Dagur - 10.08.1984, Síða 5
Jónaval í
prestkosningum
á Dalvík
íbúar í Dalvíkurprestakalli ganga að kjörborðinu nk. sunnudag og
kjósa sér sóknarprest. í kjöri eru tveir menn, sr. Jón Helgi Þórar-
insson og sr. Jón Þorsteinsson. Kosið verður í sóknarkirkjum og
eru kjörfundir sem hérsegir. í Dalvíkurkirkju kl. 10-23, í Tjarnar-
kirkju kl. 13-18, í Urðakirkju kl. 13-18 og í Vallakirkju kl. 13-18.
Frambjóðendurnir tveir hafa að undanförnu unnið kynningarstarf í prestakallinu. Þeir hafa haft viðtalstíma
á Dalvík, heimsótt bæi í sveitinni, farið í fyrirtæki og rætt við fólk á förnum vegi. Þá hafa þeir messað í
kirkjunum fjórum sem nefndar voru hér að framan.
Þeir urðu sammála um það Jón Helgi Þórarinsson og Jón Þorsteinsson að gefa fjölmiðlum ekki kost á
því að eiga við þá viðtöl og kynna þá ýtarlega fyrir lesendum, en sendu þess í stað frá sér kynningarbækl-
inga sem okkur hafa borist í hendur. Fer meginhluti texta þeirra bæklinga hér á eftir:
\í
Helgi Þórarinsson
Séra Jón Helgi Þórarinsson er fædd-
ur á Akureyri 2. september 1957.
Foreldrar hans eru hjónin Þórarinn
Halldórsson sláturhússtjóri og Elín
Jónsdóttir, kennari.
Séra Jón Helgi lauk stúdentsprófi
frá Menntaskólanum á Akureyri
vorið 1977 og prófi frá Guðfræði-
deild Háskóla íslands 1983.
Hann stundaði nám við Tónlistar-
skólann á Akureyri um 10 ára skeið.
Aðalgrein hans þar var orgelleikur
en auk þess lagði hann m.a. stund á
pílanóleik og kórstjórn. Hann hefur
einnig stundað söngnám og sungið í
ýmsum kórum, m.a. Passíukórnum
á Akureyri og Kór Langholtskirkju.
Þá hefur hann fengist við orgel- og
tónmenntakennslu.
Séra Jón Helgi hefur starfað við
Sumarbúðir Æ.S.K. við Vestmanns-
vatn í Aðaldal. Hann er nú formað-
ur sumarbúðanefndar og sér um
rekstur og framkvæmdir við sumar-
búðirnar.
Hann hefur átt sæti í æskulýðs-
nefnd Þjóðkirkjunnar og starfað
sem aðstoðaræskulýðsfulltrúi. Hef-
ur hann séð um útgáfu söngbóka
fyrir æskulýðsstarfið og vinnur nú að
útgáfu barnaplötu á vegum kirkj-
unnar.
Séra Jón Helgi er formaður
nefndar sem biskup skipaði á sl. ári
til að vinna að viðbæti við núverandi
sálmabók kirkjunnar.
Séra Jón Helgi Þórarinsson var
vígður haustið 1983 til prestþjón-
ustu við Fríkirkjusöfnuðinn í Hafn-
arfirði.
Kona hans er Margrét Einarsdótt-
ir kennari og eiga þau einn son,
Hilmar, á öðru ári.
Sr. Jón
Þorsteinsson
Séra Jón Þorsteinsson er fæddur að
Kaldrananesi í Strandasýslu 19. febrúar
1946. Sonur hjónanna Þorsteins Matthías-
sonar, kennara frá Kaldrananesi og Jófríðar
Jónsdóttur frá Ljárskógum í Dalasýslu.
