Dagur - 28.10.1983, Qupperneq 20
Akureyri, föstudagur 28. október 1983
í Smiðjunni um helgina:
Gunnar Gunnarsson, píanóleikari og
Örn Viðar Eriendsson, gítarieikari,
skemmta matargestum okkar um þessa og næstu helgar.
Illlltlfilffl
Lítill akkur í að selja
þeim sem ekkí geta borgað
Fimm tObod bárust í togarann Hafþór, það hæsta frá Siglufirði
Þormóður rammi hf. á Siglu-
firði var með hæsta tilboðið
í Hafþór, togara Hafrann-
sóknarstofnunarinnar, sem
ákveðið hefur verið að selja.
Tilboð Siglfirðinganna
hljóðaði upp á um 100
m.kr., en lægsta tilboðið var
frá Útgerðarfélagi Akureyr-
inga, upp á 45 m.kr. Slipp-
stöðin var með þriðja hæsta
tilboðið upp á 65 m.kr.
Sigurður P. Sigmundsson, full-
trúi hjá Sjávarútvegsráðuneyt-
inu, vildi ekki gefa upp hvað hver
og einn bjóðandi byði. - Tölurn-
ar segja ekki allt, því það er svo
margt sem hangir á spýtunni í
þessum tilboðum, sagði Sigurð-
ur. Tveir aðilar vilja t.d. að ríkis-
sjóður taki önnur skip upp í og
aðrir vilja að skipið verði málað
og þetta og þetta vel búið
tækjum. Auk þess þurfum við að
meta stöðu þessara fyrirtækja
sem bjóða. Það er ekki víst að
hæstbjóðandi verði fyrir valinu,
því sé fjárhagsstaða hans erfið,
eða litlar líkur séu til þess að hann
geti staðið við skuldbindingar um
kaup á Hafþóri, þá er lítill akkur
í að selja honum skipið. En til-
boðin verða skoðuð rækilega og
rætt við bjóðendur. Pað ætti að
liggja fyrir eftir tvær vikur hvaða
tilboði verður tekið, sagði Sig-
urður.
Alls voru tilboðin fimm. Frá
Pormóði ramma upp á um 100
m.kr. og næsthæst er tilboð frá
Heimi hf. í Keflavík, sem vilja
leggja 20 ára gamlan norskan bát
upp í kaupverðið. Slippstöðin
býður 64 m.kr. og Höfði hf. á
Húsavík vill skipta á togaranum
Júlíusi Havsteen og Hafþóri.
Nánar er fjallað um tilboðin á
bls. 2 í blaðinu í dag.
Sauðárkrókur:
Ahugí
á að
vinna
rækju
„Það hafa landað hér tveir
rækjubátar í allt sumar og afla
þeirra hefur verið ekið til
Keflavíkur. Menn halda því að
rækjuvinnsla hljóti að gefa vel
í aðra hönd fyrst hægt er að
greiða þennan flutningskostn-
að,“ sagði Þorbjörn Arnason
bæjarfulltrúi á Sauðárkróki í
viðtali við Dag.
- Porbjörn sagði að það væri í
athugun að fara að vinna rækju á
Sauðárkróki, en verulegur áhugi
væri á því. „Ég þori samt ekki að
segja til um hvenær af því gæti
orðið, það eru fiskverkendur hér
á staðnum sem eru að huga að
þessu máli, en það er því miður
enginn bátur til af þeirri stærð
hér eins og er sem myndi henta til
þessara veiða," sagði hann.
- Björn Níelsson á Hofsósi
hefur leyfi til skelvinnslu í Skaga-
firði og hefur hann í hyggju að
byggja við húsnæði sitt á Hofsósi
til þess að geta hafið vinnslu á
skelfisk þar.
Unnið er af fullum krafti að niðurlagningu á gaffalbitum hjá Siglósfld þessa dagana
Grænhöfða
sjósett á
mánudag
*
- Forsetar Islands og
Grænhöfðaeyja viðstaddir
Yigdís Finnbogadóttir, forseti
Islands og forseti Cap Verde,
Aristides Maria Pereira, ásamt
Carlinu forsetafrú og föru-
neyti, koma til Akureyrar kl.
9.30 á mánudagsmorguninn
með flugvél Landhelgisgæsl-
unnar.
Með forsetunum verða ráð-
herrar og ýmsir háttsettir em-
bættismenn beggja landanna.
Eftir komuna til Akureyrar fara
gestirnir og skoða frystihús Út-
gerðarfélags Akureyringa hf. og
Sambandsverksmiðjurnar. Síðan
verður hádegisverður i Sjallanum
í boði bæjarstjórnar Akureyrar.
Kl. 14.30 hefst athöfn í Slipp-
stöðinni. Par verður skipi gefið
nafn, sem verið er að smíða fyrir
Þróunarsamvinnusjóð íslands og
á að fara til Cap Verde. Þegar
báturinn hefur fengið nafn verð-
ur hann sjósettur. Eftir að gest-
irnir hafa skoðað skipið halda
þeir aftur til Reykjavíkur kl.
16.45. Bæjarbúar eru velkomnir
til athafnarinnar í Slippstöðinni.
lilfiillil
i ; ' ^ ' í
Veður
„Það er gert ráð fyrir um-
hleypingasömu veðri á
Norðurlandi um helgina,“
sagði Trausti Jónsson
veðurfræðingur í morgun.
„Það verður aðallega
sunnan- og vestanátt þannig
að það verður að mestu
þurrt og þíða hjá ykkur.
Hins vegar gerir einhverja
úrkomu öðru hvoru stutta
stund í einu og þá rigningu
og verður hvasst. Það verða
umhleypingar, það má í
sjálfu sér eiga von á hverju
sem er þó það verði í aðalat-
riðum svona.“
k.
Sérfræðingar á staðnum.
dömutöskur,
margar gerðir.
Kuldaúlpur,
allar stærðt.
ERGEE kuldavettlingar
og húfur i núklu úrvali,
einnig sokkabuxur.
cy