Dagur - 10.08.1984, Blaðsíða 7
Stelpurá öllum aldrí
Nú er sumarfríinu hjá okkur lokið.
Byrjum námskeiðin af fullum krafti mánudag
13. ágúst kl. 8.30 e.h. í íþróttahöllinni.
Námskeiðin verða mánudaga og fimmtudaga
kl. 8.30 e.h.
Kennari: Gísli Rafnsson. Námskeiðsgjald kr. 500.
- Já, það
hefur rignt drjúgt
- Páll Svavarsson,
mjólkurbússtjóri á
Blönduósi með meiru?
- Já, það er hann.
Sæll sértu, Gísli Sigurgeirs-
son á Degi hérna megin.
- Já, blessaður,
þú ætlar þó
að fara að taka
viðtal við mig?
Jú, það var ætlunin,
eigum við ekki
að byrja á veðrinu?
Það rignir. Mikið?
Það hefur ekki
verið eins gott hjá okkur hér
vestur frá í sumar og hjá ykkur
Eyfirðingum. Þið eruð aldeilis
að hafa það gott, en við
erum svo sem ekki að kvarta.
Þetta er búið að vera gott
sumar.
- Mig minnir að það sé tíðum
rok á Blönduósi.
- Nei, það er ekki alltaf rok,
það er mesti misskilningur. En
það er stundum svolítil hafgola
síðdegis, en oft eru líka stillur á
kvöldin.
- Eru bændur heldur að auka
mjólkurframleiðsluna ?
- Nei, ég hygg að bændur á
okkar mjólkursvæði haldi í horf-
inu þegar upp er staðið eftir
árið. Pað er jafnvel hugsanlegt
að framleiðslan minnki eitt-
hvað. En það þykir eflaust ekki
fréttnæmt að bændur nái þeim
markmiðum sem þeir setja sér.
Það er hins vegar haft hátt ef
eitthvað ber út af.
- Hvað eru margir framleið-
endur á þínu svæði?
- Okkar svæði er Austur-
Húnavatnssýsla og þar eru 79
mjólkurframleiðendur.
- Hvað leggja þeir inn marga
lítra á dag?
- Það er nú misjafnt hvað
kemur inn yfir daginn, allt frá 15
þúsund lftrum upp í tæplega 30
þúsund lítra.
- Hvað gerið þið við alla
þessa mjólk?
- Austur-Húnvetningar
drekka hana sem nýmjólk og
þeir eru líka mikið fyrir rjóma,
skyr, súrmjólk, undanrennu og
fleiri mjólkurafurðir. Eannig fer
um 20% af hráefninu til neyslu
í heimabyggð. Auk þess höfum
við samstarf við samlagið á
Hvammstanga; leggjum þeim til
neysluvörur og hráefni í osta, en
þeir framleiða brauðostinn vin-
sæla með rauðu skorpunni. Par
fara 20% í viðbót af hráefninu,
en þau 60% sem eftir eru fara í
smjör og þurrmjólk.
- Hvað ergert við þurrmjólk-
ina?
- Hún er notuð í matvælaiðn-
aði, t.d. kjötvinnslu og súkku-
laði.
- Nú hafið þið virkjað
Blöndu óbeint, pakkið
„Blöndu“ á fernur og sendið f
matvöruverslanir?
- Já, já, en okkar Blanda er
nú gerð úr appelsínuþykkni frá
Brasilíu, þannig að hún er ljúf-
fengari heldur en þessi eina og
sanna Blanda.
- Hvernig er salan?
- Góð; jöfn og þétt.
- Nú framleiða margir slíkan
ávaxtasafa, er þetta ekki erfiður
markaður?
- Jú, því er ekki að neita, sér-
staklega er hætt við að Mjólk-
ursamlag KEA minnki okkar
,J£aupið mitt
leyfir ekki
veiði í Laxá
Páll Svavarsson á línunni
hlutdeild í markaðinum hér
nyrðra.
- Eruð þið ekkert sárir vegna
þessarar samkeppni frá öðru
samvinnufyrirtæki á Norður-
landi?
- Mjólkursamlögin eru nátt-
úrlega frjáls að því hvað þau
framleiða auk mjólkurafurða,
en því er ekki að neita að sam-
vinna á milli mjólkurbúa mætti
vera mun meiri. Hún er í lág-
marki eins og er, en ég er viss
um að með aukinni samvinnu
mætti koma á betri hagræðingu
í mjólkuriðnaðinum.
- Þú ert mjólkurfræðingur,
hvar lærðir þú þá iðn?
- Ég lærði í Þrándheimi í
Noregi.
- Er það langt nám, hefur
aldrei komið til tals að taka upp
kennslu á þessu sviði hérlendis?
- Námið tekur 2 ár í bók-
legum fögum, en síðan eru 1-2
ár í verklegu námi. Nei, ég held
að það hafi aldrei verið hugleitt
í alvöru að taka upp kennslu í
þessu fagi hér á landi. Það yrði
of dýr skóli miðað við hvað
nemendur yrðu fáir.
