Dagur - 24.10.1984, Síða 9
24. október 1984 - DAGUR - 9
Akureyrarsamningarnir samþykktir með naumum meirihluta:
Rúmlega 20% hækkun
- sé miðað við 12. launaflokk út samningstímabilið
Samkvæmt Akureyrarsamn-
ingnum, sem undirritaður var
aðfaranótt föstudags, hækka
laun starfsmanna Akureyrar-
bæjar um 3% 1. september og
síðan um 7% frá undirritun
samninga, sem gilda til ársloka
1985, bæði aðal- og sérkjara-
samningur.
„Nei, ég get nú ekki sagt að ég sé
sáttur við þessa samninga, sérstak-
lega vegna þess hvað lítill meiri-
hluti reyndist fyrir þeim innan fé-
lagsins,“ sagði Erlingur Aðal-
steinsson, formaður samninga-
nefndar STAK, í samtali við Dag
eftir að úrslit í atkvæðagreiðslu
STAK um nýgerðan kjarasamning
við Akureyrarbæ lágu fyrir.
„Pað má segja að sömu vandamál-
in séu ennþá til staðar innan félags-
ins,“ sagði Erlingur, „og við höfum
ekki fengið þá leiðréttingu sem við
ætluðum okkur. Við lögðum á það
áherslu að fá að komast í sérkjara-
samning, auk þess sem við vildum fá
inn í samninginn einhverja tryggingu
gagnvart þróun í efnahagsmálum
þjóðarinnar á samningstímanum.
Við þessu vildi viðsemjandi okkar
flokkar um 800 krónur og aftur
um sömu upphæð 1. maí 1985. 1.
nóvember nk. verður greidd sér-
stök persónuuppbót að upphæð
4.500 kr. Þá er gert ráð fyrir að
launakerfi Akureyrarbæjar verði
endurskoðað fyrir 1. júlí á næsta
ári. Gerð var bókun um m.a. ein-
földun og samræmingu starfsald-
ursreglna, endurmat á ýmiss kon-
ekki verða og þar við sat. Fleira kem-
ur til og það er greinilegt þegar litið
er á úrslit atkvæðagreiðslunnar, að
stór hluti félagsmanna í STAK er
sáróánægður með sín laun. Og fé-
lagslega séð er mjög erfitt eftir
tveggja vikna verkfall, að ekki næst
meiri samstaða um gerða samninga
en raun varð á. En úr því sem komið
er verðum við að vona að bókun sem
fylgdi samningnum, um endur-
skoðun á launakerfi bæjarins og
samanburð við kjör á almennum
vinnumarkaði, gangi í gegn fljótt og
vel, þannig að við getum komist í
viðræður um þessi mál á samnings-
tímabilinu."
- Nú virtist vera rekinn harður
áróður fyrir því að fella samningana,
m.a. var samþykkt ályktun þess efnis
á kynningarfundi félagsins sl. laugar-
dag. Þá ályktun samþykktu um 50
ar álögum og að samdar verði
reglur til viðmiðunar við röðun í
launaflokka. Þá verði gerð sam-
anburðarkönnun á vinnumarkaði
á Akureyri og endurskoðað það
starfsmatskerfi sem nú er notað
við röðun í launaflokka.
Kynningarfundur var haldinn
um samningana kl. 16 á laugar-
dag í Húsi aldraðra og atkvæða-
fundarmenn, en hún var komin frá
einum fundarmanna, Sigurði Jóns-
syni, starfsmanni húsameistara. 3
fundarmenn greiddu atkvæði gegn
þessari ályktun, en 80 manns sátu
hjá. Þrátt fyrir þetta verður niður-
staðan sú, að samningurinn er sam-
þykktur. Hvers vegna, höfðu samn-
ingarnir við bókagerðarmenn þar
einhver áhrif?
„Það er nú einu sinni þannig í slík-
um tilvikum, að það heyrist hærra í
þeim sem vilja fella samninga heldur
en þeim sem vilja samþykkja þá. Ég
hygg að ástæðan fyrir því að svo
margir sátu hjá á fundinum hafi verið
sú, að þeim hafi þótt óeðlilegt að
taka opinbera afstöðu til samning-
anna tveim dögum áður en almenn
atkvæðagreiðsla átti að fara fram.
