Dagur - 23.03.1984, Blaðsíða 6

Dagur - 23.03.1984, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - 23. mars 1984 , JÞað eru búðimar sem lokka“ — Litið við hjá P»orgils Kristmannssyni, svæðisstjóra Flugleiða í Glasgow „Ég er nú fæddur Vest- mannaeyingur, en uppalinn Reykvíkingur, meira að segja Vesturbœingur og þar með sannur KR-ingur, “ sagði Þorgils Kristmanns- son, svæðisstjóri Flugleiða í Glasgow í Skotlandi, í samtali við Dag. Þorgils hefur undanfarin ár verið aðstoðarstöðvarstjóri í London, en hefur nýverið fluttsig um set, til Glasgow, þar sem Flugleiðir hafa hug á að hasla sér stœrri völl en félagið hefur haft þar undanfarin ár. Eins og er fljúga Flugleiðir á Glasgow þrisvar í viku, á þriðju- dögum, fimmtudögum og laugardögum. „Ég hóf störf hjá Flugfélagi ís- lands 1. júlí 1962, en þá hafði ég nýlokið stúdentsprófi frá Laugar- vatni,“ sagði Þorgils. „Fyrsta sumarið mitt starfaði ég á vöruaf- greiðslu félagsins, sem þá var við Flverfisgötu. Síðan réði ég mig á innanlandsafgreiðslu félagsins á Reykjavíkurflugvelli í eitt ár. Raunar hafði ég ætlað í Háskól- ann til að læra tannlækningar, en ég var orðinn þreyttur á skóla- göngu. Þess vegna þótti mér til- valið að breyta til. Én það hefur teygst úr þessu ári, því vorið 1964 var mér boðið að fara til Glasgow til að sjá um skrifstofu félagsins þar. Ég tók því vel og eftir að hafa kynnt mér aðstæður réði ég mig þar í eitt ár. í Glasgow kynntist ég konunni minni Ann Christine og hér er ég enn. Og nú er ég búinn að starfa í nær 22 ár hjá Flugfélagi íslands og síðar Flugleiðum. Það varð því ekkert úr tannlæknanáminu." Skrifstofan aflögð - Þorgils er eini starfsmaður Flugleiða á Glasgow-flugvelli, en Sirvisair sér um alla þjónustu fyr- ir Flugleiðir á flugvellinum. Nú er verið að endurskipuleggja starfsemi félagsins í Glasgow og næst var Þorgils spurður með hvaða hætti það yrði gert? „Það er nú ekki fullmótað ennþá, en hér hefur ekki verið nein starfsemi að ráði á vegum Flugleiða, þannig að þessi akur hefur ekki verið ræktaður sem skyldi. Hér fyrr á árum var hér umfangsmikill rekstur á vegum Flugfélags íslands og síðar Flug- leiða og þá voru hér 13 manns við störf á skrifstofunni þegar flest var. En síðan var skrifstofunni lokað 1981.“ - Hvers vegna? „Meginverkefni skrifstofunnar var að afla flutninga á leiðinni Glasgow-Kaupmannahöfn, en allt frá 1950 hafði félagið heimild til flutninga á þeirri leið. Síðan kom SAS inn í dæmið og sinnti þessari leið á móti Flugfélaginu. Þá skiptu félögin leiðinni með sér þannig, að þau flugu sína vikuna hvort. Síðar gerðist það að Brit- ish Airways gerði tilkall til þess- arar áætlunarleiðar og þá urðum við að víkja. Þar með var búið að kippa grundvellinum undan sölu- skrifstofunni í Glasgow. En Brit- ish Airways gafst fljótt upp á þessu flugi og nú hafa Flugleiðir aftur aflað sér heimildar til flutn- inga á milli Glasgow og Kaup- mannahafnar. Þess vegna er ég kominn hingað aftur, en undan- farin ár hef ég verið aðstoðar- stöðvarstjóri í London með bú- setu þar. Raunar bý ég þar enn, því ég er ekki fluttur með fjöl- skylduna hingað, þar sem ég