Dagur - 02.03.1984, Qupperneq 4
4 - DAGUR - 2. mars 1984
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SlMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 130 Á MÁNUÐI -
LAUSASÖLUVERÐ 18 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI: GlSLI SIGURGEIRSSON
BLAÐAMENN:
EIRlKUR ST. EIRlKSSON OG GYLFI KRISTJÁNSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI: 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
„Frá 1970-1979 óx mannfjöldi
á Norðurlandi örlítið yfir
landsmeðaltali, sem ekki
hafði gerst áður á þessari öld.
Einnig jukust meðaltekjur og
atvinna á Norðurlandi meira
en á landinu öllu. Þrátt fyrir
þessar framfarir að undan-
förnu, er ekki útlit fyrft nema
mjög takmarkaðan hagvöxt
á svæðinu á næstu árum án
sérstakra aðgerða. Orsakast
það af því, að fyrirsjáanlegt
er að mun minni vöxtur verð-
ur í framtíðinni í þeim þrem
greinum sem mest hafa vaxið
frá 1970. Slæmt ástand fiski-
stofna og fyrirsjáanleg fram-
leiðniaukning í frystihúsum
leyfir vart meiri vöxt mann-
afla, auk þess sem erfitt er að
fá íslenskt vinnuafl til að taka
að sér þessi störf. Sauma- og
prjónastofur eru þegar taldar
of margar og miklir erfiðleikar
eru í rekstri þeirra, sem ekki
er víst að leysist þannig að
þeim geti fjölgað. Að auki er
Skúffuáœtlun
offramleiðsla í landbúnaðar-
afurðum. “
Tilvitnunin hér að framan
er tekin úr erindi um iðnþró-
unaráætlun fyrir Norðurland,
sem flutt var á Fjórðungs-
þingi Norðlendinga á Akur-
eyri haustið 1980. Mikil vinna
var lögð í þessa iðnþróunar-
áætlun, en því miður virðist
hún hafa verið geymd í
skúffu síðan hún var gerð. Ef
til vill vegna þess, að höfund-
ar áætlunarinnar gerðu það
að tillögu sinni að Byggða-
sjóður veitti árlega milljónum
króna til iðnaðar á Norður-
landi á árunum 1980-1983.
Jafnframt var gert ráð fyrir að
dregið yrði úr lánum til sjáv-
arútvegs á Norðurlandi sem
þessari aukningu næmi, þar
sem þar væri ekki fyrirsjáan-
leg atvinnuaukning.
Ýmislegt athyglisvert kem-
ur fram í þessari iðnþróunar-
áætlun, m.a. er þar að finna
mannaflaspá fyrir Norður-
land fram til 1983. Þar kom
fram, að skapa þyrfti um 100
ný atvinnutækifæri árlega,
árin 1980-1983, þannig að all-
ir gætu haft næga atvinnu.
Þrátt fyrir það var búið að
gera ráð fyrir aukningu í þeim
atvinnugreinum sem fyrir
eru, þar á meðal iðnaði. Þess
vegna töldu sérfræðingar
byggðadeildar Framkvæmda-
stofnunar ríkisins nauðsyn-
legt að stórefla iðnþróun á
Norðurlandi. Þetta voru orð í
tíma töluð þá, en því miður
var þeim ekki nægjanlega
sinnt, frekar en öðrum orðum
í líka veru. Af því súpa Norð-
lendingar seyðið nú.
Enn er ekki of seint að
bæta skaðann og nú er útlit
fyrir bjartari tíð í íslensku
þjóðlífi. Það eykur á bjartsýni
athafnamanna og eykur þor
þeirra og þrótt til átaka í nýj-
um atvinnugreinum. Til
slíkra verka þurfa þeir allan
þann stuðning samfélagsins
sem hægt er að veita. Ýmsir
kostir eru til. Víða leynast
möguleikar á frekari úr-
vinnslu landbúnaðar- og
sjávarafurða, hráefna sem
oftast er fleygt í dag. Einnig
munu vera talsverðir mögu-
leikar á jarðefnaiðnaði, t.d. í
Suður-Þingeyjarsýslu, og
ýmsar leiðir í orkufrekum iðn-
aði hafa verið ræddar. Allar
hugmyndir þarf að vega og
meta, en engum atvinnu-
skapandi kostum má kasta
frá sér að óathuguðu máli.