Samninganefndin kynnti samninginn
á fundinum á hlutlausan hátt, en síð-
greiðsla fór fram á skrifstofu
STAKS á mánudag frá kl. 10-22.
Miðað við 12. launaflokk er
reiknað með að í lok samnings-
tímabilsins verði um að ræða
rúmlega 20% kauphækkun, sam-
kvæmt þessum samningi. Hækk-
un er minni í efri launaflokkum,
þar sem krónutöluhækkanirnar
vega þar minna.
an kom þessi ályktun frá einum fund-
armanna. Hvað varðar samning
bókagerðarmanna, þá held ég að
hann geti ekki hafa haft afgerandi
áhrif á úrslit atkvæðagreiðslunnar.
Þó get ég ekkert staðhæft í því sam-
bandi.“
- Nú hefur stór hluti félagsmanna
í STAK unnið í verkfallinu, t.d.
hjúkrunarfólk og slökkviliðsmenn,
en samt sem áður geta þessir starfs-
hópar haft á það úrslitaáhrif hvort
aðrir félagsmenn eru í verkfalli og
þar með kauplausir í lengri eða
skemmri tíma. Þetta fyrirkomulag
hefur verið gagnrýnt, sérstaklega af
þeim sem voru í verkfalli. Þarf ekki
að gera þarna einhverjar breytingar?
„Það er rétt, þetta hefur verið
gagnrýnt, og ég held að sú gagnrýni
hafi orðið til þess að þátttaka hjúkr-
unarfólksins var minni í atkvæða-
greiðslunni heldur en hinna starfs-
hópanna. Þetta er eitt félag og félags-
menn verða að standa saman í kjara-
baráttunni. En ég tel að hægt verði
að jafna þennan mun með því að þeir
sem vinna greiði verulegar upphæðir
af launum sínum í verkfallssjóð, svo
sem eins og 25% af föstum launurn.
Þannig held ég að þessir hópar styðji
hvern annan í kjarabaráttunni.“
- Nú hefur það heyrst, að þeir
sem unnu í verkfallinu megi búast
við að dregið verði af launum þeirra
í verkfallssjóð við næstu útborgun.
Er það rétt?
„Nei, það verður ekki gert, þó
hugsanlega sé til þess heimild. Hins
vegar munum við óska eftir frjálsum
framlögum frá þeim félögum í STAK
sem fá óskert laun á meðan verkfall-
ið stóð. Þetta er mjög eindregin ósk,
sett fram til að milda launatap þeirra
sem voru í verkfalli, og það er mjög
mikilvægt fyrir okkur félagslega að
sem flestir sjái sér fært að verða við
þessum óskum,“ sagði Erlingur
Aðalsteinsson í lok samtalsins. - GS
„Ánægður
með að
verkfalli
er lokið“
— segir Helgi M. Bergs
..F.g er anæaður með að það skuli
vcra búið að' semja. en að oðru leyti
vil égekki tja tnig ittn innihald þess-
arr;i sanmingu." sagði Helgi M.
Bergs. bæjarstjóri. i samtali við
Dag. Hn hvað þvða þessir samning-
ar fvrir Akureyrarbæ; verður s;i út-
gjaldaauki sem þeir hafa i fiir með
sér til þess að þjónusta bæjarins
hækki íverði og skattheimta aukist.
..I’essir samningar þvða nattúr-
lega það sama fvrir Akureyrarbæ
eins og fvrir starfsmennina; það
ræðst allt af verðbólguþróuninni
næstu mánuði. Þjónusta bæjarins
sem bæjarbúar greiöa fyrir beint
keniur ekki til með að hækka sem
bcin afleiðing þessarra samninga.
heldur miklu frekar sent afleiðing
aukinnar verðbðlgu. Og við reynum
að mæta þessum útgjaldaauka án
þess að leggja aukna skatta á bæjar-
búa.”
-1 Iver finnst þér vera rcynslan af
þeim tveim verkföllum sem opin-
berir starfsmenn hafa fariö í?