- Geta íslenskir mjólkur-
framleiðendur lært eitthvað af
kollegum sínum í Noregi?
- Já, það tel ég. Þar er til
dæmis mun betra skipulag á
mjólkuriðnaðinum, þar er ekki
hver að bauka í sínu horni. Þar
eru menn jafnvel skikkaðir til að
gera þetta eða hitt, ef það þykir
vera til hagsbóta fyrir heildina.
- Hvað gerir mjólkurbús-
stjórinn í frístundum ?
- Ég er með laxveiðidelluna,
en það er nú varla að það taki
því að segja frá því, þar sem ég
hef ekki fengið nema einn lax í
sumar. En það er ef til vill í
réttu hlutfalli við laxveiðina í
heild.
- Þið misstuð Blöndu í hend-
urnar á Reykvíkingum?
- Já, veiðifélagið okkar hafði
haft Blöndu á leigu, en í vor
náðu Reykvíkingar henni af
okkur. Við teljum að stjórn
landeigendafélagsins hafi farið
svolítið aftan að okkur þegar
samningarnir voru gerðir við
sunnanmenn. Ég veit að margir
landeigendur vildu gera nýjan
samning við okkur, fá hærra
leiguverð, en ég held að stjórn
félagsins þeirra hafi ekki reynt
til þrautar hvort sú leið var fær.
En það er ekki þar með sagt að
við séum búnir að tapa af
Blöndu, því Reykvíkingar
leigðu okkur hluta af ánni í
sumar.
- Er Blanda „húkk-á“?
- Ja, það fer eftir því hvað
þú kallar „húkk“. í bergvatnsá
getur veiðimaðurinn séð fiskinn,
lagt öngulinn við hliðina á hon-
um og húkkað svo. í Blöndu
sérðu hins vegar fiskinn aldrei.
Það er hins vegar rétt, að laxinn
tekur stundum svolítið ein-
kennilega í Blöndu, jafnvel með
sporðinum, ha-ha-ha, en þar er
ekki stunduð húkk-veiði í eigin-
legri merkingu. Hins vegar er
margt ólíkt með veiði í Blöndu
og bergvatnsá. Blönduveiðin er
líkari sjóstangaveiði. Það er
meira um að vera. Það er líka
talað um óþokkaskap þeirra
sem veiða í Blöndu, af því að
þeir „húkki“ laxinn og missi
hann jafnvel frá sér stórsærðan.
Má ég spyrja; dettur einhverjum
í hug að laxi f bergvatnsá, sem
hefur kokgleypt þríkrækju og
slitið síðan línuna, líði eitthvað
betur en laxi í Blöndu, sem öng-
ull hefur sært? Ég hef ekki trú á
því.
- Hvernig er veiði í hún-
vetnskum laxveiðiám?
- Léleg, nema Laxá í Ásum
hefur gefið góða veiði af og til.
- Ferð þú þá ekki þar til
veiða?
- Nei, kaupið mitt leyfir það
ekki, mér er sagt að dagurinn
þar kosti 15-18 þúsund krónur
fyrir stöngina.
- Hafðu það þá bara eins og
ég, kauptu þér lax. En ég þakka
þér fyrir spjallið, Páll. Marg-
blessaður.
- Ég þakka þér sömuleiðis,
blessaður,- GS
I Laxdalshúsi
Sælkerahelgi fyrír ostaunnendur
Á boðstólum m.a.:
Óðalskartöflusúpa (nýjar ísienskar kartöflur),
ostapinnar,
Ostabakki, 5-7 tegundir,
ostalambakótilettur m/grænmeti og bakaðri kartöflu,
brauðkollur m/sveppaosti.
Léttvín og lystaukar.
Ostameistarí mjólkursamlagsins,
Oddgeir Sigurjónsson stjórnar aðgerðum.
Tónlist fyrir matargesti á laugardagskvöld.
Þuríður Baldursdóttir, söngkona, Hrefna Hjaltadóttir,
lágfiðla og Kristinn Örn Kristinsson, píanóleikari
flytja tónlist eftir Brahms.
Athugið að panta borð í tíma í síma 24490.
Sjáumst í ostaskapi.
10. ágúst 1984 - DAGUR - 7
Okukennsla
Kenni á nýjan bíl. Mitsubishi Tredia með vökvastýri.
Einnig bifhjólakennsla.
Uppl. í síma 23347.
Höfiim opnað
nýja og rúmgóða
sólbaðstofu
að Flötusíðu 5.
Erum með Jumbo Special lampa frá M.A. International.
Tímapantanir í síma 25856.
Sólbaðstofan Flötusíðu 5.
Blaðburðarbörn vantar til
útburðar fyrir NT í:
Mýrarnar, Helgamagrastræti, Munkaþverárstræti, Hlíð-
argötu, Holtagötu og Lögbergsgötu.
Upplýsingar gefa umboðsmenn NT:
Soffía s. 24582 og Halldór s. 22594.