Dagur - 04.02.1985, Síða 5
4. febrúar 1985 - DAGUR - 5
r Starri í Garði:
Avísun á Syðri
Athugasemd við
ummæli Hákonar
Björnssonar for-
stjóra Kísiliðjunnar
í Degi 28. jan.
síðastliðinn.
í upphafi máls síns leggur Hákon
áherslu á að aðeins fimm ára
námuleyfi jafngildi því að verk-
smiðjan yrði þegar að hætta
störfum, enda bað verksmiðjan
um tuttugu ár. Nú er það svo, að
í tíu ár samfleytt hefir Kísiliðjan
búið við slíkt öryggisleysi af völd-
um náttúruhamfara, þ.e. eldsum-
brota, á þessu svæði, að hún
hefði sjálfsagt prísað sig sæla að
geta samið við þann í neðra um
t.d. fimm ára starfsfrið. Við þetta
öryggisleysi býr hún enn í dag að
dómi jarðfræðinga. Aldrei hefir
þó heyrst frá forstjóranum að
hann teldi að verksmiðjan yrði að
pakka saman af þeim sökum.
Hvað veldur?
Því er auðsvarað. Náttúru-
verndarráð hefir ekki rótað við
námaleyfi Kísiliðjunnar frá 1966.
Nýtt námaleyfi heyrir eins og nú
er komið undir Náttúruverndar-
ráð.
Hákon telur þungt á vogar-
skálum þann atvinnumissi og
annan skaða, sem þetta byggðar-
lag mætti þola við brotthvarf
þessa stærsta atvinnurekanda í
hreppnum. t>að stendur nú lík-
lega ekki upp á þann aðila, sem
með pólitískri ákvörðun setti
þessa verksmiðju hér niður á sín-
um tíma, sem hlaut að valda
snöggum efnahagslegum og fé-
lagslegum breytingum, að bæta
að fullu það tjón sem af hlýst ef
verksmiðja þessi burtkallast
skyndilega. Aðili sá er hér um
ræðir er löggjafarvald og ríkis-
stjórn. En meðal annarra orða:
Hvaða þjónustustörf á vegum
Kísiliðjunnar eru unnin í Reykja-
vík?
Svo að lokum þetta: Það fólk
sem skrifaði undir yfirlýsingu til
iðnaðarráðherra þess efnis að
ekki mætti leyfa námugröft í
Syðri-Flóa, sem er meginhluti
vatnsins, var sér þess vel meðvit-
andi hvað það var að gera. t>au
viðbrögð fólksins komu fram
með svo skjótum hætti vegna
frumhlaups sveitarstjórnar
Skútustaðahrepps, sem sendi
bænarskjal til iðnaðarráðherra
þar sem svo er komist að orði, að
hann veiti leyfið „að minnsta
kosti til 15 ára“.
Athygli vekur að þetta er það
lágmark, sem sveitarstjórn getur
minnst sætt sig við. Það er aug-
ljóst að 15 ár, hvað þá fleiri, er
um leið ávísun á Syðri-Flóa, eins
og skjalfest er að hugur Hákonar
Björnssonar stendur til. Um
ástæður okkar fyrir því að vilja
verja Syðri-Flóa þarf ekki að fara
mörgum orðum. Með því að dæla
setlögum botnsins í Flóanum á
land væri lífríki Mývatns kippt til
baka um tvö þúsund til tvö þús-
und og fimm hundruð ár. Þetta er
bara ósköp einföld og auðskilin
staðreynd, sem tæpast þarf að
sannreyna með rannsóknum,
fremur en þau gömlu sannindi að
tvisvar tveir eru fjórir.
31. jan. 1985.
Starri í Garði.
Myndir
Sölva
Helgasonar
16 gerðir.
Verð kr. 175,- pr. stk.
í smelluramma 13x18.
A-B búðin
Kaupangi, sími 25020.
......... i
Keramikstofan
auglýsir
Munið opnunartímann alla daga milli kl. 4 og 6.
Alltaf eitthvað nýtt að koma bæði í mótum, módelleir
og litum.
Keramiknámskeiðin eru byrjuð. Þeir sem áhuga
hafa á næsta námskeiði hafí samband í síma
24795.
Keramikstofan
Steinahlíð 7b. Gengið inn frá Sunnuhlíð.
Eins vil ég spyrja: Fyrst rann-
sóknum varðandi áhrif kísilgúr-
náms á lífríki Mývatns hefir verið
stórlega áfátt, er þá að undra þó
því fólki sem tekur lífríki vatns-
ins fram yfir efnaverksmiðju sé
nokkuð í mun, að ekki sé enn
anað áfram blindandi og lífríkinu
þá ef til vill unnið enn meira tjón,
en þegar kann að vera orðin stað-
reynd? Lífríki Mývatns hefir
hrunið tvisvar á tæpum áratug,
svo sem berlega kom í ljós á fugli
og silungi, og er enn ekki séð fyr-
ir endann á hinu síðara áfalli, er
nú stendur yfir. Það veldur hér
mörgum heilabrotum hvort af
mannavöldum sé. Tveir aðilar
hafa undangengna áratugi haft
það fyrir iðju að hræra í lífríki
vatnsins: Laxárvirkjun og Kísil-
iðjan. Er að undra þótt athygli
þess fólks sem vill vernda lífríki
Mývatns beinist að þessum stað-
reyndum? Það er einmitt þetta
fólk, sem forstjórinn sendir mið-
ur vinsamlegar kveðjur og
ósæmilegar aðdróttanir.
Treystir Hákon Björnsson sér
til að nafngreina í þessu blaði,
Degi, það fólk, sem hann kveður
„iða í skinninu eftir að koma á
ófriði", og þá af hvaða ástæðum
og þá við hvern eða hverja?
Einnig hvaða ástæðu hann hef-
ir til að bregða hér fólki um það
dómgreindarleysi, að það geri sér
enga grein fyrir því undir hvað
það er að skrifa? Vill hann
kannski gera nánari grein fyrir
því hvaða fólk það er, sem hann
ber slíkum sökum? Það væri við-
kunnanlegra að hann gerði hreint
fyrir sínum dyrum í þessu efni,
áður en hann gerist sjálfskipaður
friðarengill í þessu byggðarlagi.
Hákon veltir fyrir sér hinni
lagalegu stöðu í málinu, og setur
spurningarmerki við hvort lögin
um Kísiliðjuna eða lögin um
verndun Laxár og Mývatns séu
rétthærri, lögin um Kísiliðjuna
séu jú eldri.
Leggjum ekki af staö i feröalag í
lélegum bíl eða illa útbúnum.
Nýsmurður bíll meðhreinniolíuog
yfirfarinn t.d. á smurstöð er lík-
legur til þess aö komast heill á
leiðarenda.
ilæ
FERÐAR
ÞETTA ER EKKI BARA DRAUMUR..
Við kynnum
gorenie
SKANDINAVIEN *
gæða-ísskápa
með Danfoss kælikerfi
Árum saman hefur
Akurvík hf. einbeitt sér að því
að bjóða viðskiptavinum sínum
vandaðar og góðar vörur.
Gorenje ísskáparnir eru hannaðir
með ströngustu gæðakröfur
Norðurlandabúa í huga.
Sami gæðaflokkur og ísskápar
í mun hærri verðflokki.
Verð frá kr. 9.975,- stgr.
Þetta er ekki bara draumur -
Þetta er blákaldur veruleikinn.
Góðir afborgunarskilmálar.
Látið ekki happ úr hendi sleppa.
Glerárgötu 20 • Sími 22233 Akureyri.