Dagur - 16.11.1982, Qupperneq 9
Stórsigur
hjá Þór
Þórsarar unnu stórsigur á
Skallagrími úr Borgarnesi,
þegar liðin mættust á föstu-
dagskvöldið í þriðju deild í
handbolta. Leikið var í
íþróttaskemmunni fyrir of fáa
áhorfendur. Sigur Þórs var
snemma í leiknum í höfn, en
Borgnesingar höfðu ekkert að
gera í Þórsara. Lokatölur
leiksins urðu 32 mörk gegn 12,
eða 20 marka munur en það er
sjaldgæft þegar iið úr sömu
deild leika saman.
Þór náði fljótlega yfirburða-
stöðu, en þegar fyrri hálfieikur
var hálfnaður var staðan orðin 8
gegn 2 Þór í vil.
I hálfleik var staðan 16-7 og
nánast formsatriði að ljúka
leiknum. Þór gerði síðan þrjú
fyrstu mörkin í síðari hálfleik og
staðan orðin 19 gegn 7.
Skallagrímur gerði síðan tvö
mörk, en þá komu níu í röð hjá
Þór án þess að Borgnesingar
næðu að skora og staðan þá orð-
in 29 gegn 9. Bæði liðin gerðu
síðan þrjú mörk til viðbótar og
lokatölur urðu síðan eins og
áður sagði 32 gegn 12.
Þórsarar bættu þarna við
tveimur stigum í safnið, en þeir
virðast ennþá eiga möguleika á
að komast upp úr þessari deild,
ef þeim tekst vel upp í síðari um-
ferðinni. Það var Guðjón sem
skoraði flest mörk Þórs eða 9,
Sigurður gerði 8,7 úr víti, Einar
Arason gerði 5 en hann var jafn-
framt besti maður liðsins, Gunn-
ar Gunnarsson 4, Sigtryggur 3,
Smári 2og Jón 1.
Kemur úrvals-
deildarlið norður?
Með tilkomu nýju íþróttahallarínn-
ar opnast ótal möguleikar til
íþróttakeppna. Það er mál manna
að þetta hús verði það glæsilegasta
sinnar tegundar hérá landi, og þess
vegna vilja ýmsir verða tilað leika í
höllinni.
Vitað er að mörg ef ekki öll úr-
valsdeildarliðanna í körfunni hafa
sett sig í samband við fýrstu deildar
lið Þórs, og óskað eftir að koma og
leika i húsinu. Þórsarar hafa staðið
sig ágætlega í leikjum sínum í
vetur, og það m.a. ýtir undir önnur
lið að koma og spreyta sig við þá.
Vonandi fáum við því að sjá eitt
úrvalsdeildarliðanna í keppni við
Þór á næstunni og gaman væri að
sjá ÍR-inga, en þeir hafa fengið til
liðs við sig Pétur Guðmundsson.
Víkingar með
tvo ósigra heim
Fyrstu deildar lið Víkings í
blaki kom norður um helgina
og lék tvo leiki. Á föstudags-
kvöldið lék það við Iið Bjarma
í íþróttahúsinu í Hafralækjar-
skóla. Bjarmi gerði sér lítið
fyrir og sigraði með þremur
hrinum gegn einni.
Þetta var fyrsti sigur Bjarma í
fyrstu deild og vonandi fylgja
fleiri á eftir.
Á laugardaginn léku Víkingar
og UMSE í íþróttahúsinu í Gler-
árhverfi.
Víkingar byrjuðu af fullum
krafti og sigruðu mjög auðveld-
lega í fyrstu hrinunni með 15
stigum gegn 3.
Önnur hrinan var mjög
spennandi, en UMSE komst í 14
gegn 9. Víkingum tókst síðan að
jafna 14-14, og þannig var stað-
an lengi, en uppgjafirnar gengu
til skiptis á milli liðanna. Að lok-
um tókst Eyfirðingum að knýja
fram sigur, 16-14. Næstu hrinu
sigruðu síðan Eyfirðingar með
15 gegn 11, og þeir gerðu betur
og sigruðu einnig í fjórðu lot-
unni 15-9. Þarna sigraði því
UMSE með þremur hrinum
gegn einni, en þetta var jafn-
framt fyrsti sigur Eyfirðinga á
þessu ári.
Auðvelt hjá
Dalvíkingum
Dalvíkingar léku við Skalla
grím í þriðju deildinni í hand
Dómara-
námskeið
Björgvin var markahæstur einnig mjög góðan leik. Vignir
Dalvíkinga með 7 mörk, en gerði 4, Björn, Ólafur og Albert
knattleik á laugardaginn, en hann sýndi mikið öryggi á lín- 3 hver, Birnirnir og Tómas
íþróttaskemman er þeirra unni. Júlíusgerði5,enhannátti gerðu2hvor.
heimavöllur. Dalvíkingar
höfðu fimm mörk yfir í hálf-
leik, og þegar leikurinn var
flautaður af, var munurinn
sex mörk eða 31 gegn 25 Dal-
vík í vil.
Lengi framan af var leikurinn
jafn, og nánast jafnt á öllum töl-
um fram til 6-6. Þá komust
Borgnesingar í tveggja marka
forskot, en Dalvíkingar hresst-
ust fljótlega og náðu að jafna
10-10 og síðan aftur 12-12.
Þá gerðu Dalvíkingar fimm
mörk í röð og breyttu stöðunni í
17 gegn 12. lhálfleik var staðan
19-14.
Borgnesingar byrjuðu af full-
um krafti í síðari hálfleik og
náðu að komast í 20 gegn 19.
Dalvíkingar voru síðan sterk-
ari á endasprettinum og sigruðu
örugglega með 31 marki gegn
25.
Þegar Dalvíkingar ná vel
saman leika þeir mun betri
handbolta en Skallagrímur, og
oft sjást hjá þeim skemmtilegar
og vel út færðar leikfléttur.
Handknattleiksráð Akureyr-
ar mun standa fyrir dómara-
námskeiði helgina 26.-28.
nóvember nk.
Leiðbeinendur á námskeiðinu
verða þekktir dómarar úr
Reykjavík. Með tilkomu nýju
íþróttahallarinnar mun hand-
boltinn hér á Akureyri eflast til
muna, þannig að í framtíðinni
mun verða mikið að gera fyrir
dómara hér á Akureyri. Þeir
sem áhuga hafa á að koma á
námskeiðið tilkynni þátttöku
sína til Jónasar Hallgrímssonar í
síma 24552 fyrir 17. þ.m.
KA-Þór frestaö
Loksins þegar aftur átti að fara að leika í annarri
deildinni í handbolta, var ófært til Akureyrar vegna
stórhríðar, þannig að Þórarar frá Vestmannaeyjum
komust ekki til Akureyrar til að leika við KA. Leik-
urinn er áætlaður á miðvikudagskvöldið kl. 20.00 í
Iþróttaskemmunni.
16. nóvember 1982 - DAGUR - 9