—GS.
Úlfar Hauksson.
Nissan Patrol Station
Wagon; 7 manna; 4 dyra
með afturhlera; byggður
á grind; drif á ölum
hjólum; hátt og lágt drif;
4ra gíra gírkassi; sjálf-
virkar framdrifslokur;
diskabremsur aðframan
skálar að aftan; 6
strokka dieselvél; 3.246
cm3; 100 hö (sae) við
4000 sntmín; 22 kgm við
1800 snlmín; hámarks-
hraði 120 km/klst; drif-
hlutfall 4.625; ZF
vökvastýri.
Lengd 465,5 cm; breidd
169 cm; hœð 180 cm;
hjólahaf 297 cm; þyngd
1850 kg;fríhœð 21,5 cm.
Verð ca. 710.000; gengi
20.01.84.
Innflytjandi: Ingvar
Helgason.
Umboð: Bifreiðaverk-
stœði Sigurðar Valdi-
marssonar Óseyri 5a
Akureyri.
Stór og
stœði-
legur
Gripið í stýrið á Nissan Patrol
ari hæggengu dieselvél. í bílnum
er 24 volta rafkerfi og hann er
búinn margvíslegum búnaði.
Nissan Patrol Station Wagon
er „vinnubíll“ fyrir þá sem þurfa
mikið pláss og mikla burðargetu
(fáanlegur sem „van“ með meiri
burðargetu) en eru til með að
fórna einhverju af þægindum í
staðinn.
Á dögunum gafst „bíldárum"
Dags kostur á að grípa í einn af
hinum mörgu jeppum sem birst
hafa hér á síðustu árum. Petta
var Nissan Patrol Station Wagon
sem er jeppi af stærri gerðinni,
álíka stór og Jeep Wagoneer og
Toyota Land Cruiser Station.
Nissan Patrol Station Wagon
er 4 dyra 7 sæta skutbíll með tví-
skiptum afturhlera. Bíllinn er
sterklegur að sjá, virðist ekki við-
kvæmur að neðan og því raun-
verulegur torfærubíll, þó ýmsum
finnist hann heldur langur og
þungur fyrir torfæruakstur.
Innréttingin er svipuð og í
venjulegum japönskum fólksbíl,
þægilegir stólar að framan, tví-
skiptur 3ja manna bekkur í miðj-
unni og 2ja manna aukasæti
aftast. Útsýni er gott og stærð
bílsins er ekki jafn áberandi þeg-
ar setið er í ökumannssæti og hún
er þegar staðið er utan hans.
Bíllinn er með stífar hásingar
og á blaðfjöðrum bæði að framan
og aftan. Fjöðrunin er mjög stíf
en þó ekki beinlínis óþægileg á
sæmilegum vegi. Auðvitað er
hátt og lágt drif á bílnum og hann
virtist vel frambærilegur í vondri
færð eftir því sem hægt var að
reyna slíkt. Vökvastýrið er ekki
af allra léttustu tegund en er
fremur nákvæmt og veldur því að
þessi stóri bíll er býsna viðráðan-
íegur í bæjarsnatti. Bremsurnar
eru ágætar.
Nissan Patrol er fáanlegur með
bensín- eða dieselvél en hefur
aðeins verið fluttur inn til íslands
með dieselvél. Vélin í bílnum
sem við ókum er 3,3 lítrar, 100
hö. (sae) og hentar ágætlega í bíl
af þessu tagi ef menn krefjast
þess ekki að hægt sé að aka þess-
um stóra og þunga jeppa eins og
sportbíl, því bíllinn er eðlilega
fremur þunglamalegur með þess-