Dagur - 04.02.1985, Page 3
4. febrúar 1985 - DAGUR - 3
Sundlaug Akureyrar:
Von er á tíu þúsundasta
sóldýrkandanum í liós
„Ég á von á 10 000. sóldýrk-
andanum mínum í Ijósalamp-
ana núna á næstunni og hann
verður leystur út með veg-
legum gjöfum,“ sagði Haukur
Berg, sundlaugarstjóri í Sund-
laug Akureyrar í samtali við
Dag.
„Ég mun veita þessum sóldýrk-
anda 10 sinnum frítt í ljósalamp-
ana, 10 sinnum í sund og 10 sinn-
um í gufubað. Einnig mun ég
veita 9 999. og 10 001. sóldýrk-
endunum 10 sinnum frítt í ljósa-
lampana."
Haukur sagði að búið væri að
reka þessa lampa í 13 mánuði og
hefðu þeir verið vel sóttir. Sér-
staklega hefðu þeir verið vel sótt-
ir fyrst í stað og var þá ævinlega
fullt frá kl. 7 á morgnana til kl. 8
á kvöldin og mönnum oft potað
inn á milli ef þeir voru á
staðnum. Eftir þá miklu umræðu
sem varð um skaðsemi ljósa-
lampa dró úr aðsókninni, en hún
hefur síðan aukist aftur þó hún
sé kannski ekki eins mikil og hún
var í upphafi. En nú er um að
gera að drífa sig í ljós upp í sund-
laug og taka kannski smá sund-
sprett með til hressingar, það er
aldrei að vita hverjir verða þeir
heppnu. HJS
Á sumrin er boðið upp á alvörusól í Sundlaug Akureyrar en hægt er að halda
brúnkunni við á vetrum í sólbekkjum.
Þakkir til bæjarstjórnar
Ellilífeyrisþegi skrifar:
Ég vil koma á framfæri þökkum
til bæjarstjórnarinnar okkar fyrir
að hækka fasteignagjöld á öldr-
uðum og ellilífeyrisþegum og
gefa þeim þannig tækifæri á að
taka þátt í að greiða útgjöld
bæjarfélagsins.
Sérstaklega þakka ég kven-
fólkinu sem er þekkt fyrir líknar-
störf og störf að málefnum aldr-
aðra og sjúkra. Ég var að koma
frá því að greiða fasteignagjöldin
og útsvarið og ellilaunin mín og
tekjutryggingin dugði akkúrat
fyrir þessu.
Verður ráðinn læknir
að ungbamaeftirliti?
Fjögurra barna móðir hringdi og
vildi hún í framhaldi af greinum
blaðsins um heilsugæslustöð
benda á að enginn barnalæknir er
starfandi við ungbarnaeftirlitið í
bænum. Sagði hún að svo hefði
einu sinni verið og hún hefði oft
spurt hvort læknir yrði ekki ráð-
inn aftur, en aldrei fengið viðun-
andi svar. Sagði hún að allir vildu
fá þá bestu þjónustu sem völ væri
Duran
Duran-
hátíð?
Til æskulýðsráðs.
Hvernig væri að hafa Duran Dur-
an hátíð hér á Akureyri? Það er
búið að hafa svona hátíð bæði í
Safari og Traffic og því finnst
mér allt í lagi að Dynheimar eða
H-100 myndu hafa svona stórhá-
tíð hér á Akureyri. Út af hverju
er ekki hægt að hafa eitthvað
skemmtilegt hér á Akureyri eins
og fyrir sunnan? Ég held bara að
það mundi verða gaman að hafa
svona hátíð og ég er viss um að
aðdáendur Duran Duran myndu
sko mæta.
Er ekki ár æskunnar? Hvernig
væri að hafa eitthvað virkilega
skemmtilegt fyrir unglinga hér á
Akureyri?
Ég myndi verða glöð ef ein-
hver úr æskulýðsráði vildi vera
svo góð(ur) að svara þessu bréfi.
Takk fyrir.
Einn Duran Duran aðdáandi.
á og þar sem hún vissi til þess að
barnalæknir hefði viljað taka að
sér vinnu við ungbarnaeftirlitið
aftur fannst henni skrýtið að því
hefði verið hafnað. Vildi hún ein-
dregið koma þeirri skoðun sinni
á framfæri að barnalæknir yrði
ráðinn að ungbarnaeftirlitinu.
Svar:
Blaðið hafði samband við
Konny Kristjánsdóttur hjúkrun-
arforstjóra á Heilsuverndarstöð-
inni, þar sem ungbarnaeftirlit er
til húsa. Sagði hún að Geir Frið-
geirsson barnalæknir væri á stöð-
inni 1 sinni í viku og sæi hann um
4ra ára skoðunina, 2 heilsugæslu-
læknar sem eru sérfræðingar í
heimilislækningum væru auk þess
starfandi við stöðina tvisvar í
viku.
Um þessar mundir eru við-
ræður í gangi á milli heilsugæslu-
lækna og barnalækna um skipan
þessara mála, er hin nýja Heilsu-
gæslustöð tekur formlega til
starfa. Á þessu stigi er ekki hægt
að segja fyrir um hvernig þeim
umræðum lyktar.
Ungbarnaeftirlit á Akureyri.
Utsalan
heldur áfram
þessa viku í Horninu í Sunnuhlíð.
Nýjar vörur bætast viö.
Stórlækkað verð.
Ath. Útsalan er aðeins í Sunnuhlíð.
Opið laugardaga kl. 10-12.
Stálpottar og -pönnur
gæðavara á góðu verði.
1460 116
verslun Sunnuhlíð sími 26920.
Á AKUREYRI
Almenn námskeið Myndlistaskólans
hefjast 5. febrúar.
Síðustu
innritunardagar
Allar nánari upplýsingar og innritun í síma 24958
alla virka daga kl. 13.00-18.00.
Skólastjóri.
AKUREYRARBÆR
Viðtalstímar
bæjarfulltrúa
Miðvikudaginn 6. febrúar nk. verða bæjarfulltrú-
arnir Sigfríður Þorsteinsdóttir og Gunnar Ragnars
til viðtals í fundarstofu bæjarráðs, Geislaqötu 9,
2. hæð.
Bæjarstjóri.