Dagur - 23.03.1984, Blaðsíða 2

Dagur - 23.03.1984, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - 23. mars 1984 .Fasteignir________________ á söluskrá: Grundargerði: 4ra herb. sér- staklega vönduð raðhúsíbúð 105 fm á einni hæð og auka geymsla í kjallara. Verð 1.700.000. Heiðarlundur: Tvær 5 herb. raðhúsíbúðir á tveimur hæðum, önnur með bílskúrsrétti. Mjög góðar íbúðir. Hafnarstræti: 5 herb. efri hæð með sér inngangi ca. 130 fm hæðin og stórt ris. Þingvallastræti: 4ra-5 herb. einbýlishús 130 fm og 17 fm geymsla í kjallara, þarfnast |ag- færingar. Verð 1.650.000, eða tilboð. Seljahlíð: 4ra herb. ca. 95 fm raðhúsíbúð. Verð 1.600.000. Hrísalundur: 4ra herb. ca. 98 fm íbúð á 1. hæð í fjölbýlishúsi sér inngangur. Verð 1.300.000. Skarðshlfð: 3ja herb. íbúð á jarðhæð og 5 herb. íbúð á 3. hæð. Borgarhlíð: 3ja herb. ca. 85 fm íbúð á 1. hæð. Sér inngangur nýleg og góð íbúð. Verð 1.100.000. Hrafnagilsstræti: 2ja herb. íbúð á jarðhæð ca. 60 fm, sér inn- gangur. Tjarnarlundur: 2ja herb. íbúðir á 1., 2. og 4. hæð og víðar á Brekkunni. Dalvík: Böggvisbraut: 5 herb. ca. 140 fm einbýlishús á einni hæð, er á byggingarstigi, íbúðarhæf. Sökklar undir bílskúr uppsteypt- ir. Verð 1.500.000. Bjarkarbraut: 4ra herb. íbúð á 3. hæð í þríbýlishúsi góð íbúð. Verð 1.050.000. Fiskhús við Sandskeið. ÁsmundurS. Jóhannssou aw IÖQfr»ölngur m Brakkugötu m Fasteignasala Brekkugötu 1, sími 21721. Sölum.: Ólafur Þ. Ármannsson við kl. 17-19 virka daga. Heimasími 21845. Gests- kjúklingur - Gestur E. Jónasson leikari er gestur Matarkróksins CC Nú er það Gestur Einar Jónasson, leikari með meiru, sem leggur okkur til efnið í matarkrókinn. Við hér á Degi þekkjum Gest að því að vera smekkmann, þannig að við trúum ekki öðru en að kjúklingaréttur- inn hans, sem Elsa Björns- dóttir eiginkona hans er svo lipur að matbúa, bragðist vel. En þó að Gestur fari þá skynsömu leið að láta eiginkonuna sjá um eldamennskuna, þá höfum við það fyrir satt, að hann sé einstaklega lipur við uppvaskið!! En gefum Gesti nú orðið. „Bara eitthvað sem þér þykir gott,“ sagði Gísli Sigurgeirs, þeg- ar hann bað mig að koma með eitthvað gott í matarkrókinn. „Eitthvað gott“ getur verið ansi mismunandi. Persónulega er ég mjög hrifinn af þessum svokall- aða „Steingrímsgraut“, sem kall- Matar krókurinn aður hefur verið mjólkurgrautur .eða vellingur síðan ég man eftir mér. Laugardagur er ekki laugar- dagur í mínu lífi nema ég fái heita lifrarpylsu og slátur með ensku knattspyrnunni. Og svona mætti lengi telja. Pað væri nú kannski að ofgera að koma með uppskrift af Steingrímsgraut, svo frægur er hann orðinn. Slátur kunna flestar konur að gera. En ef farið er útfyrir þetta venjulega, sem við borðum í miðri viku, þá þykir mér gott að fá á diskinn minn kjúklingarétt, sem konan mín er lipur að mat- búa. Hann hefur víst ekkert fal- legt útlent nafn, svo sem „kjúkl- ingarosso", eða „A la fljúgandi kjúkkló“. Á okkar heimili kallast hann einfaldlega kjúklingaréttur. Uppskriftin er eitthvað á þessa leið: 1 stk. kjúklingur soðinn í vatni. Kjötið tekið af beinum, og brytj- að í litla bita. 1 pakki brockoli soðið í saltvatni í 10 mín. og sett í botn á eldföstu móti. Kjúklingabitarnir settir þar ofan á. Síðan þar til gerð sósa, sem í er: 1 d-ps Campell sveppasúpa. 