Dagur - 16.11.1982, Síða 12
Flugfélag
Norðurlands:
Áætlun
raskast
Flug hjá Flugfélagi Norður- ekki úr leik nema í fjóra daga. ‘
lands hefur gengið vel í haust Sigurður sagði að flutningar
að sögn Sigurðar Aðalsteins- væruminninuent.d. ásamatíma
sonar framkvæmdastjóra fél- í fyrra. Hann sagði einnig að dag-
agsins. legur rekstur félagsins væri nokk-
„Tíðarfarið hefur verið gott og uð erfiður fjárhagslega, en átti þó
gert það að verkum að áætlun von á því að þegar upp væri staðið
okkar hefur h'tið raskast. Að vísu um áramót myndi útkoman á ár-
lentum við í erfiðleikum þegar inu í heild verða nokkuð góð.
tvær vélar okkar voru úr leik sam-
tímis, Chieftainvélin bilaði í
Reykjavík og á sama tíma var
ekið á Mitsubishi vélina okkar á
Akureyrarflugvelli. Hún var bó
Mjög mikið rok var á Akureyri í gær og var Pollurinn ekki mjög aðlaðandi á
að horfa. Flytja þurfti til bátinn Þórð Jónsson á milli bryggja og gekk það ekki
erfiðleikalaust. Veðurhæðin var mjög mikil í verstu hriðjunum og ekkert var
flogið utan þess að tvær vélar „læddust“ norður um morgun-
inn. Ljósm.: KGA.
Húsavík:
25 ára gömul
lúða á land!
Togarinn Kolbeinsey Þ.H. 10,
kom meö óvenju stóran fisk
úr veiðiferð í sl. viku. Var það
stórlúða, sem að sögn Konráðs
Þórissonar fiskifræðings, sem
veitir forstöðu útibúi Hafrann-
sóknarstofnunnar á Húsavík
mældist 234 cm að lengd og vó
195 kg.
Hann kvað skepnu þessa vera
25 ára gamla og þá stærstu sinnar
tegundar sem hann hefði séð.
Konráð sagði að lúður gætu orðið
fjörgamlar, komist á fimmtugs-
aldur. Svoleiðis skessur yrðu 3-4
metrar á lengd, en væru löngu
hættar að veiðast.
Kolbeinsey var með rúm 80
tonn eftir 8-9 daga veiðiferð. Lúð-
an veiddist á Mánáreyjahrygg.
í sl. viku kom hinn togari Hús-
víkinga, Júlíus Havsteen, að landi
meðum 120 tonn af fiski eftir 9-10
daga veiði.
Hillir undir
varanlega lausn
Loks hillir undir varanlega
lausn í símamálum Akureyr-
inga, en eins og kunnugt er hef-
ur ekki verið hægt að afgreiða
ný símanúmer í langan tíma.
Ástæðan er einfaldlega sú að
númerin í gömlu stöðinni eru
fyrir löngu uppurin. I síðustu
viku afhenti Norðurverk Pósti
og síma tækjasal þann sem
Norðurverk byggði ofan á
Bögglapóststofuna við Skipa-
götu og starfsmenn Pósts og
síma hófu skömmu síðar að
undirbúa uppsetningu tækja.
Að sögn Gísla Eyland, stöðv-
arstjóra, verður hægt að afgreiða
ný símanúmer eftir u.þ.b. fjóra
mánuði, en í nýju tækjasamstæð-
unni eru 1000 númer. Gísli sagði
að um þessar mundir væru um 300
á biðlista eftir síma og það væri
ekki fjarri lagi að það kæmi nýtt
nafn á listann á hverjum degi.
Nýbyggingin ætti að duga næstu
árin því hún rúmar fimm sam-
stæður af þeirri gerð sem nú er
unnið við uppsetningu á - eða
fimm þúsund númer með öðrum
orðum. Hins vegar er þess að geta
að um þessar mundir eru tölvu-
stýrðar stöðvar að ryðja sér til
rúms og sagði Gylfi Már Jónsson,
tæknifræðingur, að þær tækju
mun minna pláss en eldri tækja-
samstæður. Það má því gera ráð
fyrir að viðbyggingin dugi næstu
áratugina. Þess má geta að nú eru
fimm þúsund númer í notkun á
Akureyri en verða sex þúsund
innan tíðar eins og áður sagði.
Framkvæmdir við tækjahúsið
hófust í april, en tilboð í bygging-
una voru opnuð þann 16. mars.
