Dagur - 30.11.1984, Side 7
30. nóvember 1984 - DAGUR - 7
- Halló.
- Guðlaugur Þorvaldsson,
sáttasemjarí?
- Pað ér hann.
- Hvað er sáttasemjarí að gera
núna, eftir að samningalotan er
afstaðin?
- Ég er kominn í sumarfrí, er
að taka til heima hjá mér. Maður
verður að gera það öðru hvoru.
Ég er að dunda í bókasafninu, auk
annarra hluta.
- Áttu mikið bókasafn?
- Nei, ég get nú ekki gortað af
því, enda hef ég allt of lítið pláss.
Það er vandinn.
- Safnarðu öllu, eða ertu að
safna einhverri ákveðinni tegund
bókmennta?
- Ég er enginn safnari, þetta er
ekki annað en hefur fallið til í
gegnum tíðina.
- Er einhver bók væntanleg í
jólabókaflóðinu, sem þú bíður
eftir?
- Nei, ekki sérstaklega, en ég
veit að Baldur Kristjánsson er að
skrifa um BSRB-verkfallið og það
verður fróðlegt að sjá hvað út úr
því kemur.
- Nú er mesta lotan gengin yfir
í bili hjá þínu embætti; hvað tekur
þá við?
- Við höfum nú aðallega verið
í því að hreinsa til, ganga frá fund-
argerðum og öðru í þeim dúr. Svo
veit ég ekki hvað verður, t.d. með
sjómannasamningana og eitt og
annað. Það getur vel komið upp á
borð hjá mér núna í desember.
Svo ætlaði ég að reyna að taka
mér sumarfrí, því ég á það nær allt
eftir. Að minnsta kosti vona ég að
þetta verði frekar rólegt í vetur.
- Hvernig ganga svona samn-
ingar fyrír sig?
- Fyrirkomulagið er raunar
aldrei eins frá ári til árs. Maður
getur alltaf átt von á nýjum uppá-
komum. Það koma inn nýir menn
með nýjar hugmyndir og alltaf eru
ný mál að skjóta upp kollinum af
og til í þjóðfélaginu, sem snerta
kjaramálin. Þar að auki er pólitík-
in breytileg, þannig að kjarasamn-
ingar eru aldrei nákvæmlega eins
unnir. Hitt er svo annað mál, að
fyrstu dagana gengur þetta rólega
fyrir sig, það er spjallað saman án
þess að mikið gangi, en svo þegar
líða fer á og menn vilja fara að
semja, þá kemur oftast löng hríð.
Þá er tekist á um erfið mál og því
fylgja óhjákvæmilega vissar
vökur. Þetta er reynslan hér og í
öðrum löndum. Morgunsárið
virðist vera drýgst til samninga.
Það er alþjóðleg staðreynd. En
þetta eru sjaldnast margir sólar-
hringar; síðustu 5 árin man ég
lengst eftir um það bil þrem sólar-
hringum.
- Er þetta gert til að þreyta
mannskapinn og slæva dóm-
greindina?
- Nei, nei, en það eru margir
reyndust
mér vel
- Guðlaugur sáttasemjari á línunni
sem halda það. Þetta eru bara
hlutir sem erfitt er að komast hjá:
Ég er persónulega þeirrar skoðun-
ar, að það sé varasamt að ganga
langt í þessum efnum. Þetta er
ekkert heilsubætandi. En það er
eins og það er; þegar menn eru
komnir á skrið þá er eins og þeir
vilji halda sig að hlutunum og
Ijúka við þá. Þeir óttast að þurfa
að byrja á sama stað aftur, ef stað-
ið er upp í miðjum klíðum. Þetta
held ég að sé skoðun beggja aðila.
Hlé á viðræðum, þegar samningar
eru í burðarliðnum, geta orðið til
þess að utanaðkomandi aðili
blandi sér inn í málið og setji jafn-
vel allt í hnút.
- Getur þú aldrei fengið þér
kríu þegar svona langir fundir
standa?
- Það er nú orðið lítið um það.
Það er nú aðeins eitt herbergi með
sófa í Karphúsinu og það eru
margir sem þurfa að skiptast á um
hann. Auk þess er það herbergi
gjarnan notað fyrir tveggja manna
tal, sem oft er nauðsynlegt þegar
að vökufundunum kemur. Hitt er
svo annað mál, að ég á mjög auð-
velt með að fá mér tíu mínútna
kríu bara í stólnum. Öðruvísi er
það nú ekki.
- Er fyrsta nóttin jafiivel erfið-
ust?
- Já, ég held að það séu allir
sammála um það, að minnsta
kosti er önnur nóttin auðveldari
en sú fyrri.
- Er starfið skemmtilegt, gef-
andi?
- Já, að mörgu leyti er það
skemmtilegt. Að sumu leyti er
það þó óskaplega þreytandi og
stundum eru leiðinlegar uppá-
komur. Það skemmtilega er hvað
maður kynnist mörgu fólki, sem
er mismunandi skapi farið og ólíkt
að öðru leyti. Þannig held ég að
þetta starf sé gefandi innan vissra
marka, fyrir þá sem hafa gaman af
félagsskap og fjölbreytilegu
mannlífi.
