Dagur - 28.11.1984, Blaðsíða 12
12 - DAGUR - 28. nóvember 1984
Handprjónabúðin
ENOSS
Hafnarstræti 83.
Úrval af garni,
bæði í handprjón og
prjónavélar.
Úrval af prjónum, heklunálum ogfleiru
sem tilheyrir.
Sími 25914. — Opið á laugardögum.
Eigum fyrirliggjandi
OYAMAHA
DX 7 Synthesizer
á gamla verðinu kr. 53.
iuisHBUÐ/H
Sunnuhlíð - Sími 22111.
Allar flísar og
baðinnréttíngar
sem verða pantaðar í þessarí
viku verða seldar á verði fyrir
gengisfellingu.
Óseyrí 6, Akureyri . Pósthólf 432 . Sími 24223
umboðið hf.
Verslunarmiðstöðinni Sunnuhlíð
Við bjóðum:
Vátryggingar. Umboö:
ingaþjónustu.
Reynið okkar þjonustu.
Nýtt umboð:
Happdrætti Háskóia íslands
Höfum nú þegar til sölu miöa fyrir 1. flokk 1985. Eig-
um fyririiggjandi einfalda miöa, raðir og trompmiöa!
Komdu og veldu þér númer!
Þú elur með þér draum -
Við getum látið hann rætast!
Happdrætti Háskóla íslands
- Milljón í hverjum mánuði!
Sunnuhlíð 12, sími 218744.
Mannfyrirlitning
- eða hvað?
- Dæmið um Jón og séra Jón
„Anfetamínistinn og fyllibyttan
Megas...“ „Hins vegar framdi
Megas skömmu síðar „sjálfs-
morð“ á lyfjaætunni og brenni-
vínssvelgnum í sjálfum sér...“
Þessar ófögru setningar eru
teknar úr sjónvarpskynningu í
síðasta Dagsbroti. Þrátt fyrir allt
virðist þó sem höfundur kynning-
arinnar sé einn af fjölmörgum að-
dáendum Megasar, hvort sem
hann nú tilheyrir „kúltúr-
mafíunni" eða hinum.
En hvað er það sem kemur
ESE til að setja á blað svo
ósmekklegar og lítilsvirðandi
setningar sem að ofan er vitnað
til?
Á þetta að vera fyndið eða
sniðugt? Er einhver sérstök
ástæða til að hafa erfiðleika þessa
manns í flimtingum? Af hverju
einmitt þessa manns?
Á Alþingi íslendinga hafa setið
menn og sitja máske enn, sem
hafa einhvern tíma komist í kast
við lögin. Þá er átt við að þeir
hinir sömu hafa verið teknir ölv-
aðir við akstur og verið sviptir
ökuréttindum. Engum kemur til
hugar að núa þessu um nasir
þeim á opinberum vettvangi.
Til eru menn sem hafa hlotið
opinbera viðurkenningu, jafnvel
fálkaorðuna, þó dæmdir hafi ver-
ið af íslenskum dómstólum.
Vafalaust brygði einhverjum í
brún ef t.d. eftirfarandi fyrirsögn
sæist á prenti: „NN þingmaður,
fyllibytta og tukthúslimur hélt
ræðu á Alþingi í gær.“ Sem betur
fer er lítil ástæða til að óttast að
sjá svona setningu á prenti, það
tryggir m.a. gamla lögmálið um
Jón og séra Jón.
Annars hefst áðurnefnd kynn-
ing á þessum orðum: „Það setur
örugglega hrylling að mörgum
unnendum hins hreina tóns, en
aðrir munu fagna er meistari
Megas birtist í allri sinni „dýrð“
á skjánum nk. laugardagskvöld.“
Því langar mig að spyrja ESE
þriggja spurninga í viðbót.
- Hverjir eru unnendur hins
hreina tóns?
- Er tónninn þá óhreinn hjá
Megasi?
- Af hverju eru gæsalappir um
orðið dýrð hjá höfundi kynning-
ar?
„Aðgát skal höfð í nærveru
sálar,“ kvað Einar Benediktsson
og eru þau orð í fullu gildi ennþá.
Þess er okkur öllum gott að
minnast.
Með kveðju,
Ragnar Lár.
- Eða hvað?
Svar til Ragnars:
Mér er ljúft og skylt að svara
spurningum R. Lár, þó ég eigi
frekar bágt með að skilja þessa
athugasemd hans.
Ragnar segir að ég lítilsvirði
Megas og gefur í skyn að eitthvað
meira en lítið skrýtið liggi að
baki. Ástæðan fyrir því að ég tók
svona til orða er sú að nýlega átti
Einar Kárason, rithöfundur langt
og ítarlegt viðtal við Megas í
Morgunblaðinu, þar sem Megas
greinir á opinskáan hátt frá sín-
um málum, m.a. uppgjörinu við
anfetamínið og brennivínið. Þeg-
ar ég tala um „anfetamínistann
og fyllibyttuna Megas“ sem unn-
ið hefur sigur á sjálfum sér, er
það ekki gert í niðrandi merk-
ingu, heldur þvert á móti. Virð-
ing mín fyrir Megasi hefur aukist
mikið og var þó nokkur fyrir.
Ekki veit ég hvað Ragnar er að
fara með samlíkingum um Jón og
séra Jón og hálfkveðnar vísur um
alþingismenn. Fálkaorður fæ ég
heldur ekki séð að komi þessu
máli við en Ragnar virðist hins
vegar hafa lesið einhverjar djúp-
stæðar merkingar út úr þessum
„sakleysislega“ texta. Hann um
það.
Ragnar tekur kannski eftir því
að ég set gæsalappir utan um orð-
ið sakleysislega. Þetta svarar
kannski síðustu spurningu hans
en ekki munu allir á eitt sáttir um
„dýrð“ Megasar. Unnendur hins
hreina tóns, nefni ég alla þá sem
líta niður á poppmúsik, hverju
nafni sem hún nefnist. Það er
ekkert launungarmál að
„kúltúrmafían“ og þeir sem
snobba fyrir henni - unnendur
klassískrar tónlistar, telja sig
vera að hlusta á „æðri“ tónlist og
hreina tóna. Kammermúsikliðið,
óperuunnendurnir og sinfóníu-
gengið kann því miður ekki að
meta Megas, eða kunni ekki
a.m.k. til skamms tíma.
Með bestu kveðjum,
- ESE
Nýr möguleiki
fyrir auglýsendur!
Með útgáfu nýs blaðs á fimmtudögum hafa
opnast fleiri möguleikar fyrir þá sem auglýsa í
Degi.
Aðeins 20% gjald verður reiknað fyrir allar
auglýsingar er þar birtast, jafnt stórar sem
smáar, enda hafi þær áður verið birtar í Degi
og þurfi ekki að taka breytingum.
dagsbrot birtir dagskrá útvarps og sjón-
varps og er dreift á hvert heimili á Akureyri og
til áskrifenda Dags utan Akureyrar.
Auglýsingadeild Dags veitir nánari upplýsing-
ar. Sími 24222.
dagsbrot kemur út í 8.000 eintökum.
daqsbrot
Sími 24222
Strandgötu 31 Aktireyri