Jón lauk stúdentsprófi frá Menntaskólan-
um á Akureyri 1966 og kandidatsprófi í guð-
fræði frá Háskóla íslands vorið 1974. Vetur-
inn 1967-68 stundaði hann nám í Handíða-
og myndlistaskóla íslands og 1982-83 fram-
haldsnám í kennimannlegri guðfræði við
Luther Northwestern Theological Seminary
í St. Paul í Minnesota í Bandaríkjunum.
Áhersluatriði í því námi voru æskulýðsmál,
hjónabands- og fjölskylduráðgjöf og málefni
aldraðra. Ennfremur aðstoð við drykkju-
sjúka og eiturlyfjaneytendur. 1981 sótti Jón
námskeið á Hazelden Foundation í Minne-
sota í ráðgjöf og hjálp við fjölskyldur
drykkjusjúkra.
Jón vígðist til prestþjónustu í Setbergs-
prestakalli á Snæfellsnesi haustið 1974 og
hefur gegnt því starfi síðan. Auk preststarfa
hefur hann stundað kennslustörf við Grunn-
skóla Eyrarsveitar og Tónlistarskóla Eyrar-
sveitar í Grundarfirði. í preststarfinu hefur
hann gefið sig sérstaklega að æskulýðsmál-
um. Hann sat um árabil í æskulýðsnefnd
Þjóðkirkjunnar og hann hefur myndskreytt
og tekið þátt í mótun efnis sem notað er í
barnastarfi kirkjunnar. Áhugamál Jóns
tengjast myndlist og tónlist. Hann hefur
kennt myndmennt í Grundarfirði og hann
leikur á gítar og hefur sungið í sönghópum
og kórum, meðal annars í Söngsveitinni Fíl-
harmoníu undir stjórn Róberts A. Ottósson-
ar. Þá ver hann gjarna frítíma sínum til
ferðalaga og náttúruskoðunar.
Eiginkona Jóns er Sigríður Anna Þórðar-
dóttir. Hún er fædd á Siglufirði 14. maí
1946. Foreldrar hennar eru Þórður Þórðar-
son, vélstjóri frá Siglunesi og Margrét Arn-
heiður Ámadóttir frá Staðarhóli á Dalvík.
Jón og Sigríður eiga þrjár dætur, Jófríði
Önnu, f. 1967; Þorgerði Sólveigu, f. 1975 og
Margréti Arnheiði, f. 1978.
10. ágúst 1984 - DAGUR - 5
Regnfatnaðurinn
frá 66° norður bregst ekki,
hvað sem á dynur.
Eigum ávailt til flestallar stærðir.
Stígvél í úrvali.
Gallabuxur karlmanna
Stærðir 30-40. Verð kr. 570,-
m
Opið laugardag kl. 10-12.
Eyfjörö
Hjalteyrargötu 4 - sími 22Z75
AKUREYRARBÆR |||
Skóladagheimilið
Brekkukot
Brekkugötu 8, tekur til starfa 1. sept. nk. Þar geta
börn á skólaaldri dvaliö frá kl. 7.30-17.30. Þau
sækja þaðan skóla í heimahverfi sínu, einnig fá
þau máltíöir á heimilinu. Auk umönnunar á heim-
ilinu fer þar fram kennsla og aðstoð við heima-
nám.
Upplýsingar fást á Félagsmálastofnun Akureyrar,
Strandgötu 19b, sími 25880.
Umsóknir þurfa að berast til Félagsmálastofnunar
fyrir 25. ágúst nk.
Dagvistarfulltrúi.
Akureyringar - Bæjargestir
Dansleikur
laugardagskvöldið 11. ágúst
Hljómsveit Finns Eydal, Helena og Aili
ieika fyrir dansi til kl. 02.00.
Matur framreiddur frá kl. 19.00-22.00.
býður yður velkomin alla daga
í heitan mat um hádegi og kvöld.
Kaffi og smurt brauð allan daginn.
Verið velkomin.
Borðapantanir
teknar í
síma 22200.
HOTEL KEA
AKUREYRI