hef ekki fengið hentugt húsnæði." - Hvert verður þitt aðalstarf hér núna? „Þetta er nú hvergi nærri full- mótað ennþá, en ég reikna með því að leggja mesta áherslu á fraktflutninga á milli Glasgow og Kaupmannahafnar. Það þarf hins vegar lítið að hafa fyrir því að út- vega frakt frá Glasgow og heim, því fraktrýmið á þeirri leið selur sig sjálft. Við höfum varla undan að flytja það sem beðið er um. Auk þess verður lögð aukin áhersla á farþegaflutninga, bæði á Kaupmannahafnarleiðinni og að heiman og heim. En það er ekki fuilráðið hvernig farmiða- sölunni verður háttað hér. Senni- lega verður einhver utanaðkom- andi aðili fenginn til að sjá um það fyrir okkur. Búðirnar lokka - Hvað hafa íslendingar að sækja til Glasgow? „Það eru búðirnar sem lokka fyrst og fremst því hér er hægt að gera hagstæð innkaup, sérstak- lega á fatnaði og þá ekki síst barnafatnaði. Hagstæðast er vöruverðið í byrjun janúar, því þá eru útsölurnar í fullum gangi og þær standa út febrúar og jafn- vel fram í mars. En að þeim lokn- um koma sumarvörurnar í versl- anir. Hingað koma líka margir til að spila golf, en hér eru 5 golfvellir skammt frá flugvellinum, ýmist í eigu klúbba eða bæjarfélaga, en útlendingum er heimilt að spila þar. Laxveiði er einnig mikil í Skotlandi, en það mun vera nokkuð dýrt sport og veiði ekki í samræmi við það sem við eigum að venjast heima. Hins vegar mun sjóstangaveiði ekki vera eins dýrt sport og hún er mikið stunduð bæði frá ströndinni og af bátum. Auk þessa get ég nefnt skíðasvæðin, en þau eru hér mörg hver mjög vel úr garði gerð og vel sótt.“ - En hvað með ferðalög um Skotland? „Hér er margt að sjá og skoða og menn geta valið um ferða- máta. Það er hægt að fara með járnbrautarlestum, áætlunarbíl- um, flugvélum og svo er líka hægt að taka bílaleigubíl fyrir viðráðanlegt verð. Mér skilst að ódýrustu bílarnir kosti rúmar 500 kr. íslenskar á sólarhring og þá er ekkert kílómetragjald til viðbót- ar, aðeins bensínkostnaður. Auk þess er hægt að fá bílaleigubíl á mun hagstæðara verði með því að kaupa hann með flugfarmið- anum hjá Flugleiðum. Þeir sem taka sér bílaleigubíla aka gjarnan um sveitavegina, sem hlykkjast um landbúnaðarhéruðin, en þó þeir séu fornfálegir að allri gerð, þá eru þeir undantekningalaust malbikaðir. Mjög vinsælt er að fara upp í skosku hálöndin og þar er hægt að haga ferðalaginu sam- kvæmt veðri og vindum. Mér er kunnugt um fólk sem hefur ekið um hálöndin dag eftir dag, en tekið sér næturhvíld á sveita- hótelum, litlum og vinalegum, sem víða er að finna. Og þetta fólk hefur komið aftur og aftur, því það er alltaf eitthvað nýtt að sjá. íbúarnir eru líka svo einstak- lega gestrisnir, þeir vilja bókstaf- lega allt fyrir ferðalanginn gera.“ Lærist á einum degi - En nú er hér vinstri umferð, kemur það sér ekkert illa fyrir landann? „Nei, það held ég ekki. Ég hef heyrt á fólki sem hingað hefur komið, að þetta venjist eins og skot. Það þarf að vísu að hafa at- hyglina vel vakandi fyrsta daginn, en síðan kemur fram- haldið af sjálfu sér. Það hjálpar líka til, að stýrið er vinstra megin í skoskum bílum. Vegir eru líka vel merktir og umferðin er til- tölulega hæg og jöfn. Þar að auki sýna Skotar meiri tillitssemi í um- ferðinni heldur en ég á að venjast að heiman.