Dagur - 04.02.1985, Síða 11
4. febrúar 1985 - DAGUR - 11
Um
hreinsibúnað
álvera
í grein minni í Degi 14. janúar
sl. sagöi ég frá því að einn
yfirmanna umhverfismála
ALCAN, Margaret Kerr, hefði
tjáð, að til stæði að setja 2. og 3.
stigs hreinsun við álver AL-
CAN í Grand Baie. Nú hef ég
fengið nýjar upplýsingar frá
ALCAN sem segja að hér hafi
verið um misskilning hjá
Margaret Kerr að ræða. Það
standi sem sagt ekki til að setja
upp þennan búnað. Þessari leið-
réttingu vil ég koma til lesenda.
í gögnum þeim er mér voru
að berast kemur einnig fram að
ALCAN telur 1. stigs hreinsun
og yfirráð yfir ákveðnu landi
umhverfis álver, hagkvæmustu
lausnina á mengunarvandanum.
Þetta sé sú lausn sem flestir ál-
framleiðendur stefni að í dag.
Þeir eru einnig sammála um að
hreinsun á kerskálalofti (3. stig)
dragi lítið til viðbótar úr
flúornum sem til umhverfisins
fer og búnaður sem til þess þarf
kostar mjög mikið í uppsetn-
ingu og rekstri.
Akureyri, 30. janúar 1985.
Þóroddur F. Þóroddsson.
„Þorparar"
vilja útibú
frá Amts-
bókasafninu
Foreldrafélag Glerárskóla hélt
aðalfund sinn þann 24. janúar
sl. Á fundinn kom Tryggvi
Gíslason formaður bókasafns-
nefndar og kynnti tillögur
nefndarinnar um útibú frá
Amtsbókasafninu í Glerár-
hverfi. í lok umræðna var
eftirfarandi ályktun samþykkt
með atkvæðum allra fundar-
manna.
„Aðalfundur Foreldrafélags
Glerárskóla haldinn 24. janúar
1985 fagnar tillögum bókasafns-
nefndar um að sett verði á lagg-
irnar útibú frá Amtsbókasafninu
á Akureyri í Glerárhverfi. Bent
er á athugun sem gerð hefur ver-
ið á því hverjir sækja Amtsbóka-
safnið, en þar kemur fram að
hlutur íbúa Glerárhverfis er
minni en annarra íbúa Akureyr-
ar.
í Glerárhverfi eru nú um 4 600
íbúar og börn þar af mjög stór
hópur, sem á erfitt með að sækja
Amtsbókasafnið heim vegna fjar-
lægðar frá safninu.
Fundurinn skorar því á bæjar-
stjórn Akureyrar að beita sér fyr-
ir því að útibú frá Amtsbókasafn-
inu verði sett upp í Glerárhverfi
hið allra fyrsta."
Deka - Batik
fatalitir.
Yfir 30 litir.
Einnig litafestir.
ísl. leiðarvísir.
Verð kr. 40,- bréfið.
A-B búðin,
Kaupangi, sími 25020.
Opið laugardaga 10-12.
.................... 4
Ríkisútvarpið á Akgreyri
vill lausráða strax
tvo dagskrár-
gerðarmenn
til reynslu í þrjá mánuði.
Umsóknir sendist Ríkisútvarpinu Akureyri, Fjöln-
isgötu 3a fyrir 10. febrúar.
Ríkisútvarpið á Akureyri.
Viljum ráða
nokkrar ábyggilegar konur til starfa nú þegar.
Geta byrjað strax.
Upplýsingar á staðnum.
Niðursuðuverksmiðja K. Jónssonar og Co.
Offsetskeytingamaður
óskast til starfa í vor.
Ennfremur starfsmaður við
tölvuinnskrift
hálfan daginn nú þegar.
Uppiýsingar gefa Jóhann Karl Sigurðsson og
Guðjón H. Sigurðsson.
