Dagur - 19.10.1983, Qupperneq 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
66. árgangur
Akureyri, miðvikudagur 19. október 1983
117. tölublað
Enn óvíst um loðnu-
veiðarnar í haust
Víða er nú verið að gera
loðnuveiðiskipin klár á veiðar
en vonir standa til að hægt
verði að veiða einhverja loðnu
í haust. Ræðst það af niður-
stöðum rannsóknarleiðangurs
sem rannsóknarskipið Bjarni
Sæmundsson er í þessa dag-
ana.
Bjarni Sæmundsson kom inn
til Akureyrar um helgina og þeg-
ar rætt var við fiskifræðinga sem
taka þátt í leiðangrinum vildu
þeir ekkert láta hafa eftir sér um
það hvort hugsanlegt er að
stunda einhverjar loðnuveiðar á
þessu ári. E»eir sögðu að enn ætti
eftir að kanna miðin úti fyrir
Norðvestur- og Vesturlandi og
því of snemmt að segja til um það
að svo stöddu.
Þó var helst að heyra að ekki
hefði loðnustofninn vaxið svo um
munaði. Ástandið væri að líkind-
um heldur betra en í fyrra, en
ekki svo að ástæða væri til að
hrópa húrra fyrir.
Eins og áður sagði er nú verið
að gera loðnuskipin tilbúin á
veiðarnar, í krafti vonarinnar,
því útlitið virðist ekkert allt of
gott eftir því sem næst verður
komist.
Ráðherra
vel tekið
Fimm daga heimsókna- og
fundaferð Halldórs Ásgríms-
sonar, sjávarútvegsráðherra
um Norðurland lauk á Húsavík
á mánudag. Var sjávarútvegs-
ráðherra hvarvetna mjög vel
tekið og töldu heimamenn og
hagsmunaaðilar í sjávarútvegi
á hverjum stað, þessa ferð
mjög þarft framtak.
Ferð sjávarútvegsráðherra
hófst á Siglufirði sl. fimmtudag
en sama dag heimsótti ráðherra
einnig fiskvinnslufyrirtæki á
Hofsósi og fundaði með hags-
munaaðilum í sjávarútvegi.
Fundur var á Sauðárkróki og
fiskvinnslufyrirtæki á Króknum,
Blönduósi , Skagaströnd,
Hvammstanga, Vopnafirði og
Bakkafirði heimsótt. Fundur var
fyrir troðfullu húsi á Þórshöfn og
farið var til Kópaskers og Rauf-
arhafnar. Á Húsavík var Fisk-
iðjusamlag Húsavíkur skoðað,
en þar er meðfylgjandi mynd ein-
mitt tekin er Tryggvi Finnsson
sýndi ráðherra framleiðsluna og
um kvöldið var haldinn almennur
fundur í félagsheimilinu.
Árviss vandamál í vetrarflugi:
Verður morgunfluginu til
Akureyrar seinkað?
- Það eru að skapast núna
somu vandamál og við áttum
við að etja sl. vetur, varðandi
morgunflugið til Ákureyrar.
Upplýsingar um brautarskil-
yrði liggja ekki fyrir fyrr en
rétt fyrir átta og þá er of seint
að láta farþega vita símleiðis.
Ef ekki fæst breyting á þessu
þá verðum við líklega að grípa
til þess ráðs að seinka fluginu.
Þetta sagði Sæmundur Guð-
vinsson, fréttafulltrúi Flugleiða í
samtali við Dag en Sæmundur
sagði jafnframt að Flugleiðir
hefðu farið þess margsinnis á leit
við flugmálastjórn að vinna hæf-
ist fyrr á morgnana við Akureyr-
arflugvöll. Starfsmenn við braut-
arhreinsun hefja nú störf kl. 7.30
og sagði Sæmundur það of seint
með tilliti til upplýsinga um
brautarskilyrði.
- Akureyrarvélin er á áætlun
kl. 8.00 vegna eindreginna óska
Akureyringa en ef ekki fæst bót
á þessum vanda bráðlega þá er
ekki um annað að ræða en
seinka fluginu um 15 mínútur til
hálftíma, sagði Sæmundur Guð-
vinsson.
Hjá Rúnari Sigmundssyni,
flugvallarstjóra á Akureyri feng-
ust þær upplýsingar að það væri
rétt að Flugleiðir hefðu vakið
máls á þessu nokkrum sinnum.
Það væri einnig rétt að nokkrum
sinnum hefðu skapast vandamál
vegna brautarskilyrða en þá væru
starfsmenn við brautarhreinsun
yfirleitt búnir að hreinsa brautina
löngu áður en Flugleiðavélin
lenti.
- Starfsmenn í flugturni mæta
til vinnu klukkan 7.00 og þeir
hafa yfirleitt séð um að koma
upplýsingum um brautarskilyrði
suður til Reykjavíkur. Flugvall-
arverðir mæta svo hálftíma
seinna og það er aðeins þegar
brautarskilyrði snöggversna að
þetta hefur haft óþægindi { för
með sér fyrir farþega Flugleiða,
sagði Rúnar Sigmundsson og
bætti því við að það væri einkum
tvennt sem komið hefði í veg
fyrir að farið hefði verið að ósk-
um Flugleiða. Annars vegar væri
um það að ræða að starfsmenn
væru mótfallnir því að mæta fyrr
m.a. vegna mikils vinnuálags og
mikillar yfirvinnu og hins vegar
vegna þess að breytt fyrirkomlag
myndi hafa mikla útgjaldaaukn-
ingu í för með sér fyrir flugmála-
stjórn. Fjárveitingar væru naum-
ar fyrir, þó ekki væri verið að
auka útgjöldin á þennan hátt.
Leiktækjasalir:
Fá íþrótta-
m r | ■* m
felogin
einka-
rétt?
íþróttafélögin KA og Þór
hafa sótt um leyfí til bæjar-
ráös Akureyrar til að reka
leiktækjastofur. Jafnframt
hafa félögin óskað eftir því,
að aðrir fái ekki leyfí til slíks
reksturs.
Líklegt er að umsókn félaganna
fái jákvæða afgreiðslu, því meiri-
hluti bæjarstjórnar hefur sam-
þykkt ályktun þess efnis, að
íþrótta- og æskulýðsfélög fái
einkarétt á rekstri leiktækja í
bænum. Það kemur fram í um-
sókn félaganna, að hugmyndir
þeirra eru ekki fastmótaðar um
fyrirkomulag á rekstrinum, en
þau lýsa sig reiðubúin til við-
ræðna við bæjaryfirvöld um það
mál. Bæjarráð hefur ekki afgreitt
umsóknirnar formlega.
Tveir einstaklingar, þeir Bjarki
Tryggvason og Magnús Kjartans-
son, hafa sótt um leyfi til að reka
leiktækjastofur. í samræmi við
áðurnefnda ályktun bæjarstjórn-
ar og umsókn íþróttafélaganna
ákvað meirihluti bæjarráðs að
hafna þessum umsóknum.
600
íbúðir
í Gilja-
hverfi
bls.8