Dagur - 30.11.1984, Page 9

Dagur - 30.11.1984, Page 9
30. nóvember 1984 - DAGUR - 9 Það er haft hátt um frelsi í Sjálfstœðisflokknum Ég er ákaflega lítið fyrir það að vera harður flokkslínumaður. Ég vil fá að hafa mínar skoðanir á hlutun- um og að þessu leyti taldi ég mig í sjálfu sér engum háðan þegar ég kom á þing. Ég kom ekki inn á vegum neinnar klíku eða hagsmunahóps heldur almennra kjósenda og þeim skuldaði ég trúnað eftir því sem sam- ræmdist sannfæringu minni og sam- visku. Á hinn bóginn verður ekki annað sagt en að ég sé flokksdyggur maður öðruvísi er ekki hægt að starfa í stjórnmálaflokki og öðruvísi er ekki hægt að vera í stjórnarsamstarfi. Stjórnmál eru á sinn hátt eftirgjöf, tilslökun, málamiðlun. Menn mega ekki vera of einstrengingslegir í þess- um málum. Á mínu fyrsta kjörtímabili var ég t.a.m. píndur til þess að samþykkja hluti sem ég hefði ekki viljað sjá í framkvæmd. Ég vil sérstaklega nefna sem dæmi vörugjaldið sem þá var sett á. Það byrjaði með 6% og því var hátíðlega lofað að það skyldi af- numið eftir 6 mánuði. Pegar við gengum til kosninganna 1978 var þetta vörugjald komið upp í 18%. Ég tek þetta sem dæmi um það að ekki var tekið undir neitt af því sem maður vildi koma á og stefndi í frjálsræðisátt. Það var sest ofan á það sem ég lagði til. Sjálfstæðisflokkur- inn er einn af þessum flokkum sem hafa hátt um aukið frelsi og frjáls- ræði á öllum sviðum. Parna eru ein- lægir frjálsræðisspóar, sem gala og vaða uppi, en þegar kemur að efnd- unum gerir flokkurinn ekkert í þessu samt. Hins vegar pípi ég á þessa frjáls- ræðisspóa, velluspóa, sem vaða uppi nú orðið eins og þennan Hannes Hólmstein Gissurarson og hans líka. beir eru uppfullir af einhverjum bókarkenningum en þekkja ekki raunveruleikann. Þeir verða hvorki sjálfum sér né þjóðinni nokkurn tím- ann að gagni. Hann er búinn að betla út einhverja styrki. Verði þeim að góðu. Kratar skildu eftir arfa í flokknum En það verður náttúrlega að taka það fram um Sjálfstæðisflokkinn núna að í honum er svo mikill arfi eftir öll viðreisnarárin þegar Sjálf- stæðisflokkurinn og Alþýðuflokkur- inn sátu saman í stjórn þá skildu kratar eftir sig svo mikinn arfa í Sjálfstæðisflokknum að það er til hreinna vandræða. Má ég þá frekar biðja um góðan hreinræktaðan hægri flokk, nýjan íhaldsflokk. Það er ekk- ert pláss fyrir krata, því krataflokk- urinn er í Sjálfstæðisflokknum. Eftir 12 ára viðreisn þá settu þeir svo mik- inn arfa í Sjálfstæðisflokkinn að þeir drápu sjálfa sig á þessu og þessi bölv- aði arfi er búinn að gera mjög illt í Sjálfstæðisflokknum. f>að veit Guð á himnum að ég skyldi verða fyrsti maður til að greiða því atkvæði að íhaldsflokkur yrði stofnaður hér. Það þarf hákapítalísk- an flokk á íslandi. Farið á hausinn, ef þið standið ykkur ekki þið megið hafa allt frjálst, nafnlausar innistæð- ur, bankaleynd og allt heila klabbið. Ég vil bara að fólk viti það að ef þið kjósið mig þá fáið þið engar trygging- ar engin námslán eða annað slíkt. Þið skulið bara standa á eigin fótum. En svo við höldum áfram með kratana þá er það alveg kraftaverk hvernig þeir hafa haldið á spilunum. Ég skal segja þér það að Sjálfstæðis- flokkurinn sefur ekki ef ekki er