Sími 24222
Hestamenn! if
Látum ekki aka á okkur /
í skammdeginu - notum
ENDURSKINSMERKI
HESTAMANNAFÉLAGIÐ LÉTTIR
Slotnað 5 nóv 1928 P O Box 348 • 602 AHureyri
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 2., 5. og 8. tbl. Lögbirtingablaðsins 1984 á
fasteigninni Skarðshlíð 40e, Akureyri, talinni eign Mikaels
Ragnarssonar, fer fram eftir kröfu bæjargjaldkerans á Akur-
eyri og Jóhannesar Ásgeirssonar hdl. á eigninni sjálfri föstu-
daginn 8. febrúar 1985 kl. 16.30.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 81., 83. og 87. tbl. Lögbirtingablaðsins 1981
á fasteigninni Ásabyggð 4, Akureyri, þingl. eign Árna Vals
Viggóssonar, fer fram eftir kröfu Tryggingastofnunar ríkisins,
Gunnars Sólnes hrl. og veðdeildar Landsbanka Islands á
eigninni sjálfri föstudaginn 8. febrúar 1985 kl. 16.00.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var [ 41., 45. og 48. tbl. Lögbirtingablaðsins 1984
á fasteigninni Borgarsíðu 19, Akureyri, talinni eign Trygga
Harðarsonar, fer fram eftir kröfu Árna Halldórssonar hrl. og
innheimtumanns ríkissjóðs á eigninni sjálfri föstudaginn 8.
febrúar 1985 kl. 16.15.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Skarðshlíð 30e, Akureyri, þingl. eign Stef-
áns Sigurðssonar, fer fram eftir kröfu Steingríms Eiríkssonar
hdl. og Ólafs B. Árnasonar hdl. á eigninni sjálfri föstudaginn 8.
febrúar 1985 kl. 14.30.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Skarðshlíð 12d, Akureyri, þingl. eign Einis
Þorleifssonar, fer fram eftir kröfu Gunnars Sólnes hrl., Stein-
gríms Eiríkssonar hdl., Ólafs B. Árnasonar hdl. og veðdeildar
Landsbanka íslands á eigninni sjálfri föstudaginn 8. febrúar
1985 kl. 14.15.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Sunnuhlíð 2, Akureyri, þingl. eign Fjölnis
Sigurjónssonar, ter fram eftir kröfu veðdeildar Landsbanka
íslands, Gunnars Sólnes hrl. og Iðnaðarbanka íslands hf. á
eigninni sjálfri föstudaginn 8. febrúar 1985 kl. 13.45.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Framsóknarfélag Akureyrar
heldur bæjarmálafund mánudaginn 4. febrúar kl.
20.30 í Strandgötu 31. Fulltrúar í nefndum eru
sérstaklega hvattir til að mæta.
Stjórnin.
FRAMSÓKNARFÉLAG
AKUREYRAR
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 6., 11. og 14. tbl. Lögbirtingablaðsins 1982
á fasteigninni Grænumýri 20, Akureyri, þingl. eign Yngva
Loftssonar, fer fram eftir kröfu innheimtumanns ríkissjóðs,
Gunnars Sólnes hrl., Hreins Pálssonar hdl., Hákonar Árnason-
ar hdl., Ólafs Gústafssonar hdl., Guðmundar Óla Guðmunds-
sonar hdl., Ásgeirs Thoroddsen hdl og bæjarsjóðs Akureyrar
á eigninni sjálfri föstudaginn 8. febrúar 1985 kl. 15.00.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Seljahlíð 7g, Akureyri, þingl. eign Jakobs
Tryggvasonar, fer fram eftir kröfu veðdeildar Landsbanka ís-
lands og Gunnars Sólnes hrl. á eigninni sjálfri föstudaginn 8.
febrúar 1985 kl. 14.00.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Sunnuhlíð 12, F-hluta, Akureyri, þingl.
eign Dúkaverksmiðjunnar hf., fer fram eftir kröfu Útvegsbanka
islands, Ólafs Gústafssonar hdl., innheimtumanns ríkissjóðs,
Guðjóns Steingrímssonar hrl. og Ásgeirs Thoroddsen hdl. á
eigninni sjálfri föstudaginn 8. febrúar 1985 kl. 17.00.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
f STAÐARNEM!
Öll hjól eiga að stöðvast
algerlega áðuren
að stöðvunarlínu
er komið.
yUMFEnOAR
RAO