Dagur - 17.02.1984, Qupperneq 16
Akureyri, föstudagur 17. febrúar 1984
Bautinn - Smiðjan
Nú er hver að verða síðastur,
að fá sér þorramat
Eigum borð í Smiðju á föstudag, en fullbókað í báða tíma á laugard.
Fasteignaviðskipti á Akureyri:
Minni útborgun
og lengri lánstími
— 50-60% út og verðtryggðar
eftírstöðvar tíl allt að 8 ára
„Við verðum ekki varir við að
fólk sé að flytja úr bænum svo
neinu nemi og ég veit dæmi um
þveröfugt. Ég held að fólk álíti
það ástand sem nú er hér í at-
vinnumálum tímabundið og að
það eigi eftir að lagast aftur,“
sagði Hermann R. Jónsson,
fasteignasali, í viðtali við Dag,
en sú stétt manna verður hvað
fyrst vör við hreyfíngu á fólki.
„Töluverð hreyfing er nú í sölu
íbúða. Yfirleitt er rólegast í des-
ember og janúar og sú sala sem
nú er hafin virðist ekki minni en
undanfarin ár. Léttast gengur að
selja minni íbúðir og sala raðhúsa
með bílskúr gengur einnig mjög
vel. Þá má geta þess að breyting
er að verða á hvað varðar útborg-
un. Nú er mun meira um það en
áður að útborgun sé lægri, 50-
60% og eftirstöðvar verðtryggðar
til allt að 8 ára. Fólk virðist frek-
ar vilja verðtrygginguna og nú er
það af sem áður var, að verð-
tryggðar eftirstöðvar lækki heild-
arverð íbúðarinnar. Þegar óða-
verðbólgan geysaði og fólk seldi
með föstum vöxtum var íbúða-
verðið gjarnan haft hærra en þeg-
ar eftirstöðvar voru verðtryggð-
ar, til að vega upp afföllin.
Skuldabréfavextir eru nú 21% og
stendur til að lækka þá um 3%
þann 21. febrúar. Þá er staðan
orðin sú að þeir sem keyptu með
20% vöxtum á eftirstöðvum fyrir
nokkrum árum eru komnir með
það sem sumir myndu nefna ok-
urvexti. Ein leið fólks til að kom-
ast út úr þessu er að reyna að fá
hagstæðari lán og greiða hin eldri
upp,“ sagði Hermann að lokum.
Þaö er ekki alveg laust við aö Ragnheiður Tryggvadóttir leikari sé
komin með frumsýningarskrekk þegar þessi mynd var tekin rétt fyr-
ir frumsýningu á „Súkkulaði handa Silju“ í Sjallanum í gærkvöldi.
Mynd: KGA.
„Flytjum ekkí út vörn
sem ekkert fæst fyrir“
- segir Haraldur Gíslason mjólkursamlagsstjóri á Húsavík
um ofiframleidslu á mjólk og útflutning á ostum
„Ef við verðum með 110-115
milljón lítra mjólkurfram-
Ieiðslu á árinu 1984 þá er ekk-
ert annað en bullandi útflutn-
ingur á verðlausum osti fram-
undan og það eiga mjólkur-
framleiðendur, mjólkurbús-
stjórar, kaupfélagsstjórar og
hvað þú vilt kalla þá, að láta
sig varða,“ sagði Haraldur
Gísalson mjólkurbússtjóri
Kaupfélags Þingeyinga á
Húsavík er við ræddum við
hann í vikunni.
í nýútkomnu fréttabréfi land-
búnaðarins kemur fram að í
janúar sl. tóku mjólkursamlögin
á móti tæplega 7,7 milljónum
lítra af mjólk en það er 7.37%
aukning frá janúar 1983. Að
magni til varð þessi aukning mest
hjá Mjólkurbúi Flóamanna á
Selfossi, á Akureyri og í Borg-
arnesi. Þar kemur einnig fram að
hjá 6 mjólkurbúum var tekið á
móti minni mjólk í janúar nú en
í sama mánuði 1983 og mestur
varð samdrátturinn á Húsavík 36
þúsund lítrar eða 8-9%.