Tilboð Norðurverks hljóðaði upp
á tæpa 1.4 milljón. Húsasmíða-
meistari við bygginguna var Sig-
urbjörn Þorsteinsson, múrara-
meistari Sigurður Hannesson,
rafvirkjameistari Tómas Sæ-
mundsson og málarameistari
Héðinn Jónasson.
F.v. Heiðar Ásgeirsson, eftirlitsm. fyrir hönd Pósts og síma með byggingunni,
Gylfi Már Jónsson, tæknifræðingur, Gísli Eyland stöðvarstjóri og Frans
Árnason, framkv.stj. Norðurverks. Fyrir framan þá eru kassar sem hafa að
geyma brot af þeim tækjabúnaði sem fer í nýju samstæðuna. Mynd: áþ.
Menningarsamtök
Norðlendinga:
Theódór
ráðinn
framkvæmda-
Menningarsamtök Norðlend-
inga sem stofnuð voru 18. júní
sl. hafa nú ráðið Theodór Júl-
íusson leikara, framkvæmda-
stjóra samtakanna. Menning-
arsamtökin eru heildarsamtök
einstaklinga og félaga sem
vinna að menningarmálum á
Norðurlandi.
Tilgangur þeirra er að efla
menningarlíf og menningarsam-
skipti á Norðurlandi.
Samtökin hafa fengið aðstöðu á
skrifstofu Fjórðungssambands
Norðlendinga að Glerárgötu 24,
Akureyri og verður starfsmaður
samtakanna á skrifstofunni
þriðjudaga og fimmtudaga kl. 17-
19 og er símanúmer hans 22453.
Theódór Júlíukson.
• Ekki
vansalaust
Á undanförnum árum hafa
menn æ meir farið að huga að
umhverfismálum. Það er ekki
langt síðan ferðafólk fleygði
rusli út um bílglugga og
mönnum þótti eðlilegt, jafnvel
fallegt að sjá plastpoka í fjör-
um landsins. Sem betur fer
hafa viðhorf manna breyst og
raddir náttúruverndarmanna
gerst háværari og það er
hlustað á þær - hitt er aftur
annað mál hvort óskir þeirra
séu allar framkvæmdar. Nátt-
úruverndarráð Akureyrar
gegnir mikilvægu hlutverki
og hafa nefndarmenn látið
ýmis mál til sín taka. Sem
dæmi má nefna að á dögun-
um ræddu þeir m.a. um sorp-
eyðingarmál og festu á blað,
að ekki sé vansalaust stóru
sveitarfélagi sem Akureyri að
fresta því að leysa sorpeyð-
ingarmál sín með því að grafa
rusl í jörð með tilheyrandi
mengun í jarðvegi og vatni og
ærnum kostnaði.
# Sorpeyðing-
arstöð
Náttúruverndarnefnd sam-
þykkti að beina því til bæjar-
stjórnar að hefja nú þegar
undirbúning að sorpeyðing-
arstöð með það fyrir augum
að unnt yrði að taka hana í
notkun innan 2ja til 3ja ára.
Nefndarmenn benda á að við
sorpbrennslu losnar mikil
orka úr læðingi og ætti að
vera einboðið að nýta hana til
upphitunar vatns fyrir Hita-
veitu Akureyrar. „Stundum
heyrist því haldið fram sem
einskonar sjálfgengnu lög-
máli að til að standa undir
rekstri slíkrar stöðvar þurfi
20.000 manna byggð. Sá
mannfjöldi býr nú þegar við
Eyjafjörð. Auk þess hljóta áð-
urgreindar forsendur að telj-
ast hæpnar þar sem t.d. Hús-
víkingar sem eru nokkru færri
hafa lengi rekið slíka stöð“,
segir í greinargerð sem Nátt-
úruverndarnefnd sendi
bæjarstjórn.
# Húðflúraður
kroppur
Reykjavík, höfuðborg
íslands, býður upp á flest það
sem hugurinn girnist. Nú ber-
ast þær fréttir að sunnan að
þar sé búið að koma á fót
„húðflúrunarstofu“ og geta
menn loksins látið skreyta á
sér kroppinn. Dagbiaðið -
Vísir birti fyrir skömmu ítar-
legt viðtal við mann nokkurn
sem hefur sérhæft sig í húð-
flúri og annan sem er búinn
að láta húðflúra sig hátt og
lágt. Það er ekki ónýtt fyrir
okkur sem í strjábýlinu búum
að geta látið skreyta okkur
næst þegar leiðin liggur til
Reykjavíkur. Bændur geta t.d.
látið húðflúra Galloway naut á
magann á sér til merkis um
áhuga á framförum í landbún-
aði og þeir sem starfa í sjávar-
útvegi geta fengið sér hring-
orm á magann.