Dagur - 04.02.1985, Blaðsíða 7
4. febrúar 1985 - DAGUR - 7
Eveiton gefur
ekki neitt eftir
k hér og skorar eitt af þrem mörkum sínum. Mynd: KGA
>pennandi
kakafli
Þór vann Ármann 22:21
loka, úrslitin 22:21 fyrir Þór.
Menn dagsins hjá Þór voru
þeir Kristján Kristjánsson sem er
betur þekktur sem knattspyrnu-
maður, og Aðalbjörn Svanlaugs-
son, en þessir tveir leikmenn
skoruðu 8 síðustu mörk leiksins.
Eftir að staðan var 4:4 komst
Þór yfir og leiddi í hálfleik 11:10.
í upphafi síðari hálfleiks var jafnt
ileikir
unni
Um næstu helgi eiga Þór og
UMFL að leika tvo leiki í 1.
deildinni í körfuknattleik og
fara leikirnir fram á Akureyri.
Sá fyrri verður á föstudags-
kvöld og hefst kl. 20 í íþrótta-
höllinni. Daginn eftir færa leik-
menn sig svo um set og leika í
Skemmunni kl. 15.30.
Telja verður að Þór eigi að
sigra létt í báðum þessum
leikjum. UMFL hefur ekki hlotið
stig það sem af er mótinu og liðið
ekki verið nærri því að vinna
sigur. Þórsliðið er hins vegar um
miðja deild með um 50% árangur
í leikjum sínum.
Björn Sveinsson skorar fyrir Þór,
tekst Þór að krækja í 4 stig um
helgina?
12:12, 13:13 og 14:14, en síðan
komst Ármann yfir og mestur var
munurinn er staðan var 19:16.
Þór jafnaði 20:20, Ármann
komst yfir er 2.40 mín. voru eftir
21:20 en Kristján jafnaði úr víti
er 55 sek. voru eftir.
Næsta sókn Ármanns rann út í
sandinn og er 20 sek. voru eftir
fengu Þórsarar boltann. Þeir
brunuðu upp og er 13 sek. voru
eftir af leiktímanum stakk Krist-
ján Kristjánsson sér inn af lín-
unni og skoraði sigurmark Þórs.
Þeir Kristján og Aðalbjörn
voru bestu menn Þórs, en þrátt
fyrir sigurinn var liðið slakt.
Þórsarar eru nú í neðsta sæti
deildarinnar en ekki langt á eftir
næstu liðum og möguleikinn á að
halda sætinu er enn fyrir hendi
þótt sennilega verði það erfitt. -
Ármannsliðið, sem eitt liða hefur
unnið KA í 2. deildinni í vetur
var óhemju slakt og er furðulegt
að þetta lið skuli hafa verið að
reyta stig af toppliðunum í vetur.
Þórsliðið á nú eftir að leika
gegn Haukum og Fylki á útivelli
og má telja víst að róðurinn verði
erfiður, en sennilega verður liðið
að sigra í báðum þessum leikjum
til að halda sæti sínu og sleppa
frá falli í 3. deild að nýju.
Mörk Þórs:
Aðalbjörn Svanlaugsson 5,
Kristján Kristjánsson 5, Sigurður
Pálsson 5, Guðjón Magnússon 2,
Árni Stefánsson 2, Rúnar Stein-
grímsson 2, Gunnar M. Gunnars-
son 1.
Markahæstir Ármenninga voru
Ingólfur Steingrímsson og Hauk-
ur Haraldsson með 5 mörk hvor.
- Vegna plássleysis förum
viö fremur hratt yfir sögu í
ensku knattspyrnunni í dag.
Loksins tókst aö spila heila
umferð í 1. deild en það er
orðið nokkuð langt síðan
það hefur verið hægt vegna
vetrarveðurs á Englandi.
