Dagur - 08.08.1984, Page 1
•V
■
(
67.árgangur
Akureyri, miðvikudagur 8. ágúst 1984
89. tölublað
Slæmt ástand í lánamálum:
Vanskil hafa
aukist verulega!
Sendiherra
á hvolfi
Franski sendiherrann á íslandi
slapp með skrekkinn er hann
var á ferðinni í Mývatnssveit
um helgina. Skammt frá bæn-
um Grímsstöðum missti hann
stjórn á bifreið sinni sem valt
út af veginum og hafnaði á
hvolfi í skurði.
Engin meiðsli urðu á fólki við
þetta óhapp sendiherrans og er
því óhætt að segja að betur hafi
farið en á horfðist.
Þá varð bílvelta í Reykjadal.
Þar valt bifreið ofan í skurð en
engan í bílnum sakaði. Lögregl-
an á Húsavík hafði skömmu áður
stöðvað bifreiðina og farið þess
á leit við fólkið að það spennti
bílbeltin sem það gerði, og er tal-
ið að það hafi bjargað fólkinu.
M.a. var ófrísk kona í bílnum og
er talið að illa hefði farið fyrir
henni ef hún hefði ekki verið
með bílbeltið spennt. gk-.
Vanskil hafa aukist töluvert í
akureyrskum bönkum á þessu
ári og svo virðist sem tíðin sé
heldur erfið fyrir launþega og
fyrirtæki. Um þetta voru
bankastjórar sem Dagur hafði
samband við sammála, og As-
grímur Hilmarsson bankastjóri
Útvegsbankans sagði vanskil
hafa aukist um hátt á annað
hundrað prósent miðað við
sama tíma í fyrra.
Ásgrímur reiknaði með að
ástandið væri svipað víðast hvar
á landinu. Mikið væri um að lán
væru framlengd, og alltaf væri
gífurleg eftirspurn. „Pví miður
verður ekki hjá því komist að
neita mörgum um lán,“ sagði Ás-
grímur Hilmarsson.
„Já, því er ekki að neita að
vanskil hafa heldur aukist að
undanförnu,“ sagði Magnús
Gíslason bankastjóri Landsbank-
ans. „Við vitum að það er þungt
hjá almenningi núna.“ Magnús
taldi að vanskilalán væru fleiri í
ár heldur en var í fyrra. „Við
höfum gert töluvert af því að
endursemja við aðila sem eftir
því hafa óskað og þannig reynt
að koma til móts við þá.“ Að sögn
Magnúsar á þessi aukning bæði
við einstaklinga og fyrirtæki.
Ásókn í lán væri mikil, enda væri
ætíð svo á sumrin og núna væri
hún svipuð og í fyrra.
Sigurður Ringsted bankastjóri
Iðnaðarbankans sagði vanskil
hafa aukist verulega hjá einstakl-
ingum. „Það má segja að fyrir-
tæki hafi nokkurn veginn skrimt.
En það verður erfiðara fyrir
launamanninn að greiða sín gjöld
seinni hluta ársins heldur en var
fyrri hlutann.“ Sigurður sagði
þetta vera það sem bankamenn
yrðu varir við núna. „Ég hef allt-
af sagt að útlánamenn hafi stund-
um gott af því að fá nei og það er
það besta sem margir hverjir fá í
dag. Þegar þeir geta ekki staðið í
skilum er ekki betra að bæta við
láni til að borga annað lán,“ sagði
Sigurður Ringsted.
Um ástæður þessa voru
viðmælendur Dags nokkurn veg-
inn sammála, eða eins og Magnús
Gíslason orðaði það: „Er það
ekki bara ástandið í kaupgjalds-
málum almennt?“ -KGA.
Hópur 11 Eyfirðinga hélt í gær
til Kanada, en þangað fór hóp-
urinn í boði kanadíska fyrir-
tækisins Alcan og mun hann
dvelja þar frant á föstudag.