„Það sem er að gerast er að
stór bú eins og t.d. á Akureyri og
á Sauðárkróki eru með meiri
SSfgæSl
mjólk en í fyrra. Mér finnst það
ljót latína að aukningin í janúar
núna frá janúar 1983 skuli vera
91 þúsund lítrar á Akureyri,"
sagði Haraldur. „Meðalbóndi í
Eyjafirði var fyrir nokkru
með 80-90 þúsund lítra þegar
meðalbóndi hér var með innan
við 40 þúsund lítra og landsmeð-
altalið var 50-60 þúsund lítrar.
Það er bara verið að framleiða
mjólk fyrir okurfé til útflutnings
fyrir ekkert. Það var fluttur út
ostur úr tæplega 5 milljón lítrum
á sl. ári. Menn verða að fara að
hugsa áður en þetta endar með
skelfingu, það er ekki hægt að
halda útflutningi áfram á vöru
sem ekkert fæst fyrir.
Þetta er bara staðreynd og ef
stærstu mjólkurframleiðendur í
landinu sjá ekki sóma sinn í því
að vera með í því að halda mjólk-
inni niðri þá er voðinn vís.“
- Eru skipulagðar aðgerðir
hjá ykkur sem valda því að sam-
drátturinn er mestur hjá ykkur?
„Ég aðvaraði bændur í haust
með bréfi sem ég skrifaði þeim
og benti þeim á afleiðingarnar ef
hér yrði áfram umframfram-
leiðsla eins og var því miður á
síðasta ári,“ sagði Haraldur.
Yerdur
útsvarið
10,7%
I morgun var fundur í bæjar-
ráði Akureyrar þar sem m.a.
var rætt um útsvarsálagningu.
Þegar blaðið fór í prentun
hafði ekki fengist niðurstaða í
málinu, en samkvæmt þeim
heimildum sem Dagur hefur
aflað sér hefur verið rætt um
að útsvarsálagningin verði
10,7% og jafnvel hefur verið
rætt um 10,6% álagningu á
þessu ári.
Ef af þessu verður lækkar út-
svarið um hvorki meira né minna
en 1,4 eða 1,5 prósentustig, þ.e.
úr 12,1%. Þetta mun þá verða
mesta útsvarslækkun hjá sveitar-
félagi sem vitað er um. Mörg
þeirra fara niður í 11% útsvar,
s.s. Dalvík og Húsavík. Útsvars-
lækkunin er ákaflega mismun-
andi hjá sveitarfélögum, eða allt
frá því að vera óbreytt og yfir í
1,1 prósentustiga lækkun. - HS.
Útburðaimálið:
Fjölskyldan
er flutt út
í dag rennur út sá frestur sem
hjónunum Danielle Somers og
Olafí Rafni Jónssyni var gefínn
til að rýma íbúð sína að Þing-
vallastræti 22.
Að sögn Ólafs Rafns Jónsson-
ar þá eru þau þegar flutt í góða
íbúð úti í Glerárhverfi og Ólafur
Rafn sagðist myndi skýra full-
trúa fógeta frá því í dag að þau
hefðu staðið við sinn hluta af
samkomulaginu sem gert var fyr-
ir réttum mánuði.
- Ég mun skýra fulltrúa frá
því að við hyggjumst nota íbúð-
ina sem nokkurs konar biðskýli
fyrir börn okkar á leiðinni til og
frá skóla og eins mun Morgun-
blaðið sem einn sona minna ber
út í hverfið, berast þangað
áfram. Þá íhuga ég einnig að hafa
þar skrifstofu, sagði Ólafur Rafn
Jónsson.
Varðandi framtíðina sagðist
Ólafur bara láta þetta mál haú
sinn gang og hann myndi oíða
niðurstöðu Mannréttindadóm-
stólsins. - ESE.
Veður
Það verður blíðskaparveður
áfram á Norðurlandi sam-
kvæmt þeim upplýsingum
sem við fengum á Veður-
stofu íslands í morgun.
Hæg suðlæg átt, bjart
með köflum og hitastig
verður í kringum núllið.
Vægt frost á nóttunni en
hlýrra á daginn. Þurrt.
Nýjar vörur
frá POP húsínu
Gallar m/bakvösum
Buxur m/uppábroti
Dior jakkar 3 gerðir
Pils 3 gerðir Skokkar 2 gerðir
Buxur 2 gerðir Kjólar
YÖRUR í SÉRFLOKKI
ÆSnTSSl