Dagur - 17.12.1982, Síða 15
FRETTA ANNALL
ÁRSINS
1982
Akureyrardeild Ríkisútvarpsins - RÚVAK - tók til starfa á árinu.
þess að lögreglan hafi nokkra ein-
ustu möguleika á að upplýsa það,“
sagði Skúli Ágústsson hjá Höldi hf.
en á Þorláksmessu 1981 var brotist
inn hjá fyrirtækinu ogstolið pening-
um og ávísunum að verðmæti 340-
360 þúsund króna.
8. . . „Ætlunin er að opna fyrir
vorið,“ sagði Tryggvi Pálsson fram-
Björgvin heitinn Júníusson þáver-
andi framkvæmdastjóri Borgarbfós.
19. . . Tjónið sem varð þegar
Sjálfstæðishúsið brann fyrir
jólin er metið á um 4 milljónir króna.
Gunnar Ragnars stjórnarformaður
Akurs sagði að á þessu stigi væri með
öllu ómögulegt að segja nokkuð til
um framtíð hússins.
Eitt af merkari afmælisbömum ársins er Samvinnuhreyfingin á íslandi, sem varð 100 ára. Myndin sýnir forseta
íslands. Vigdísi Finnbogadóttur í ræðustól á hátíðarfundi sem fram fór að Laugum.
21. . . í mikilli frétt á forsíðu var
sagt frá því að Ferðaskrifstofa Akur-
eyrar hyggðist gangast fyrir helgar-
ferð til Kaupmannahafnar þann 25.
febrúar. Fljúga átti með Boeing þotu
frá Akureyri, koma aðeins við í Frí-
höfninni á Keflavíkurflugvelli og
síðan beint til Kaupmannahafnar.
Heimleiðis átti síðan að fljúga beint
frá Kaupmannahöfn til Akureyrar.
26. . . 73 börn frá Grenivík héldu
til Akureyrar ásamt fjórum kennur-
um til að sjá sýningu LA á „Dýrun-
um í Hálsaskógi". Ferðin varð all
söguleg því á bakaleið var vegurinn á
Svalbarðsströnd orðinn svo til ófær.
Börnin komust heim kl. 5 um nóttina
og hafði leikhúsferðin þá staðið yfir í
hálfan sólarhring.
26. . . Á sama tíma urðu um 100
manns strandglópar í Stórutjarna-
skóla. „Það er mjög oft ófært öðru
hvoru megin við skólann," sagði
skólastjórinn Sverrir Thorsteinsen."
28. . . „Fréttir bárust um ólöglega
útvarpsstöð á Akureyri. „Mér tókst
ekki að hafa upp á þeim sem stóðu
fyrir henni en þeir hafa frétt af þess-
ari eftirgrennslan því þeir tilkynntu
að þeir væru hættir að senda út,“
sagði Ársæll Magnússon umdæmis-
stjóri, Pósts og síma.
28. . . Broadway hönnuðir teikna
nýjan „Sjalla“-sagði í fyrirsögn. Þar
sagði Jón Kaldal hjá Teiknistofunni
Arkó að hann og hans mcnn væru í
startholunum og væru að búa sig
undir að teikna innréttingar í nýjan
skemmtistað á Akureyri.
Februar
Ekki fer allt eins og ætlað er og
þessi fyrsta ferð Ferðaskrifstofu Ak-
ureyrar í „beinu þotuflugi" varð all
söguleg. Farið var með rútu til Kefla-
víkur og á heimleið lent í Keflavík í
stað Akureyrar. En þetta var aðeins
byrjunin og síðan hafa margar ferðir
í „beinu þotuflugi" verið farnar og
tekist vel.
2. . . „Nú já, var ég tólfti," sagði
Jón G. Sólnes eftir forval sem fram
fór innan fulltrúaráðs Sjálfstæðis-
flokksins vegna komandi bæjar-
stjórnarkosninga. - Þetta var það
eina sem Jón G. Sólnes vildi leggja til
málanna og hann sagði ekkert um
það hvort hann myndi taka þátt í
væntanlegu prófkjöri flokksins.
2. . . Rekstrarafkoma Akureyrar-
bæjar var góð á árinu 1981 og stóðst
rekstraráætlun ársins í öllum megin-
atriðum. Helgi Bergs bæjarstjóri
upplýsti einnig að framkvæmdir á
vegum bæjarins hefðu verið meiri en
í meðalári.
9. . . „Við erum í sömu sporum og
fyrir einum áratug,“ sagði Áskell
Einarsson, framkvæmdastjóri
Fjórðungssambands Norðurlands,
um atvinnuuppbyggingu á Norður-
landi. „Atvinnutækifærum hefur
ekki fjölgað og mikill samdráttur
hefur orðið í búsetuþróun hér
norðanlands," bætti Áskell við.