- Hvað er þér minnisstæðast úr
þessari lotu?
- Sennilega síðasti sólarhring-
urinn í BSRB-deilunni. Þá var
andrúmsloftið hlaðið spennu og
ýmsar uppákomur, sem maður sá
ekki fyrir endann á fyrr en undir
lokin. Við erum með eins konar
almenning í Karphúsinu, þar sem
menn geta hist og rætt málin, sem
er að mínu viti afskaplega nauð-
synlegt. Eins og þú veist, þá hefur
verið erfitt á seinni tímum að úti-
loka blaðamenn alveg frá þessu og
stundum finnst mér sjálfum vera
allt of mikið um gang samninga í
fréttum. Oft er ég hundleiður á
því. En það er erfitt að þurfa að
ýta blaðamönnum frá, en þeir eru
oft hnýsnir og næmir á fréttir og
hafa skapað vandamál og spillt
fyrir. Ég komst því ekki hjá því
síðasta daginn í BSRB-deilunni
að vísa utanaðkomandi fólki frá
BSRB úr húsinu og biðja blaða-
menn um að fara í vissa einangr-
un. Þeir voru ekki allir sælir með
það, en svona ákvarðanir verður
maður stundum að taka.
- Hvernig reyndust þér vindl-
arnir?
- Ágætlega. En Jónas Hall-
grírnsson vinur minn, prófessor í
læknadeildinni, hnippti góðlátlega
í mig og sagði ekki rétt af mér að
vera að auglýsa þessa vindla, þeir
væru svo óhollir. Það er vafalaust
rétt hjá honum. enda ætla ég að
hætta núna. Ég byrjaði ekki að
reykja fyrr en um fertugt og ein-
göngu vindla. Og þetta hefur
gengið í bylgjum.
- En þú gast svælt þá til samn-
inga ?
- Já, já, vindlarnir reyndust vel
og það fengu margir að njóta
þeirra með mér.
- Hvað gerir þú í frístundum ?
- Uppáhaldið mitt í þrjá og
hálfan áratug hefur verið að fara í
badminton með góðum vinum
mínum. Við spilum badminton í
heilt kvöld einu sinni í viku, för-
um síðan í gott bað og gerum okk-
ur ýmislegt til dundurs.
- Þú áttir sextugsafmæli á
dögunum. hvernig er að vera orð-
inn sextugur?
- Ef maður hefur sæmilega
góða heilsu þá nýtur maður hvaða
aldurs sem er.
- Finnurðu ekkert fyrir aldrin-
um?
- Ég segi það nú ekki. Við
leikum okkur alltaf eitthvað bad-
mintonfélagarnir, m.a. með því
að stökkva jafnfætis og sitthvað
fleira. Þegar ég fór að kikna í
hnjáliðunum við niðurkomuna
fann ég fyrir fyrstu ellimörkunum.
Ég hef líka alltaf haft mjög gaman
af að dansa og ég held að það sé
mjög holl íþrótt fyrir alla. En ég
held að það skipti mestu máli að
reyna bara að vera glaður og
reyna að taka þátt í því sem er að
gerast umhverfis mann. Þá líður
manni vel, sé maður svo lánsamur
að halda góðri heilsu. - GS
„Vindlamir
Skógrækt rfldsins Vögium
tilkynnir nýtt símanúmer
2-51-75
Bifreiða-
eigendur
athugið
Nú eiga allar bifreiðar að vera ljósastilltar.
í tilefni af fertugasta afmælisári okkar
bjóðum við þeim viðskiptavinum sem
eru með óstillt ljós fría ljósastillingu
þriðjudaginn 4. des. nk.
Bifreiðaverkstæðið
Þórshamar hf.
v/Tryggvabraut,
Akureyri, sími 22700.
„Villibráð
á hlaðborði“
laugardaginn 1. desember 1984.
M.a. á hlaðborði grágæsir, endur, rjúpur og svartfugl
ásamt ábætisrétti. Kr. 650,-
Veislustjóri verður Stefán Vilhjálmsson.
Kristján Guðmundsson leikur létt lög fyrir matargesti.
Hljómsveit Steingríms Stefánssonar leikur fyrir dansi
frá kl. 22.00 til kl. 02.00.
Athugið. Þetta verður síðasti dansleikurinn fyrir jól.
Matur framreiddur frá kl. 19.00.
Borðapantanir í sima 22200.
Matar- og kaffistell
Föt - Tarinur - Kakókönnur - Tekatlar o.fl.
Þú getur fengið allt á matborðið
í Kompunni Skipagötu 2.
Einnig mikið úrval af smáhlutum úr hvítu
postulíni, svo sem sápuskálar,
öskubakka og allskyns borðskraut.
Úrval af gjafavörum.
KOMPAN
SKIPAGÖTU 2 AKUREYRI