..Fyrirkomulag í kjaradeilum op-
inberra starfsmanna er náttúrlega
ekki gallalaust frekar en
önnur mannanna verk, raunar er
það að mörgu lcyti mjög gallaö. En
þetta er einungis annaö verkfallið
og vonandi læra menn af reynsl-
unni. því undanfarna áratugi hafa
nienn verið að draga einhverja lær-
dóma af reynslunni á almennum
vinnumarkaði. Þeir sem standa i
dcilum opinberra starfsmanna hafa
varla haft tíma til þess ennþá. Svo
ég nefni dæmi um vankantana held
ég að það þvrfti að vera í lögum. að
það væri ein samninganefnd sveitar-
félaganna. sem semdi við eina
samninganefnd af hálfu starfs-
mannafélaganna. Ég held að það
sé útilokað að vera með þetta svona
eins og það er, enda er eðlilegt að
kjör opinberra starfsmanna séu
svipuð urn allt land. Einnig held ég
að það sé galli á þcssu fyrirkomu-
lagi. að sáttasemjara sé skylt að
leggja fram sáttatillögu. Ég held að
það sé alveg klárt í þcssu tilviki, að
sáttatillagan var ótímabær. Nú, og
þegar út í vcrklall er komið hafa
verið skiptar skoðanir um ýmis
framkvæmdaatriði milli deiluaðila,
sem verður að koma á hreint."
- Hvað með það fyrirkomulag,
að fjölmennir starfshópar halda
áfram vinnu. en geta samt haft úr-
slitaáhrif á það hvort verkfall stcnd-
ur lengri eða skemmri tíma?
„Þetta er ákaflega erfitt atriði til
úrlausnar. Það er óeðlilegt að þeir
sem eru í fullri vinnu geti haldið
öðrum í verkfalli til að bcrjast fyrir
sig. Verði farin sú leið, að taka at-
kvæðisréttinn af þeim sem vinna,
má búast við að þeir sem eru í verk-
falli geti níðst á þeim. Við þessu er
engin leið. nema þá að draga úrallri
vinnu eins og mögulegt er. Þeir sem
hér er um að ræða starfa flestir á
sjúkrahúsum og þá vaknar sú spurn-
ing í huga manns hvort hægt sé að
draga meira úr þjónustu þar þegar
til verkfalla kentur. En ég þekki það
mál ekki nægilega vel til að geta
fullyrt um það," sagði Helgi Bergs í
lok samtalsins. GS.
SKRÍPALEIKUR
sagði einn fundarmanna að loknum kynningarfundi STAK
Um 130 manns sóttu kynn-
ingarfundinn sem efnt var til
í Húsi aldraðra á laugardag
um Akureyrarsamninginn.
Fundurinn breyttist í ályktun-
arfund, sem ekki er óþekkt
fyrirbæri á þessum slóðum og
var samin ályktun gegn sam-
þykki samningsins. Hún var
samþykkt af 48 en 3 voru á
móti. Þorri fundarmanna sat
hjá við afgreiðsluna.
„Þessi kynningarfundur sner-
ist í skrípaleik. Fundarsköp
voru brotin með því að gera
kynningarfund ályktunarhæfan.
Þetta varð líkast sellufundi hjá
Alþýðubandalaginu. Það er
ekki nema um helmingur félaga
í STAK í verkfalli og það er
auðvelt fyrir hina, sem vinna t
verkfallinu, að segja þeim sem
eru tekjulausir að halda bara
áfram í verkfalli og krefjast
ennþá meiri launahækkana,“
sagði einn fundarmanna, sem
ekki tók þátt í atkvæðagreiðsl-
unni á STAK-fundinum á laug-
ardag.
Talið er að samningurinn hafi
í för með sér frá 14-22%
hækkun. Þrátt fyrir þá launa-
jöfnun sem hann hefur í för
með sér, vegna jafnra peninga-
launahækkana á alla flokka,
eykst bilið milli t.d. 15. og 30.
launaflokks um rúmlega 1.200
kr. og bilið milli hæsta og lægsta
flokks um einar 3 þúsund
krónur, samkvæmt upplýsing-
um sem blaðið hefur aflað. HS
1. janúar hækka allir launa-
STAK-félagar biðu með eftirvæntingu eftir úrslitum í atkvæðagreiðslunni um kjarasamninginn.
„Margir sáróánægðir“
- segir Erlingur Aðalsteinsson, formaður samninganefndar STAK