Dagur - 14.12.1984, Page 10
10 - DAGUR - 14. desember 1984
Snorrahús um 1930-40.
Mynd: E. Sigurgeirsson.
... Snorrahús
dórssyni og Margréti Gunnarsdóttur,
í um 15 ára skeiö. t>á voru fjórar
íbúðir í húsinu og uppi í risinu voru
einstaklingsherbergi, sem tilheyrðu
íbúðunum. l’ar bjó m.a. Borðeyrar-
Guðrún, sem kölluð var, og í tveim
„forstofuherbergjum" á jarðhæðinni
bjó á tímabili Gunnlaugur Tryggvi,
bóksali og ritstjóri. Sigurbjörn sagði,
að oft hefði verið gott mannlíf þau ár
sem liann átti þar heimili.
„Ég bjó í þessu húsi í yfir tuttugu
ár, það var gott að búa þar, því þetta
var svo vinalegt hús," sagði Frið-
björg Friðbjörnsdóttir, ekkja Ágústs
hcitins Bergs, fyrrum forstjóra
Smjörlíkisgerðarinnar, í samtali við
Dag. Pau hjónin bjuggu í austurenda
hússins frá því 1947 allt fram til árs-
ins 1972 með stóran barnahóp. Frið-
björg var spurð hvernig henni þætti
að sjá útlit hússins núna. „Mér finnst
hræðilegt að vita til þess hvernig hús-
ið er útlítandi núna, ég fer helst ekki
þarna niður eftir og tek þá fyrir aug-
un ef svo ber við. Ég skil ekkert í
ráðamönnum bæjarins, að þcir skuli
ekki fá eigendurna til að rífa þetta.
Þaö er svo mikil skömm fyrir bæinn
að hafa þetta svona. En það eru
gjörsamlega ófúnir viðir í þessu húsi,
það er ég viss um, þó það sé illa
farið. En þarna var gott að búa og
mér er það sérstaklega minnisstætt
hvað það var gott að rækta blóm í
þessu húsi. Það loftar svo vel um
þessi gömlu timburhús," sagöi
Friðbjörg.
0 Bœjarskömm
„Það er alveg rétt, það er bæjar-
skömm að þessu húsi núorðið, enda
lokaði ég augunum þegar ég kom til
Akureyrar í sumar og fór um Strand-
götuna," sagði Valdimar Jónsson,
sem nú rekur Smjörlíkisgerð Akur-
eyrar, „Akra“, í Kópavogi, en þang-
að flutti hann verksmiðjuna fyrir
nokkrum árum. Hann sagði að
Snorrahúsið væri nú í eigu hlutafé-
lags, sem stofnað var um verksmiðj-
una eftir að hún flutti suður. Hann
sagði jafnframt, að húsið væri til
sölu, hefði verið á söluskrá í mörg ár.
en enginn kaupandi hefði fundist enn
sem komið væri. Fyrir um fjórum
árum var sett á húsið 1,4 m.kr., en
Valdimar var ekki viss um að það
verð stæðist í dag. Hann sagði, að
óskað yrði eftir tilboðum ef einhver
sýndi áhuga á húsinu og síðan yrðu
þau metin í stjórn fyrirtækisins.
Hann sagði eitt tilboð hafa borist fyr-
ir um ári síðan, frá Benjamín Jósefs-
syni í Augsýn, upp á 600 þúsund kr.,
en því hefði verið hafnað. Valdimar
upplýsti jafnframt, að Akureyrarbær
hefði sýnt áhuga á að kaupa húsið.
Helgi Bergs, bæjarstjóri, sagðist ekki
vita til að það væri í bígerð. Hann
kannaðist að vísu við að þetta hús
Itefði einhvern tíma komið til tals og
hugsanleg kaup bæjarins á því, en
vegna tilmæla eigendanna. Snorra-
húsið stendur á eignarlóð og húsinu
fylgir jafnframt eignarland sunnan
Strandgötunnar, en þótt undarlegt
megi virðast - ekki beint suður af
húsinu, heldur ögn ofar við götuna.
Þá lóð hefur Akureyrarbær fullan
hug á að eignast, að sögn Helga.
Hér hefur verið stiklað á stóru í
sögu Strandgötu 29, sem nú er
„bæjarskömm", en var áður verslun
og íbúðarhús eins efnaðasta íbúa
Akureyrar, Snorra Jónssonar. Þar
rak hann umfangsmikla verslun og
byggingin norður með Norðurgöt-
unni var pakkhús. í „Snorra-porti"
smíðaði Snorri skip og þurrkaði fisk
- og í bakhúsunum var frystihús og
baðhús, þar sem Eyrarbúar gátu þrif-
ið sig fyrir vægt gjald. Síðar var þetta
athafnasvæði Smjörlíkisgerðar Akur-
eyrar og nú er Dagur til húsa í gamla
verksmiðjuhúsinu. Okkur sem þar
vinnum finnst sárt að sjá gamla íbúð-
arhúsið grotna niður dag frá degi,
auk þess sem það er lýti á umhverfi
okkar. Þess vegna vonumst við til að
það verði annað hvort fjarlægt, elleg-
ar þá að einhver framtakssamur taki
sig til og geri úr því fallegt hús, eins
og það hefur bein til.
Hér hefur verið stiklað á stóru í
sögu Snorrahúss og þeirra umsvifa
sem því hafa verið tengd. Aðeins ör-
lítið brot úr sögu Akureyrar, sögu
sem því miður hefur enn ekki verið
skrifuð. Er ekki kontið mál til að úr
því verði bætt? - GS
Munið
sýrðan rjóma
í hátíðamatinn.
••• Mjólkursamlag KEA
®®® Akureyri Sími 96-21400
postulín er gjöf sem allar ekta húsmæður
kunna að meta.
Södahl steintau
í öllum litum.
Bastkörfur og
bakkar, svört og
hvít röndótt glös
og ath. glæný
sending af kaffikönnum í fjórum litum.
Búsáhöld:
Stálpottar, háklassa
vara á fáránlega
lágu verði, auk þess
margar tegundir
afhnífapörum,
sleifum, spöðum, könnum, skálum o.m.fl.
Mrzberg)
Frá húsgagnadeild:
Járnbogarúm í hvítu og gylltu á súper prís,
rörahillur, speglar og stólar.
Vönduð vara og tilvalin jólagjöf. Einnig
borðstofuborð og stólar, sófasett, hjónarúm o.m.fl.
Allt saman ný vara á hlægilegu verði.
æmman
Glerárgötu 34 • Sími 96-23504
Það lýsir enginn með orðum þvígúurlega
úrvali sem úr er að moða í Skemmunni
Gjafavara:
Jólavara:
Jólakúlur, seríur, sælgæti, skraut,
löberar, dúkar, kerti og síðast
en ekki síst jólatré
og bjóði aðrir betur.
Þroskaleikföng á
óþroskuðu verði.
Næg bílastæði að austan.
Skemman
Glerárgötu 34 • Sími 96-23504
Opið tilkl 6 e.h.
á laugardag.