Dagur - 19.10.1983, Page 4
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SlMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 130 Á MÁNUÐI - LAUSASÖLUVERÐ 18 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARM.: HERMANN SVEINBJÓRNSSON
FRÉTTASTJÓRI: GlSLI SIGURGEIRSSON
BLAÐAMENN: EIRlKUR ST. EIRlKSSON, GYLFI KRISTJÁNSSON,
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Til mikils að vinna
í lok stefnuræðu forsætisráðherra í gærkvöld
sagði Steingrímur Hermannsson m.a.:
„Við íslendingar verðum að vinna okkur út
úr þeim erfiðleikum sem íslenskt efnahagslíf
á nú við að stríða, með aukinni framleiðslu og
hagvexti, en án þess að til verðbólgu komi að
nýju. í því skyni mun ríkisstjórnin leggja
áherslu á hagkvæma fjárfestingu og hagræð-
ingu á öllum sviðum, bæði hins opinbera og
atvinnuveganna. Ríkisstjórnin mun kapp-
kosta að styðja nýjar og álitlegar framleiðslu-
greinar, bæði stórar og smáar.
í þessu sambandi verður að sjálfsögðu fyrst
og fremst byggt á framtaki einstaklinganna,
sem við eðlilegar aðstæður í efnahagslífi eiga
að geta gert öruggari áætlanir en verið hefur.
Lögð verður áhersla á að virkja rannsókna- og
þjónustustofnanir hins opinbera til þess að
veita þá þjónustu, sem þær mega í þessu
sambandi.
Þegar ríkisstjórnin tók við völdum blasti við
stöðvun atvinnuvega og atvinnuleysi og
reyndar var sjálft efnahagslegt sjálfstæði
þjóðarinnar í mikilli hættu vegna hraðvaxandi
verðbólgu og erlendrar skuldasöfnunar. Með
róttækum og samstilltum aðgerðum hefur
tekist að bjarga þjóðinni frá þeim voða.
Vegna mjög erfiðrar stöðu atvinnuveganna
eftir verðbólgu undanfarinna ára hafa laun-
þegar orðið að bera miklar byrðar af þessu
átaki. Enda má segja að þeir hafi ekki síst átt
til mikils að vinna — atvinnuöryggis.
Mikill árangur hefur náðst. Verðbólgan
mun í lok ársins verða komin niður fyrir 30 af
hundraði, fjármagnskostnaður fer ört lækk-
andi, atvinnuvegirnir eru alltraustir og
atvinna næg. Þannig hefur verið brotið blað í
íslensku efnahagslífi.
Með staðfestu og aðgæslu á næsta ári má
tryggja þann mikla árangur sem hefur náðst
og koma verðbólgunni niður undir það sem er
í helstu viðskiptalöndum okkar. Til þess að
það megi takast hefur ríkisstjórnin mótað
nýja stefnu í efnahagsmálum með því að
ákveða umgjörð, sem aðilum vinnumarkaðar-
ins og atvinnuvegunum og einstaklingunum
er ætlað að starfa innan án íhlutunar ríkis-
valdsins.
Því verður aldrei neitað að fyrir þjóð sem
svo mjög er háð óviðráðanlegum duttlungum
náttúrunnar og þróun efnahagsmála í um-
heiminum sem við íslendingar, geta ætíð ver-
ið hættur á næsta leiti. Til þess að geta brugð-
ist við slíku og tryggt lífskjörin er nauðsyn-
legt að efnahagslífið sé heilbrigt og markvisst
að því unnið að auka framleiðsluna og hag-
vöxtinn.
Þannig verða lífskjörin og mannlífið sjálft
bætt, því að auður þessa lands og hugvit ein-
staklinganna er næsta óþrjótandi og ber ríku-
legan ávöxt, ef rétt skilyrði eru sköpuð."
Aðalfundur Sambands íslenskra loðdýraræktenda:
Mikill uppgangur
í loðdýrarækt
- þrátt fyrir erfiðleika í rekstrinum
Aðalfundur Sambands ís-
lenskra loðdýraræktenda var
haldinn á Akureyri á laugar-
dag. Á fundinum voru stofnuð
ný sölusamtök loðdýrarækt-
enda, sem hlotið hafa nafnið
Hagfeldur, en tilgangur þeirra
er að annast útflutning og sölu
á afurðum loðdýra og útvega
hvers kyns rekstrarvörur til
loðdýraræktar. Á fundinum
kom fram að rekstur loðdýra-
búa gengur erfiðlega, en engu
að síður er mjög mikill upp-
gangur í greininni. Nú eru 89
loðdýrabú á landinu og reikn-
að er með að um 30 ný bú hefji
starfsemi í vetur.