Toppliðið Everton lætur engan
bilbug á sér finna og nú voru það
leikmenn Watford sem máttu
þola það hlutskipti að tapa fyrir
Everton. Aldrei var spurning um
hvort liðið var betra en þó tókst
Everton ekki að skora fyrr en í
síðari hálfleik. Þá opnuðust líka
allar flóðgáttir og mörkin urðu
fjögur talsins. Þeim fjölgar nú sí-
fellt sem spá því að Everton muni
halda efsta sætinu út keppnis-
tímabilið.
Sjónvarpsáhorfendur sáu
Tottenham ná í jafntefli gegn
Luton og er óhætt að segja að þar
hafi leikmenn Tottenham sloppið
fyrir horn. Manchester United og
Ársenal unnu bæði sína leiki á
heimavelli en Liverpool sem hef-
ur klifrað hratt upp stigatöfluna
að undanförnu náði f stig gegn
Sheffield Wednesday en liðið
jafnaði 1:1 er 4 mín. voru til leiks-
loka.
Úrslit leikja í 1. deild á laugar-
daginn urðu sem hér segir:
Arsenal - Coventry 2:1
A.Villa - Ipswich 2:1 1
Everton - Watford 4:0 1
Leicester - Chelsea 1:1 x
Luton - Tottenham 2:2 x
Man.Utd. - WBA 2:0 1
Norwich - N.Forest 0:1 2
QPR - Southampton 0:4 2
Sheff.Wed. - Liverpool 1:1 x
Sunderland - Stoke 1:0
W.Ham - Newcastle 1:1 x
2. deild:
Charlisle - Oxford 0:1 2
C.Palace - Man.City 1:2 2
Huddersf. - Birmingham 0:1 2
Staðan í 1. deild er sem hér segir:
Everton 25 16 4 5 57:29 52
Tottenham 25 14 6 5 51:27 48
Man.Utd. 25 13 5 7 48:30 44
Arsenal 25 13 4 8 46:32 43
Sheff.Wed. 25 11 9 5 40:25 42
Southampton 25 11 7 7 33:28 40
Liverpool 25 10 9 6 34:23 39
N.Forest 25 12 3 10 37:34 39
Chelsea 25 9 10 6 41:30 37
Norwich 25 10 6 9 31:36 36
WBA 25 10 4 11 37:38 34
A.Villa 25 9 7 9 36:39 34
West Ham 24 8 8 8 31:35 32
QPR 25 7 9 9 32:43 30
Leicester 25 8 6 11 43:46 30
Watford 24 7 8 9 45:46 29
Newcastle 25 7 8 10 38:50 29
Sunderland 24 8 5 11 30:35 29
Coventry 26 l 4 15 27:47 25
Árni með
Árni Stefánsson sem séð hefur
um þjálfun meistaraflokks
Tindastóls í knattspyrnu
undanfarin sumur mun verða
áfram með liðið í sumar.
Frá þessu var gengið á dögun-
um og það verður hlutverk Arna
Ipswich 24 5 7 12 22:35 22
Luton 24 5 7 12 29:45 22
Stoke 25 2 6 17 17:53 12
Stórt tap
hjá Þór
Tilvonandi (?) íslandsmeistarar
Fram í handknattleik kvenna
áttu fremur auðveldan dag er
liðið mætti Þór í Höllinni á
föstudagskvöldið.
Úrslitin 35:18 fyrir Fram, eftir
18:7 í hálfleik og þessar tölur
segja allt sem segja þarf. Guð-
ríður Guðjónsdóttir skoraði 15
mörk fyrir Fram, en fyrir Þór
skoruðu Þórunn Sigurðardóttir 5,
Inga Huld Pálsdóttir 4, Þórdís
Sigurðardóttir 4, Hanna Rúna
Jóhannsdóttir 3 og Sigurlaug
Jónsdóttir 2.
Tindastól
að leiða lið Tindastóls til sigurs í
3. deild en liðið féll úr 2. deild í
fyrra.
Það getur orðið erfiður róður
hjá liðinu sem hefur misst nokkra
snjalla leikmenn úr sínum röðum
frá því á sl. keppnistímabili.
Einn besti maður Þórsliðsins, Kristján Kristjánsson skorar af öryggi. Mynd: KGA