Dagur - 10.08.1984, Blaðsíða 11
10. ágúst 1984 - DAGUR - 11
Fiðla fór á kostum undir Ingimari Ingimarssyni frá Hólum
þennan hest, taldi mig setja það
hátt verð á hann þegar um hann
var beðið, að enginn vildi kaupa.
En ég var tekinn á orðinu og varð
þar með af hestinum. Ég hef allt-
af séð eftir því og ég sé líka eftir
því að liafa gelt Blæ, en við þessu
er ekkert að gera úr því sem
komið er,“ sagði Sveinn um
þessa gæðinga. Guðmundur
Sveinsson sýndi hestinn.
í 3. sæti varð Flugsvinn Jó-
hanns Friðgeirssonar á Hofi.
Hún er undan Hrafni frá Holts-
múla og meri frá Krossanesi og er
8 vetra gömul. Flugvökur og
myndarleg hryssa. Hún fékk 8,06
í aðaleinkunn.
0 Dúddi krœkti sér
í skeifu
Albína hans Jón Friðrikssonar á
Vatnsleysu stóð efst af klárhest-
um þeirra Skagfirðinga. Það var
galli á keppnisskránni, að upp-
runa gæðinganna var hvergi
getið. En mér var sagt af kunnug-
um, að þessi meri Jóns sé komin
út frá Voðmúlastaða-Lýsing. í
öðru sæti varð Krummi Frið-
bjargar Vilhjálmsdóttur frá
Sauðárkróki, sem Bjarni Braga-
son sýndi. í þriðja sæti kom síðan
Evrópu-Brúnka hans Sigurjóns
Jónassonar, sem betur er þekktur
undir nafninu „Dúddi á Skörðu-
gili“. Dúddi sýndi merina sína
sjálfur og stóð sig með sóma, eins
og honum er líkt. Hann fékk í
verðlaun gullskeifu á tréplötu og
hafði þá á orði, að nú væri hægt
að járna á Skörðugili.
í unglingaflokki sigraði Inga
María Stefánsdóttir frá Hólum á
Dyljá. í öðru sæti varð Björn
Jónsson frá Vatnsleysu á Pan-
dóru og Helgi Ingimarsson varð
í þriðja sæti á Sokka.
Á mótinu fóru einnig fram veg-
legar kappreiðar, þar sem fót-
fráustu hross landsins reyndu
með sér, enda vegleg verðlaun í
boði, að upphæð samtals 104 þús-
und krónur. En því miður, mér
hefur ekki enn tekist að draga
úrslitin út úr Skagfirðingum.
- GS
Inga María og Björn Jónsson sigruðu í unglingaflokki
Jón Friðriksson frá Vatnsleysu á Albínu
Skagflrðingar veittu sigurvegurum vegleg verðlaun
Bæjakeppni
Hin árlega bæjakeppni Funa og unglingakeppni verður
á Melgerðismelum laugardaginn 18. ágúst og hefst kl.
14.
Opið hús á Melunum um kvöldið.
Reiðnámskeið
Námskeið fyrir unglinga og aðra verður á Melgerðis-
melum 12.-17. ágúst. Leiðbeinandi Jón Matthíasson.
Þátttaka tilkynnist í síma 31146 eða 24942 fyrir hádegi
á laugardag.
Nauðungaruppboð
Laugardaginn 11. ágúst 1984 kl. 14.00 verður
haldið nauðungaruppboð að Gránufélagsgötu 4,
2. hæð Akureyri, eftir kröfu innheimtumanns ríkis-
sjóðs. Þar verður seldur lager af fatnaði. Hér er
um að ræða jakkaföt, jakka, stakka, frakka, peys-
ur, skyrtur, skíðabuxur, skíðasett, buxur, herða-
tré, nærbuxur, sundskýlur, efnisstranga, hanska,
stuttbuxur, bolir, trefla, húfur, rennilásastatíf, stat-
íf undir föt, peningakassa, afgreiðsluborð úr gleri
og 4 saumavélar.
Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla, nema
með samþykki uppboðshaldara.
Greiðsla við hamarshögg.
Bæjarfógetinn Akureyri,
31. júlí 1984
Sigurður Eiríksson
aðalfulltrúi.
Ritstjórn - Auglýsingar - Afgreiðsla
Sími 24222
Aðstoðarlæknir
Aðstoðarlæknir óskast sem fyrst við Kristnesspít-
ala til starfa í a.m.k. fjóra mánuði frá 1. sept. nk.
Umsóknir er greini menntun og fyrri störf sendist
framkvæmdastjóra Kristnesspítala fyrir 20. ágúst
nk.
Uppl. gefur yfirlæknir í síma 96-31100.
Kristnesspítali.
Eiginmaður minn,
JÓN STEINAR MARINÓSSON,
rafvirkjamelstari,
er andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þann 5. þessa
mánaðar verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn
14. ágúst kl. 13.30.
Fyrir hönd vandamanna.
Borghildur Sólveig Ólafsdóttir.