allt tryggt með kratana. Þeir verða að vera alts staðar. Það má ekki gleyma þeim. Þeir verða að hafa mann í stjórn Landsvirkjunar í hinni stjórn- inni og þessari o.s.frv. Þetta er alveg makalaust en svo þegar reynir á þá þá bregðast þeir. Ekki vildu kratarn- ir veita Sjálfstæðisflokknum hlutleysi árið 1979 það hefði verið miklu eðli- legra þeir sögðu bara blákalt nei. Og þá lyppaðist Geir Hallgrímsson niður eins og vant er. Varðandi Sjálfstæðisflokkinn þá hefur hann þynnst út frá því sem hann var og mesta víxlsporið sem flokkurinn steig var þegar Nýsköp- unarstjórnin var mynduð 1944. Þá tekur flokkurinn það upp á sína arma að stofna til þessa afskaplega víð- tæka almannatryggingakerfis sem var allt of stórt stökk í einu - allt of stórt. Þetta voru mistök svona kerfi á að koma hægt og það verður að fá að þróast. Sjálfstæðisflokkurinn er kominn langt frá uppruna sínum enda er hann orðinn stærsti „sósíal- demókrataflokkur" á íslandi. En ef maður er óánægður yfir þessu þá spyr maður sjálfan sig: Hvert hann var að fara. Stofnun nýs flokks myndi held ég, ekki ganga. Ég hef reynt að bjóða mig fram gegn þessu rusli einu sinni. Það gekk ekki. Hvað um það Sjálfstæðisflokkurinn stendur ekki undir nafni og af mörgu illu tekur maður það skásta. Það er ekkert annað skárra í íslenskri pólit- ík núna. Ég neita því alveg að það sé ein- hver mótsögn í því hjá mér að hafa verið stuðningsmaður Gunnars Thoroddsen. Hann var enginn krati þó hann hafi verið stuðningsmaður tengdaföður síns í forsetakosning- um. Hann var frjálslyndur það er allt annað. Ástæðan fyrir því að Gunnar gat unnið með kommum og fram- sóknarmönnum var einfaldlega sú að allaballarnir eru voðalega íhaldssam- ir. Það er svo einkennilegt með það að menn sem eru lengst til vinstri eiga ákaflega gott með að aðlaga sig kapítalísku kerfi, það er að segja ef þeir fá að ráða. Þeir vilja bara völd." „Sleggjudómar um pólitíska samferðamenn“ Einn kaflinn í bókinni fjallar um samferðamenn Jóns og heitir „Sleggjudómar um pólitíska sam- ferðamenn". Halldór var spurður um efni hans. „Við komum víða við sögu við vinnslu bókarinnar og það voru af og til að fljóta „komment" út úr Jóni um hina og þessa menn. Ég safnaði þessu saman í einn kafla og þarna fá 40-50 manns sinn dóm hjá Jóni. Það eru hvoru tveggja samferðamenn á þingi og eitthvað af norðanmönnum sem þarna koma við sögu." sagði Halldór. Einn viðamesti kafli bókarinnar fjallar um þau átök sem urðu í Sjálf- stæðisflokknum fyrir haustkosning- arnar 1979. Þá fékk Jón ekki stuðn- ing í efsta sætið á framboðslista Sjálf- stæðisflokksins í Norðurlandskjör- dæmi eystra, en það sæti hafði hann skipað í kosningunum 1974 og 1978. Það varð síðan til þess að Jón bauð fram sér lista, en náði ekki kjöri. Þessi kafli heitir „Sparkað út eftir hálfa öld", og er skrifaður með nokkr- um öðrum hætti en aðrir kaflar bók- arinnar. Halldór skrifar kaflann í nokkurskonar fréttaskýringarstíl. þó Jón ráði nokkuð ferðinni, „enda er þetta hans bók", eins og Halldór orðaði það. Þar fá flokksbræður Jóns sinn dóm, m.a. Halldór Blöndal, sem Jón lofar ekki í bókinni, að sögn Halldórs Halldórssonar. -GS.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.