Dagur - 02.03.1984, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - 2. mars 1984
Faldarnir sviptust í Can-Can
Það var troðfullt hús og hörkustemmning í Sjallan-
um á laugardagskvöldið, enda skemmtikraftar á
ferðinni sem láta ekki sjá sig þar um hverja helgi.
Það voru þau sæmdarhjón, Hermann Ragnar Stef-
ánsson, danskennari og Unnur Arngrímsdóttir, sem
voru potturinn og pannan í öllum herlegheitunum.
Hermann kynnti og stjórnaði danssýningu, þar sem
tekin voru dansspor sem einkum voru stigin í upp-
hafi aldarinnar, enda hét atriðið „Þegar amma var
ung“. Þar mátti sjá tangó eins og hann gerist tíguleg-
astur. Mæðginin Stefanía Guðmundsdóttir og Óskar
Borg sýndu þennan dans fyrst hér á landi og hneyksl-
uðu þar með marga samborgara sína í Reykjavík.
Þótti dansinn ósiðlegur með eindæmum, ekki síst
þegar það voru móðir og sonur sem dönsuðu. Stefan-
ía var föðuramma Sunnu Borg leikkonu. Fleiri dans-
ar voru sýndir í Sjallanum, m.a.
Can-Can og dansatriði úr þeim
margfræga söngleik Cabarett.
Unnur Arngrímsdóttir stjórnaði Wjjík'
liði sínu úr Módelsamtökunum
í tískusýningunni, sem fékk lið-
styrk Akureyringa. Sýndar
voru margar eigulegar ,
■»* f X .VNvJcst'gí y,
* 4
flíkur frá tískuhúsum ‘ j
,x"
Reykjavíkur og Parinu og
Assa á Akureyri. Báðar þessar
sýningar féllu í góðan
jarðveg hjá Sjallagestum.
Rúsínan í pylsuendanum í
Það var ekki dónalegt fyrir Jónas að fá „Paradísarkonfekt
Sjallanum á laugar-
dagskvöldið var gamla kempan
Óðinn Valdimarsson, sem
geystist fram á sviðið um miðnættið
/ syngjandi: „Ég er kominn
i heim“. í kjölfarið fylgdu hörku J
í stuðlög eins og Einsi kaldi úr
f Eyjunum og Beste mamma .
Rán sem Ódi söng fyrst á
„Landinu“ 15 ára gamall.
Nú er kappinn orðinn 48 ára, L, -|
en það var greinilegt að
I hann rótaði upp í minningum
margra, einkum þeirra
sem muna líf og fjör í Alþýðuhúsinu á sjötta
áratugnum. Það þarft ekki að orðlengj a það,
að „Allaliðið“ já og jafnvel gamla
Sjallaliðið, yngdust um ein tuttugu ár eða svo
í fjörugum dansi, þegar Ódi ásamt Ingimar
og félögum hans kyntu undir gömlum
glæðum. Það var sem sé hörkustuð í Sjallan-
um á laugardagskvöldið. -GS jm
Dansatriði úr Cabarett
Þau kunnu
að meta
Einsa
l kalda og
I sporin
hans.
Sjallagestir kunnu vel að meta það sem upp á var boðið