Dagur - 04.02.1985, Qupperneq 1
GULLSMIÐIR
I SIGTRYGGUR & PÉTUR
' AKUREYRI
Y%*W
Litmynda-
framköllun
TÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
MARGAR GERÐIR
68. árgangur
Akureyri, mánudagur 4. febrúar 1985
14. tölublað
Náma-
leyfið
fram-
lengt!
Iðnaðarráðherra hefur ákveð-
ið að framlengja vinnsluleyfí
Kísifiðjunnar við Mývatn um
15 ár. Hefur ráðherra tjáð
Náttúruverndarráði þessa
ákvörðun sína.
Leyfisveitingin er bundin þeim
skilmálum að umfangsmiklar
rannsóknir munu fara fram á
vatninu og komi eitthvað í ljós
sem sýnir að vinnslan hafi hættu
í för með sér verður leyfisveiting-
in endurskoðuð.
Náttúruverndarmenn og þar
með taldir margir Mývetningar
hafa miklar áhyggjur af þessari
leyfisveitingu ekki síst vegna þess
að þeir telja að með þessu muni
Kísiliðjan teygja sig eftir hráefni
í hinn svokallaða Syðri-Flóa.
Hafa margir heimamenn hótað
því að verja Syðri-Flóa með
öllum tiltækum ráðum, ef kísil-
iðjumenn geri sig líklega til að
hefja þar hráefnistöku.
í blaði í síðustu viku gerði
Hákon Björnsson, framkvæmda-
stjóri Kísiliðjunnar grein fyrir
sjónarmiðum verksmiðjumanna
en í dag skrifar Starri í Garði
svargrein vegna ummæla Hákon-
ar. Sjá bls. 5. - ESE
Það var glatt á hjalla á árshátíð Framsóknarfélags Akureyrar um helgina, eins og myndin sánnar, en hvaða brandara Steinunn Sigurðardótt-
ir hefur verið að segja Steingrími Hermannssyni, forsætisráðherra, vitum við hins vegar ekki. Mynd: KGA
Jökull hf. á Raufarhöfn:
Vinna hefst á morgun!
- Við stefnum að því að fara í
gang að nýju á þriðjudaginn,
þ.e.a.s. ef allt stenst og vara-
hlutir koma í tæka tíð, sagði
Hólmsteinn Björnsson, fram-
kvæmdastjóri Jökuls hf. á
Raufarhöfn er hann var spurð-
ur hvað uppbyggingarstarfínu
við frystihúsið liði.
Eftir brunann hefur mest öll
vinnsla legið niðri hjá Jökli hf.
Pó hefur dálítið verið unnið í salt
að undanförnu en um 20 manns
hafa verið í vinnu hjá fyrirtækinu
við viðhald, viðgerðir og vinnslu.
Um tíu fiskverkunarkonur hafa
sótt vinnu til Þórshafnar, um
klukkutíma akstur hvora leið.
- Við erum búnir að laga flest
nema frystiklefann en við hann
verður ekki gert í bráð. Við not-
umst hér við lítinn frystiklefa og
eins er í ráði að fá frystigáma á
leigu. Það er von á Rauðanúpi
inn með afla og hjólin ættu því að
fara að snúast að nýju, sagði
Hólmsteinn Björnsson, en er
blaðamaður Dags ræddi við hann
lá ekki fyrir hvort eða hvenær
ráðist yrði í byggingu nýs frysti-
húss eða hvort það gamla yrði
gert upp. Ákvörðun um slíkt
verður tekin hjá sjóðunum í
Reykjavík. - ESE
Uppboðið á Kolbeinsey:
Sex mánaða gálgafrestur
- vegna seinagangs í kerfinu
Þó að uppboðsbeiðni vegna
Kolbeinseyjar ÞH 10 hafí verið
send frá Fiskveiðasjóði til
sýslumannsins í Þingeyjarsýsl-
um, getur liðið allt að hálft ár
þar til af uppboði verður.
„ Glapræði að hafna
ratsjárstöðvunum “
vegna þess öryggis sem þær veita í fluginu
„Það væri mikið glapræði fyrir
okkur að hafna fyrirhuguðum
ratsjárstöðvum á Vestfjörðum
og Norðausturlandi, því þær
koma til með að hafa ótrúlega
milda þýðingu fyrir öryggi i
innanlandsflugi sem milli-
!andafíugi,“ sagði Hallgrímur
N. Sigurðsson, flugumferðar-
stjóri í flugstjórnarmiðstöðinni
í Reykjavík og varamaður í
flugráði, í samtali við Dag.
Hallgrímur sat fyrir svörum á
fundi Varðbergs á Akureyri á
laugardaginn, en þar hafði Pétur
Einarsson, flugmálastjóri, fram-
sögu. Pétur tók í sama streng og
Hallgrímur, en nánar verður
fjallað um þetta mál í viðtali við
Pétur í Degi á miðvikudaginn.
„Núna höfum við radarmynd
af um fjórðungi af landinu,“
sagði Hallgrímur, „en ef við
fáum inn þessar nýju radarstöðv-
ar og Hornafjarðarstöðina að
auki, þá getum við fylgst með
flugumferð yfir öllu landinu og
gott betur. Þarna yrði því um
byltingu að ræða í flugöryggi.
Reynsla mín af flugumferðar-
stjórn sýnir mér, að með radar-
myndinni frá Keflavíkurflugvélli
hefur okkur tekist að afstýra flug-
slysum og bjarga mannslífum þar
með. Þess vegna er ég viss um
hversu stórkostlegt öryggisatriði
nýju ratsjárstöðvarnar verða fyrir
flugið.
Fyrir millilandaflugið getur
þetta haft úrslitaþýðingu. Við
stöndum þar núna á tímamótum;
annað hvort fáum við þessi radar-
tæki til að geta veitt betri þjón-
ustu heldur en nágrannar okkar,
eða við einfaldlega missum þessa
þjónustu frá okkur, en hún hefur
veitt okkur vaxandi beinar og
óbeinar tekjur á undanförnum
árum,“ sagði Hallgrímur N. Sig-
urðsson. - GS
Þessar upplýsingar fékk blaða-
maður Dags hjá Sigurði Gizurar-
syni, sýslumanni og bæjarfógeta
á Húsavík er spurst var fyrir um
gang málsins.
Að sögn sýslumanns er upp-
boðsbeiðnin dagsett 25. janúar í
Reykjavík. Eftir að málið er
skráð í uppboðsrétti á viðkom-
andi stað er gefinn mánaðarfrest-
ur til að greiða skuldir en sé það
ekki gert er uppboðið auglýst á
venjulegan hátt í Lögbirtinga-
blaðinu. Lögum samkvæmt verð-
ur að auglýsa uppboðið þrisvar
og það getur tekið eina tvo til
þrjá mánuði. Ef skuldin er enn
ógreidd eftir þann tíma er málið
tekið fyrir í uppboðsréttinum á
ákveðnum degi og á þessu stigi
kemur jafnvel fyrir að málum sé
frestað um óákveðinn tíma. Að
sögn Sigurðar lét nærri að emb-
ættið fengi eitt mál til meðferðar
á dag í uppboðsrétti í fyrra og
það getur því orðið erfitt að finna
tíma fyrir öll mál. Sýslumaður
taldi ekki ólíklegt að Kolbeins-
eyjarmálið tæki eina sex mánuði
miðað við venjulegan framgang
mála. - ESE