Dagur - 07.12.1984, Side 11
7. desember 1984 - DAGUR - 11
Hermann Gunnarsson var
kynnir skemmtunarinnar og
leynigestur kvöldsins var enginn
annar en Ragnar Bjarnason.
Hann færði Ómari kveöjur frá
Bessa Bjarnasyni, um leið og
hann óskaði Ómari til hamingju
með 25 ára skemmtanaafmælið
í hundraðasta sinn. Ragnar
hafði það eftir Bessa, að Ómar
væri áreiðanlega eini maðurinn
á íslandi, sem gæti haldið upp á
afmæli sitt frá því í mars og
fram í desember.
Já, Ómar fór á kostum, og
Sjallagestir kunnu vel að meta
það; þeir hreinlega grétu af
hlátri og þegar líða fór á
skemmtunina voru margir farn-
ir að halda um magann. Hér er
ekki rúm til að tíunda allt sem
fram fór, en mest held ég hafi
verið hlegið þegar Ómar tíund-
aði vistmenn á hæli fyrir mis-
lukkað fólk úr ýmsum starfs-
greinum. Hér fylgir smá sýnis-
horn.
„Ég er með langan lista af
fólki sem ég hef verið að safna
á þetta hæli, um 130 manns.
Þennan lista hef ég til að geta
þrýst á stjórnvöld um byggingu
hælisins, en ekki síður til að
geta áttað mig á hverjir verða
þarna með mér. Þarna verður
ruslakarl, sem varð að hætta
vegna þess að hann fór í rusl;
hænsnabóndi sem varð að hætta
vegna þess að hann var orðinn
ga-ga; lyftuvörður sem varð að
hætta vegna þess að hann skildi
hvorki upp né niður í neinu;
miðill sem hætti vegna þess að
hann náði ekki andanum, hann
fór alveg yfir um, og þegar hann
kom yfir um sagði hann; þetta
er allt annað líf. Og svo verður
þarna skurðlæknir, sem varð að
hætta vegna þess að hann skar
sig úr; og svo hjúkrunarkona
sem var með úr. Þarna verða
líka menn úr sveitinni; smali
sem var kominn í fjárþröng og
búfræðingur sem var orðið illt í
kálfunum. Að sjálfsögðu verð-
ur þarna einnig dýrahæli, t.d.
fyrir naut sem var dæmt af
vegna þess að það gekk fram
fyrir skjöldu og hrútur sem
komst ekki yfir á; hann hélt að
hann væri orðinn ær. Svo verð-
ur á hælinu smiður sem varð að
hætta smíðum vegna þess að
hann boraði í nefið á sér og
annar húsgagnasmiður frá Ak-
ureyri sem datt um koll. Á hæl-
inu verður þar að auki strand-
vörður sem hætti vegna þess að
hann fjaraði út; fatafella sem
varð að hætta vegna þess að hún
spjaraði sig; klósettvörður sem
hætti vegna þess að hann var
orðinn skeinuhættur; veður-
fræðingur sem lognaðist út af;
nautabani sem varð að hætta
keppni vegna þess að nautið
stangaði úr tönnunum á honum
og gleðikona sem gafst upp í
djobbinu vegna þess að hún var
ekki mönnum sinnandi. Þarna
voru fleiri stöllur hennar; ein
varð að hætta vegna þess að hún
var svo seintekin og önnur var
látin fara af því að það lá alltaf
svo illa á henni. En sú þriðja
hætti vegna þess að viðskipta-
vinirnir fóru svo í ’ana. Og svo-
var það hommadeildin. Einn
þeirra varð að hætta vegna þess
að hann gafst upp á endanum;
annar varð að hætta milli jóla
og nýárs vegna þess að hann
þoldi ekki aftansönginn og sá
þriðji gat ekki hætt; hann sneri
alltaf aftur og aftur!!!!!!!“
Þetta er aðeins sýnishorn og
það er víst að enginn verður
svikinn af „aldarfjórðungi með
Ómari“. Þeir sem ekki komust
urn síðustu helgi geta glatt sig
viö það, að Ómar veröur aftur
á ferðinni í Sjallanum helgina
28. og 29. desember. Góða
skemmtun. - GS
Sólbaðsstofa
Jazzdansstudio Alice
Glerárgötu 26, sími 24979
gengið inn frá Hvannavöllum.
Karlar og konur!
Komið og hressið upp á líkama og sál
og verið brún í skammdeginu.
Við bjóðum 10 tíma afsláttarkort
á kr. 700,-
Opið mánud.-föstud. kl. 15-23
laugard. kl. 9-19.
Sturtur - Sauna.
Heitt á könnunni - Verið velkomin.
—Erum fluttíi—i
Bílasala Norðurlands tilkynnir að frá og með nk. laugardegi
8. desember opnum við í nýju húsnæði
að Gránufélagsgötu 45
Smekklegur sýningarsalur.
Bflasala * Búaskipti * Búakaup
Bflasala Norðurlands
Gránufélagsgötu 45, sími 21213, Akureyri.
Jólatré
og greinar
Jólatrjáasala Skógræktarfélags Eyfirðinga í göngugöt-
unni hefst laugardaginn 8. desember. Opið frá kl. 10
árdegis.
Jólatrjáasala í Kjarnaskógi nánar auglýst síðar.
Skogræktarfelag Eyfirðinga.
Nýjung Tveggja hausa
Overlock
Erna Helgadóttir
kynnir
laugardaginn
8. desember
frá kl. 10-12 og
13.30-17.
saumavél
Venjuleg