Hópurinn mun m.a. kynna sér
starfsemi Alcan í Kanada og
skoða þar álverksmiðjur, en eins
og kunnugt er hefur komið til tals
að Alcan reisi álverksmiðju í
Eyjafirði. Það voru forsvarsmenn
Alcan sem buðu hópnum út og
kom einkaþota fyrirtækisins til
Akureyrar og sótti hópinn og
mun skila honum heim á föstu-
dag.
Þeir sem fóru voru: Þóroddur
F. Þóroddsson, Ingimar Brynj-
ólfsson, 'Jóhannes Geir Sigur-
geirsson, Valgerður Bjarnadótt-
ir, Jón Sigurðarson, Jón G.
Sólnes, Valur Arnþórsson, Tóm-
as Ingi Olrich, Tryggvi Gíslason,
Hermann Sveinbjörnsson og
Finnbogi Jónsson. gk-.
Glannaakstur
á tjaldstæðinu!
— og síðan inn á lóð við Birkilund
Fólk á tjaldstæðinu á Akureyri
fékk heldur óskemmtilega
heimsókn í fyrrinótt, en þá
vöknuðu gestir þar við að bif-
reið var ekið þvers og kruss um
tjaldstæðið inn á milli tjald-
anna.
Fyrir einhverja heppni olli
ökumaðurinn ekki slysi með
þessum gáleysislega akstri, en
svo fór hann nærri sumum tjöld-
unum að hann tók niður tjaldstög
og fólkið vaknaði að vonum upp
við hávaðann og annað sem
fylgdi.
Þegar ökumaðurinn hafði ekið
fram og til baka um tjaldstæðið
lá leið hans upp í Vanabyggð og
á leiðinni ók hann utan í eina bif-
reið. Þegar hann kom svo upp
Vanabyggðina og beygði suður
Mýrarveg náði hann ekki beygj-
unni og ók inn á lóð hússins
Birkilundar 1, tók þar niður girð-
ingu og fór inn í garðinn. Síðan
stakk hann af.
Bíllinn fannst svo síðar um
nóttina í Austurbyggð en öku-
maðurinn skömmu síðar. Var
hann þá í tjaldi sínu á tjaldstæð-
inu og hvíldi sig eftir átökin.
Hann var fluttur í yfirheyrslu og
er grunaður um ölvun við akstur
sinn að þessu sinni. gk-.
Atta
fluttir
á sjúkra-
hús
- eftir mjög
harðan árekstur hjá
Grímsstöðum á Fjöllum
„Þaö má segja að helgin í heild
hafi veriö nokkuð góð, þrátt
fyrir nokkur óhöpp í umferð-
inni,“ sagði Þröstur Brynjólfs-
son yfirlögregluþjónn á Húsa-
vík er við ræddum við hann í
gær. Mikill mannfjöldi safnað-
ist saman á nokkrum stöðum í
umdæmi Húsavíkurlögregl-
unnar en að sögn Þrastar fór
allt vel fram.
Mjög harður árekstur varð á
föstudagskvöld 3 km austan við
Grímsstaði á Fjöllum. Tveir bílar
skullu saman þar rétt við brú sem
er á milli tveggja blindhæða og
var annar bíllinn kominn yfir
brúna er þeir skullu saman.
í bílunum tveimur voru 8
manns og voru þeir allir fluttir á
sjúkrahús meira og minna slasað-
ir. Ökumaður annars bílsins var
fluttur á Borgarsjúkrahúsið í
Reykjavík, tvennt úr framsæti
hins bílsins var flutt á sjúkrahús
á Akureyri með flugvél og hinir
á sjúkrahús á Húsavík. Að sögn
lögreglunnar á Húsavík var að-
koma mjög ljót þarna.
Þá Var annar árekstur fyrir
austan Mývatn, ekki langt frá af-
leggjaranum að Kröfluvirkjun.
Þar óku tveir bílar í austur-
átt. Þegar annar þeirra ætlaði að
aka út af veginum til vinstri var
hinn að reyna framúrakstur og
skullu bílarnir saman. Þeir voru
báðir óökufærir en meiðsli urðu
ekki á fólki. gk-.