“ - Hvað með veðurfar? „Veðurfar hér í Glasgow er ekki ósvipað því sem gerist á Suð-Vesturlandi, því við fáum lægðirnar frá íslandi yfir okkur. Veðrið getur því verið óstöðugt og votviðrasamt, en þetta er sveiflukennt frá ári til árs. Undanfarin 2-3 ár hafa verið góð. En Skotar segja að austur- ströndin sé betri veðurfarslega séð og í hálöndunum er sólríkara heldur en hér í Glasgow." - Líkar þér vel að búa hér, færð þú aldrei heimþrá? „Já, ég kann prýðilega við mig, enda væri ég varla búinn að vera hér í 20 ár annars. Það er varla hægt að segja að ég hafi fengið heimþrá, það var þá helst fyrstu árin, en ég fór þá bara í heim- sókn heim ef hún lét á sér kræla. Og laxveiðiferðir til íslands hafa verið árlegir viðburðir hjá mér. Þá hef ég gjarnan farið í Sandá í Þistilfirði, en hún hefur verið lé- leg undanfarin 2-3 ár. Ég hef því einnig leitað í laxríkari ár, eins og Norðurá og Laxá í Kjós.“ Mikill munur á veðurfari - Nú hefur þú búið undanfarin ár skammt sunnan við London, en flytur nú til Glasgow. Er mik- ill munur á þessum stöðum? „Nei, í sjálfu sér ekki, nema þá veðurfarslega. Sumrin lengj- ast eðlilega eftir því sem sunnar dregur á Bretlandi og ætli sumrin séu ekki 6-8 vikum styttri hér en á Suður-Bretlandi, þar sem ég hef búið. En að öðru leyti er þetta líkt, vöruverð er svipað á neysluvörum, en ýmsar vöruteg- undir hér í Glasgow eru ódýrari en í London og húsnæðið er ódýrara." - Að lokum Þorgils, hvað ger- ir þú í frístundum? „Það er nú ýmislegt. Ég var að fikta í golfi hér á árum áður, þeg- ar ég bjó í Glasgow. Það er ekki að vita nema ég taki þráðinn þar upp aftur. Þar að auki hef ég gaman af að sækja fótboltaleiki, sérstaklega þegar stóru liðin eig- ast við. Einnig hef ég gert dálítið af því að veiða með strákunum mínum, sem fengu algera veiði- dellu á meðan við bjuggum suðurfrá, því þar er víða góð sil- ungsveiði í ám og vötnum og veiðileyfin kosta lítið sem ekki neitt.“ Á meðan við Þorgils vorum að spjalla saman var lítið um að vera í flugstöðinni í Glasgow. En það átti eftir að breytast þegar líða tók á daginn. Keflavíkurflug- völlur lokaðist fyrir þoku, þannig að áætlunarvélin sem kom frá Kaupmannahöfn og átti að halda áfram til Keflavíkur komst hvergi. Þar að auki lenti ein „átta“ Flugleiða í Glasgow, en hún var að koma frá Luxemburg. Þegar sýnt var að þokunni myndi ekki létta í Keflavík varð að koma 300 farþegum í kvöldverð og gistingu. Það var því mikið að gera hjá Þorgils, en að lokum tókst honum að koma öllum far- þegunum fyrir á 6 hótelum víðs vegar um borgina. Flugleiðir báru allan kostnað vegna þessa og reynt var að létta farþegum þessi óþægindi eins og frekast var unnt. Farþegarnir voru því flestir orðnir léttir í lundu þegar lent var á Keflavíkurflugvelli um há- degi daginn eftir, ekki síst vegna þess að Flugleiðir buðu upp á ókeypis veitingar á leiðinni heim! - GS. Þorgils Kristmannsson, svæðisstjóri Flugleiða í Glasgow.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.