Jón Ragnar Björnsson, fram-
kvæmdastjóri Sambands ís-
lenskra loðdýraræktenda sagði í
viðtali við Dag að rekstur loð-
dýrabúanna hefði verið erfiður á
síðasta ári og samkeppnin við er-
lenda aðila spilaði þar inn í. Rætt
hefur verið um nauðsyn þess að
létta álögum af þessari grein til að
gera hana samkeppnisfærari, þ.e.
aðflutningsgjöldum og söluskatti.
Flest refabúin eru lítil og tiltölu-
lega nýtekin til starfa og hefur
það sitt að segja. Fyrsta refabúið
var stofnað í desember 1979 en
nú eru þau orðin 81 talsins.
Blönduð refa- og minkabú eru 5
og hrein minkabú eru 3 talsins.
Talið er að um 29 ársverk séu í
refaræktinni og 11-12 í minka-
rækt, auk þess sem tvöfalda má
þessa tölu þegar mið er tekið af
ýmiss konar þjónustu í sambandi
við loðdýraræktina og skinna-
verkuninni.
Nú eru um 4300 refalæður í
landinu og 6500 minkalæður.
Milli 22 og 23 þúsund refaskinn
verða seld í ár og svipaður fjöldi
Jón Ragnar Bjömsson.
minkaskinna. Ekki er þetta stórt
hlutfall af heimsmarkaði fyrir
skinn, sem er talinn um 3 milljón-
ir refaskinna og 29 milljón
minkaskinn. Sjúkdómur hefur
herjað á minkastofninn og hefur
stofninn verið endurnýjaður í
minkabúinu á Sauðárkróki og
talið er nauðsynlegt að endurnýja
hann einnig á öðrum búum. Talið
er að það kosti um 7 milljónir
króna að útrýma veikinni í búun-
um á Dalvík og Grenivík. Sjúk-
dómur þessi heitir plasmacytose
og í einni af samþykktum fundar-
ins var lögð áhersla á nauðsyn
þess að útrýma þessum sjúkdómi
með því að fá nýjan heilbrigðan
stofn.
Talsvert var rætt um fóðurmál-
in. Þau eru talin mjög mikilvægur
þáttur loðdýraræktinni og sam-
þykkt var ályktun um að við veit-
ingu leyfa til loðdýraræktunar
verði tekið tillit til möguleika á
fóðuröflun. Jón Ragnar Björns-
son sagði að nú væri fóður bland-
að í 18 stöðvum, sumum mjög
litlum, allt niður í það að annast
fóðurblöndun fyrir eitt bú. Sagði
Jón Ragnar að engin framtíð væri
í því og nauðsynlegt væri að hafa
stærri og hagkvæmari fóður-
stöðvar. Með því að efla loðdýra-
rækt á ákveðnum svæðum mætti
sameinast um fóðureldhús og
þannig spara verulega í fjárfest-
ingu. Hefði jafnvel verið talað
um að 6 fóðurstöðvar nægðu
miðað við þá dreifingu sem nú er
á loðdýraræktinni um landið.
Loðdýrarækt er aðallega
stunduð á sex svæðum, en þau
eru á Suðurlandi, þ.e. í Gull-
bringu-, Kjósar-, Árnes- og
Rangárvallasýslu, Skagafirði og
A-Húnavatnssýslu, við Eyja-
fjörð, í S-Þingeyjarsýslu, Vopna-
firði og á Héraðí. Talað hefur
verið um að ein stöð nægði fyrir
hvert þessara svæða. Að vísu eru
fleiri svæði að bætast við, því
Borgfirðingar hefja refarækt í
haust og Önfirðingar á næsta ári.
í samþykkt fundarins var lögð
áhersla á að við uppbyggingu loð-
dýraræktar yrði auknu fé veitt til
lána vegna fóðurstöðva. Þá var
einnig samþykkt ályktun varð-
andi ráðunautaþjónustu.
í stórn sambandsins voru kosn-
ir Einar Gíslason, Emil Sigur-
jónsson, Haukur Halldórsson,
Jónas Jónsson og Þorsteinn
Aðalsteinsson. Varamenn þeirra
hvers um sig eru Gísli Pálsson,
Guðjón Jónsson, Arvid Kro,
Ágúst Gíslason og Jósep Rosen-
kransson. Formaður sambands-
ins er Haukur Halldórsson í
Sveinbj arnargerði.
Þess má geta að framleiðslu-
verðmæti loðdýraræktar á þessu
ári nemur hátt í 40 milljónum
króna.
Frá aðalfundi S.Í.L.
Myndir: H.Sv.
4 - DÁGUR - Vð. október T983