Dagur - 23.03.1984, Page 5
23. mars 1984 - DAGUR - 5
Þrefaldur Audi-
sigur í Monte Carlo
Monte Carlo rallinu lauk 27.
janúar síðastliðinn. Þjóðverjinn
Walter Röhrl sigraði þriðja árið
í röð, varð rúmlega mínútu á
undan Svíanum Stig Blomquist.
í þriðja sæti varð Fir.ninn Hannu
Mikkola. Allir óku þeir Audi
Quattro. Fjórði Audi ökumaður-
inn Michele Mouton tók ekki
þátt í Monte Carlo að þessu
sinni.
Veður og færi var með þeim
hætti að þessu sinni að fjórhjóla-
drifsbílarnir frá Audi höfðu
nokkra yfirburði. Það var hálka,
snjór og meiri snjór. Slíkar að-
stæður eru Stig Blomquist mjög
að skapi enda hafði hann forystu
um tíma. Blomquist sem hafði
rásnúmer 7 lenti m.a. í því á
einni sérleiðinni að aka uppi og
fara fram úr þrem keppinautum
sínum sem lagt höfðu af stað á
undan honum. Walter Röhrl
varð að fást við annað vandamál
þar sem hann hafði rásnúmer 1.
Áhorfendur sátu nefnilega hinir
rólegustu á vegbrúninni eða
jafnvel á miðjum veginum með
nestiskörfurnar sínar og uggðu
ekki að sér þegar Röhrl nálgaðist
á fullri ferð því allur snjórinn
dró svo úr hljóðinu í bílunum.
Röhrl sagði að lokinni keppni
að hann hefði ekki náð að aka
sérlega vel, Audiinn væri nokkuð
erfiður í akstri þar eð orkusvið
vélarinnar væri mjög þröngt og
hann væri heldur ekki alveg bú-
inn að tileinka sér nýtt aksturslag
sem beita þyrfti í Audi Quattro.
Kveður nú við annan tón en í
Akropolisrallinu í fyrra en þá
sagði Röhrl að jafnvel api gæti
ekið Audi Quattro til sigurs og
stórmóðgaði með því núverandi
samherja sinn Michele Mouton.
í fjórða og fimmta sæti urðu
Renault 5 Turbo og Lancia Rally.
býður yður velkomin í heitan
mat, hádegi og kvöld
Kaffi og smurt brauð allan daginn.
Minnum serstaklega á heitt
súkkulaði og nýbakaðar vöfflur.
xb
Dansleikur
laugardagskvöld 24. mars.
Hljómsveitin Casablanca leikur fyrir dansi.
Matur framreiddur frá kl. 19.00.
HÓTEL
Borðapantanir
teknar í
síma 22200.
KEA d§gT AKUREYRI
Einmenningskeppni
Bridgefélags Akureyrar verður spiluð þriðjudaginn 27
mars kl. 19.30.
Ein umferð. Öllum heimil þátttaka.
Þátttakendur eru beðnir að mæta tímanlega í Félagsborg.
25% afsláttur
af skíðum, skíðaskóm
og bindingum næstu daga
Sporthú^idhf
HAFNARSTRÆTI 94
SIMI 24350
Mitsubishi Starion hefur nú feng-
ið fjórhjóladrif og er ætlað að
keppa við Audi Quattro í rall-
akstri frá og með næsta hausti.
Vélin er fjögurra strokka með
forþjöppu og 350 hö.
Væntanleg er í lok þessa árs ný
gerð af Mercedes-Benz sem leysir
af hólmi 200 - 280 E gerðimar.
Seat á Spáni, sem framleitt hafa
bíla með leyfi frá Fíat á Ítalíu
hafa nú sett á markað 4-dyra út-
gáfu af Fiat 127. Bíllinn kallast
Seat Fura og þykir ódýr í Evrópu.
Renault hefur kynnt nýjan bíl í
efri milliflokki - Renault 25. Bíll-
inn hefur sérlega straumlínulag-
aða yfirbyggingu og ein gerðin
hefur loftviðnámsstuðul Cw=0,28
sem er jafnvel betra en Audi 100
státar af.
Volkswagen-verksmiðjurnar eru
að semja við Austur-Þjóðverja
um sölu á framleiðslutækjum til
að framleiða 1,0 og 1,1 lítra vélar.
Austur-Þjóðverjar ætla að nota
þessar VW-vélar í nýjar gerðir af
Trabant og Wartburg sem hafin
verður framleiðsla á eftir 2-3 ár.
(Trabant gengur víst annars undir
nafninu „brjálaða ryksugan" í
heimalandi sínu.)
Á árinu 1983 seldi Renaultssam-
steypan flesta bíla í Evrópu eða
1.317.00 bíla. í öðru sæti var Ford
með 1.300.000; í þriðja sæti Fiat
með 1.264.000 og í fjórða sæti
Volkswagen/Audi með 1.228.700
bíla selda.
Frá Subaru kemur nú nýr fjór-
hjóladrifsbíll, Subaru Justy 4WD,
svipaður litlu tveggja dyra Subaru
- 700 bílunum. í Justy er 997 cm3
vél sem er 63 hö. Bíllinn er vænt-
anlegur á markað í Evrópu í
haust.
Sóló-húsgögn
Sterk og stílhrein
Eldhúsgögn, borð, stólar, kollar
Einnig tilvalið í kaffistofur, veitinga- og samkomuhús
Borð og stólar í öllum stærðum og gerðum
Alls kyns litir
og áferð
Allt eftir eigin vali
Hrísalundi 5