugleiða, væri
búið að girða fyrir hluta af
vandamálinu. Við sögðum frá
því í upphafi eins og er þér í
fersku minni og endurtökum
það ekki hér.
Alex hefur einnig gert það að
verkum að biðlistar sem voru
algengir fyrir nokkru hafa nær
alveg horfið. Áður fyrr var
algengt að 10 til 20 manns væru á
biðlista þar sem hluti sætanna
var frátekinn fyrir hina ýmsu
staði. Sem dæmi má nefna að
Flugleiðaskrifstofan í Reykja-
vík hafi frátekin 10 sæti í hverja
þá vél sem fór frá Akureyri. Það
var ekki fyrr en skömmu áður en
vélin fór að athugað var hvort
Reykjavík hefði fyllt sinn kvóta
-ef svo var ekki hrukku inn
nokkrir biðlistafarþegar.
Áfram verður haldið að tölvu-
væða afgreiðslu Flugleiða á Ak-
ureyrarflugvelli. Næsta skref
verður tekið áður en langt um
líður og þá munu farþegar sjá
farmiðaprentara á borði af-
greiðslufólksins. Með tilkomu
slíks áhalds verða pennar lagðir
á hilluna en miðunum stungið
beint í prentarann. Þetta fyrir-
komulag mun flýta fyrir af-
greiðslu og gera hana öruggari.
„Enn hafa engar ákvarðanir ver-
ið teknar um að kaupa svona
prentara svo mér sé kunnugt
um,“ sagði Þorsteinn. Þegar við
gengum niður á jarðhæðina stóð
kona á óræðum aldri við af-
greiðsluborðið. Hún var að
kaupa miða. Afgreiðslumaður-
inn afgreiddi hana lipurlega og
sýndi henni að sjálfsögðu fyllstu
kurteisi. Ég held að slíkir menn
þurfi að vera sérstakir mann-
þekkjarar og þolinmóðir að
auki. Þorsteinn játti þessum
hugleiðingum mínum og bætti
við að enn væri mikið af fólki
hrætt við að fljúga og því yrði af-
greiðslufólkið að sýna slíkum
farþegum sérstaklega gott
viðmót, hughreysta það ef með
þyrfti. Þorsteinn harðneitaði því
að vera sjálfur flughræddur,
benti á að allar athuganir sýna
að flugið er öruggasti ferðamát-
inn og um leið sá þægilegasti.
Mér er sama. Ég ætla að sitja
aftast í vélinni næst þegar ég fer
suður.
Það brakaði og brast í tækjum
Gunnars Egilssonar, flugum-
ferðastjóra, frá Kópaskeri
bárust þau tíðindi að völlurinn
væri þokkalegur, fyrir utan
svellbungu sem væru á honum
miðjum og skömmu síðar
kom rödd í talstöðina sem
sagði að vindur væri hægur í
Grímsey og að völlurinn þar
væri í góðu ásigkomulagi.
Gunnar hripaði niður þessar
og fleiri tilkynningar sem bár-
ust um veður og skyggni. Sig-
urður Aðalsteinsson, fram-
kvæmdastjóri F.N. var að
halda af stað.
Ég átti von á að sjá mörg
blikkandi ljós í flugturninum en
varð fyrir vonbrigðum. Þarna
gaf hins vegar á að líta radara og
fjarskiptatæki af ýmsum toga.
„Við erum fjórir sem störfum
hérna. Frá klukkan níu til sex
erum við tveir á vakt, en það er
einskipað frá sjö á mognana til
níu og sömu sögu er að segja frá
kl. sex og framúr.“
Starf flugumferðarstjóra er
fjölþætt og Gunnar sagði að á
stærri völlum þekktist það ekki
að þeir tækju á móti tilkynning-
um um veður og ástand flug-
valla, en hér gerir fámennið það
að verkum að þessi störf eru
sameinuð. „Okkar starfssvið er
fyrst og fremst að gæta þess að
flugvélar rekist ekki saman og
að greiða fyrir allri umferð.“
Umferð um Akureyrarflug-
völl er mikil og Gunnar sagði að
hún ykist stöðugt. Hins vegar er
það algengur misskilningur að
fyrirhugað þotuflug til og frá
Ákureyri muni auka til muna
álagið á flugumferðarstjórana.