9. . . Um helgina tók Ingólfur
Árnason, fyrsti maður á lista Sam-
takanna á Akureyri við síðustu kosn-
ingar, þá ákvörðun að taka þátt í
prófkjöri Alþýðuflokks og gefa kost
á sér í annað sæti listans við bæjar-
stjórnarkosningarnar í vor.
11. . . 12 starfsmenn Hitaveitu
Akureyrar lögðu fram erindi til
stjórnar fyrirtækisins þar sem þeir
óskuðu eftir því að komið yrði á fót
mötuneyti við fyrirtækið. Annað er-
indi starfsmannanna var að þeir
fengju heimild til að hafa útvarps-
tæki í bifreiðum fyrirtækisins.
16. . . í stjórnarkosningum í
Verkalýðsfélaginu Einingu hlaut A-
listi 61% greiddra atkvæða. Guð-
mundur Sæmundsson og hans fólk
beið því ósigur. „Fólk er ekki tilbúið
til byltingarkenndra aðgerða í þessu
þjóðfélagi,“ sagði Jón Helgason
formaður við þetta tækifæri.
18. . . Ingi Tryggvason, formaður
Stéttarsambands bænda, sagði að
aukin sauðfjárframleiðsla Norð-
manna gæti valdið því að íslendingar
yrðu að draga verulega saman í
framleiðslu sauðfjárafurða, og allar
líkur bentu til þess að sú staðreynd
að Norðmenn yrðu sjálfum sér nógir
um kindakjöt í framtíðinni myndi
Samantekt: Gylfi Kristjánsson
Janúar
5. . . Ekki var hún beint skemmti-
leg aðalfréttin á forsíðu 1. bls. Dags á
árinu, en hún bar yfirskriftina:
„Mörg hundruð manns missa
atvinnuna!" - Hér var um að ræða
afleiðingu af verkfalli sjómanna sem
skall á um hátíðarnar og stóð það
fram eftir mánuðinum. Fyrsti togari
ÚA sem fór á veiðar að verkfallinu
loknu var Sólbakur og lagði hann úr
höfn 18. janúar.
5. . . „Fólk gagnrýnir einræðisleg
vinnubrögð forustu Einingar,
flokkshollustu forustunnar, leiðin-
lega fundi, ofríki gagnvart deildum
félagsins, skort á upplýsingum og
fræðslu fyrir almenna félaga,
tengslaleysi forustunnar við fólkið á
vinnustöðum og sitthvað fleira,“
sagði Guðmundur Sæmundsson sem
hafði ákveðið að bjóða sig fram í
stjórnarkosningum í Verkalýðsfé-
laginu Einingu.
5. . . Dagur flutti starfsemi sína í
nýtt húsnæði að Strangötu 31, en þar
tók Dagsprent hf. einnig til starfa. Á
þessum tímamótum fluttist gerð
blaðsins undir eitt þak og um leið var
útkomudögum blaðsins fjölgað úr
tveimur í þrjá í viku hverri.
5. . . „Það er ekki hægt að sitja
undir því að stela svona frá manni án
kvæmdastjóri Smárans sem byggði
verslunarmiðstöðina í Glerárhverfi.
8... „FlakkarinnheitirnúSjávar-
borg,“ sagði í fyrirsögn og var þar
skýrt frá því að „Flakkarinn" marg-
frægi hefði verið seldur fyrirtækinu
„Sjávarborg" í Sandgerði.
14. . . Matvandur þjófur braust
inn í frystihólf í Frystihúsi KEA og
stal hann aðallega hangikjöti. Hirti'
hann alla bestu bitana en skildi eftir
hækla, rif og þess háttar.
19. . . Starfsmenn iðnaðarráð-
herra sem fengu til umfjöllunar síð-
ustu skýrslurnar frá Sauðkrækingum
og Jarðefnaiðnaði hf. í Þorlákshöfn
hafa komist að þeirri niðurstöðu að
lítil verksmiðja eins og Sauðkræk-
ingar ætla að reisa sé mun hagkvæm-
ari en sú sem Jarðefnaiðnaður vill
koma upp á Suðurlandt. - Þegar
þarna var komið sögu var „boltinn
hjá iðnaðarráðherra".
19. . . „Allinn skemmtistaður á
ný?“ sagði í fyrirsögn. Sagði í frétt-
inni að Sigurður Sigurðsson (Siggi í
Sjallanum) og Júníus Björgvinsson
hyggðust taka Alþýðuhúsið á leigu
og setja þar upp skemmtistað. Er
skemmst frá því að segja að það var
gert og brúaði Allinn bilið fyrir dans-
þyrsta bæjarbúa þar til nýi Sjallinn
komst í gagnið.
19. . . „Aðsóknin hefur farið
minnkandi síðan þetta vfdeó-æði
greip um sig, ég held að það megi
kenna því um,“ sagði OddurThorar-
ensen framkvæmdastjóri Nýja-bíós
á Akureyri. „Jú, aðsóknin hefur far-
ið minnkandi og það er sjálfsagt
margt sem spilar þar inní,“ sagði
17. desember 1982 - DAGUR -15