1 bolli majónes. 1 tsk. karry. Sítrónusafi. Þetta er hrært saman, sett ofan á kjötið. Síðan er Óðalsostur sett- ur þar ofan á, og að lokum 1 bolli Stuffing, (paxo thyme eða paxo onion) hrært saman við eina matskeið af bræddu smjörlíki. Þetta er haft inni í 200 gráðu heitum ofni í 30-35 mín. Réttinn má bera fram með grófu hrásalati, heitu snittu- brauði með osti, eða hvítlauks- smjöri. Þetta þykir hentugt ef gestum er boðið í kvöldverð, og mætti því kallast Gestaréttur. Fasteignasalan Brekkugötu 4, Akureyri. Gengið inn að austan. Opið frá kl. 13-18. sími 21744 Tjarnarlundur: 4ra herb. íbúð á 2. hæð. Hafnarstrætl: Iðnaðarhúsnæði ca. 100 fm. Selst ódýrt og á góðum kjörum. Skarðshlíð: 4ra herb. íbúð á 3. hæð, bein sala eða skipti á 3ja herb. íbúð. Hjarðarholt Glerárhverfi: 3ja herb. efri hæð í tvfbýli. Ástand gott. Tískuverslun: Lager, innréttingar og góð viðskiptasambönd. Uppl. ekki gefnar í sima. Bakkahlfð: Mjög nýlegt einbýlishús ásamt bílskúr. Smárahlfð: 2ja herb. íbúð. Norðurgata: Neðri hæð í tvíbýli. Nýr og góður bílskúr. Naust 3: Til sölu er býlið Naust 3 við Akureyri. Ræktað land 27 ha. Reykmiðstöðin: Til sölu er húsnæði Reykmiðstöðvarinnar við smábátahöfn. Norðurbyggð: Raðhús á tveimur hæðum um 160 fm. Langahlfð: Einnar hæðar raðhús um 130 fm. Góð eiqn. Keilusíða: 3ja herb. endaíbúð um 87 fm. Gott útsýni. Búðasíða: Nýtt einbýlishús, ekki alveg fullbúið. Skipti á 4ra herb. raðhúsi á Brekkunni eða bein sala. Melasíða: 3ja herb. íbúð um 84 fm. Gott útsýni. Kaupangur: Gott skrifstofuhúsnæði um 172 fm. Fjólugata: 4ra herb. miðhæð. Ástand gott. Steinahlíð: 4ra herb. íbúð í tveggja hæða raðhúsi um 120 fm. Tjarnarlundur: 2ja herb. fbúð um 47 fm. Grenivellir: 5 herb. íbúð, efri hæð og ris ásamt bilskúr. Skipti á 4ra herb. íbúð. Hrísalundur: 2ja herb. íbúð á 3. hæð um 62 fm. Þórunnarstræti: 4ra herb. hæð um 140 fm. Mjög rúmgóð íbúð. Brekkugata 3: Verslunaraðstaða á 1. hæð, skrifstofuaðstaða á 2. hæð. 3 ibúðir svo og lager og geymsluaðstaða. Selst sem ein heild eða í smærri einingum. Hjallalundur: 2ja herb. (búð á 2. hæð um 60 fm. Hjallalundur: 3ja herb. íbúð á 4. hæð um 77 fm. Höfðahlið: 3ja herb. íbúð á neðri hæð f tvibýli, bíl Teikningar af skúr fylgja. Grenivellir: 4-5 herb. fbúð, efri hæð og ris. Skipti íbúð. Reykjasfða: Steyptur grunnur undir einbýlishút skipti á 2-3ja herb. íbúð. Flatasfða: Mjög nýleg 3ja herb. íbúð í tvíbýli. Mö| I á 4ra herb. fbúð. Ifylgja. Istapasiða: Einbýlishús, hæð 140 fm, kjallari 80 fm. Ofi |en vel íbúðarhæft. Sölustjori: Sævar Jónatansson Lögmenn: I Gunnar Solnes hrl., Jón Kr. Sólnes hdl., Árni Pálsson hdl I Gestur E. Jónasson, leikari. ☆ iKmvx.w.Mí Auglýsingin frá okkur er á bls. 15 eins og venjulega við hliðina á Blllillll smáauglýsingunum ☆ nSIBGNA&(J skipasalaZSSZ NORÐURIANDS O Amaro-húsinu II. hæð. Síminn er 25566. Benedikt Ólafsson hdl. Sölustjóri: Pétur Josefsson. Er við á skrifstofunni alla virka daga kl. 16.30-18.30. Sími utan skrifstofutíma 24485.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.