Hvernig afmarkast starfs-
svæði Akureyrarflugvallar?
„ Við getum sagt að okkar um-
ráðasvæði sé hringur með u.þ.b.
40 mílna radíus, en að sjálf-
sögðu eru undantekningar á
þessu. Spurningin er sú hvenær
við fáum afhentar vélar frá flug-
stjórninni í Reykjavík," sagði
Gunnar og játti því að starf
flugumferðarstjóra væri ábyrgð-
armikið en spurði á móti hvort
ekki mætti segja það sama um
öll störf. „Því er ekki að neita að
það geta komið upp flóknar
stöður sem við verðum að geta
greitt úr. Ég held hins vegar að
það sé ekki rétt að koma með
dæmi.“ Og aftur brakaði í tækj-
unum - nú var að rödd frá Sauð-
árkróki sem vildi koma frá sér
einhverjum upplýsingum.
Verðlaun
afhent
í blaða-
bingó KA
Fyrir helgina voru dregnir út
fyrstu vinningarnir i blaða-
bingói KA sem staðið hefur yfir
að undanförnu og er reyndar
ekki lokið enn.
Fyrstur til að fá lóðrétt línu á
bingóspjaldið sitt var 10 ára
piltur, Magnús Teitsson sem á
heima á Byggðavegi 123 og mætti
hann í Cesar til að veita viðtöku
forláta reiðhjóli af Motobecane
gerð sem Ces.ar gaf. Fyrst til að fá
lárétta línu varð hinsvegar Ingi-
björg Snorradóttir og hennar
verðlaun voru gönguskíðaútbún-
aður frá Sporthúsinu. Bróðir
hennar Rögnvaldur veitti verð-
laununum viðtöku.
Þegar þetta er skrifað hefur enn
enginn unnið til þess að fá aðal-
vinninginn sem er Sharp-mynd-
segulbandstæki frá Cesar, en
reiknað er með að ekki sé langt
þar til einhver dettur í lukkupott-
inn.
Þátttakendur á námskeiðinu. Myndina tók Kristján Pétur.
Myndlistarnemar
iæra Ijósmyndun
Kristján Pétur Guðnason
Ijósmyndari úr Reykjavík
heimsótti Myndlistarskólann
á Akureyri á dögunum, og
hélt hálfsmánaðar námskeið
fyrir 7 nemendur í framhalds-
deild skólans. Á námskeiðinu
kenndi Kristján Pétur undir-
stöðuatriði í Ijósmyndun og
var farið yfir öll stig Ijósmynd-
unar, allt frá því að læra að
beita vélinni og setja fílmuna
í, og til þess að vinna mynd-
irnr og ganga frá þeim.
Jafnframt fengu nemendur
þau verkefni að taka myndir og
vinna þær til enda, og heimsóttu
þeir m.a. vinnustaði í þeim til-
gangi og elliheimili.
Að sögn Helga Vilberg skóla-
stjóra Myndlistarskólans á Ak-
ureyri gerist það sífellt algeng-
ara að listmálarar taki ljós-
myndavélina í sína notkun, til
þess að viða að sér efnivið. Þá
kemur ljósmyndin að miklu
gagni fyrir listmálara sem heim-
ild. Það hefur komið í ljós að
margir listmálarar vita ekkert
hvar myndir þeirra eru niður
komnar og því erfitt að ná til
þeirra þegar halda á sýningar og
gefa út bækur um verk þeirra svo
eitthvað sé nefnt. Þarna getur
ljósmyndin komið til skjalanna
og listamaðurinn getur haldið
eftir ljósmynd af listaverki sínu
ásamt upplýsingum um viðkom-
andi listaverk.
16. nóvember 1982 - DAGUR - 7