Dagur - 16.08.1985, Page 6
6 - DAGUR - 16. ágúst 1985
'M
Fréttaskýring
Mynd og texti: Yngvi Kjartansson
Ólafsfjörður hefur ver-
ið mikið í fréttum
undanfarna daga
vegna óvenju slæmrar
stöðu atvinnumála þar
í bœ. Þar er því sem
nœst öll fiskvinnsla í
lamasessi vegna hrá-
efnisskorts og heldur
litlar líkur taldar á að
úr því rætist nokkuð að
ráði á þessu ári, nema
eftil þess kæmi að sjáv-
arútvegsráðuneytið yki
við kvóta.
V
gíifc :
Að undanförnu hefur Ólafur bekkur verið í klössun en er nú að fara til karfaveiða fyrir Hval-
eyri hf. í Hafnarfirði.
Verða yfir 100 Ólafsfirðingar
atvimulausir til áramóta?
- Svo getur farið ef ekki berst meiri fiskur á land til vinnslu í Ólafsfirði
Ólafsfjörður hefur verið mikið
í fréttum undanfarna daga
vegna óvenju slæmrar stöðu
atvinnumála þar í bæ. Þar er
því sem næst öll fiskvinnsla í
lamasessi vegna hráefnisskorts
og heldur litlar líkur taldar á
að úr því rætist nokkuð að ráði
á þessu ári, nema ef til þess
kæmi að sjávarútvegsráðu-
neytið yki við kvóta.
150 atvinnulausir
Ágúst Sigurlaugsson formaður
Ólafsfjarðardeildar Einingar og
starfsmaður Vinnumiðlunarskrif-
stofunnar í Ólafsfirði segir að um
150 manns séu nú komnir á at-
vinnuleysisskrá í Ólafsfirði. Það
sem af er árinu hafa 3,2 milljónir
króna verið greiddar í atvinnu-
leysisbætur í Ólafsfirði og senni-
lega er ekki nema hálfur mánuð-
ur í það að þær greiðslur verði
komnar í sömu upphæð og allt
árið í fyrra.
Kvótinn
því sem nœst búinn
Ástæðan fyrir þessu ástandi er
sú að fiskvinnsluhúsin fá ekki
hráefni þar sem fiskveiðikvótar
skipanna á staðnum eru sama
sem uppurnir. Þá er að vísu
undanskilin Sigurbjörgin sem
verkar sinn afla um borð og á
nægan kvóta eftir. Þessi staða er
þeim mun alvarlegri fyrir þá sök
að svo til allt atvinnulíf í Ólafs-
firði snýst um fiskveiðar og
-vinnslu.
Miklu hagkvæmara að
sigla með skrapfiskinn
í fyrra kom upp svipuð staða á
haustmánuðum, kvótinn búinn
og vinnan þar með, en þá tókst
að fá keyptan viðbótarkvóta
þannig að það tókst að laga
stöðuna nokkuð. Nú er hins veg-
ar mun erfiðara að fá keyptan
kvóta og einu möguleikar sem út-
gerðarmenn í Ólafsfirði hafa á að
kaupa kvóta eru háðir þeim skil-
yrðum að fiskinum, a.m.k.
þorskinum, verði landað hjá
þeim sem selja kvótann. Þannig
hefur verið samið um að Sólberg-
ið veiði fyrir Siglfirðinga með
þeim skilyrðum sem áður eru
nefnd, að þorskinum verði land-
að á Siglufirði, en sjálfir fá þeir
að ráða hvað þeir gera við skrap-
fiskinn. Þegar á það er litið að
þeir hafa nógan tíma til að sigla
og mun betra verð fæst fyrir
skrapfiskinn á fiskmörkuðum er-
lendis, er það bæði hagur útgerð-
ar og áhafnar að sigla með
aflann. Það verður og sennilega
gert og því koma þessar viðbótar-
veiðar fiskvinnslunni í Ólafsfirði
að engu gagni. Sjómenn halda
hins vegar vinnunni lengur en
ella og er það nokkur bót í máli.
Einhverjir geta fengið
vinnu á Siglufirði
Forráðamenn Þormóðs ramma á
Siglufirði hafa boðist til að taka
fólk frá Ólafsfirði í vinnu og geta
boðið húsnæði fyrir 12 manns til
að byrja með. Þeir eiga Hótel
Hvanneyri á Siglufirði og hafa að
undanförnu verið að innrétta það
fyrir aðkomufólk. Fólkið yrði svo
líklega keyrt á milli um helgar.
Þetta ætti að geta verið nokkuð
vænlegur kostur fyrir þá sem eiga
heimangengt en mikið af þeim
sem nú eru atvinnulausir eru
konur sem ekki geta farið frá
heimilum sínum, þannig að þetta
er aðeins bráðabirgðalausn á
hluta vandans.
8 til 12 menn getafengið
vinnu við loðnubrœðslu
Síðastliðinn vetur var tekinn í
notkun fiskimjölsverksmiðja í
Ólafsfirði en hún náði ekki nema
rétt f skottið á loðnuvertíðinni
þá. Nú er hins vegar gert ráð fyrir
því að hún taki til starfa um leið
og loðna berst að landi og þá ættu
einhverjir af þeim sem nú eru at-
vinnulausir að geta fengið vinnu.
Reiknað er með því að ef verk-
smiðjan er keyrð á fullum af-
köstum geti hún veitt 8-12 manns
vinnu beint við vinnsluna en auð-
vitað fylgir því svo eitthvað af
óbeinni vinnu, s.s. þjónustu við
báta o.s.frv. Það verða hins vegar
líklega eingöngu karlmenn sem
fá þessa vinnu en u.þ.b. 80% at-
vinnulausra eru konur, að vísu
margar sem hafa aðeins unnið
hlutastörf.
Ólafsfirðingar eiga tvo loðnu-j
báta sem eru búnir með þorsk-
veiðikvóta sína og einnig eru tveir i
minni bátar einnig búnir með
sína kvóta og eru á rækjuveiðum.
Engin rækjuvinnsla er í Ólafsfirði
þannig að rækjan er öll keyrð inn
til Akureyrar til vinnslu.
Trilluútgerð hefur aukist
í Ólafsfirði
Trilluútgerð er þó nokkur í
Ólafsfirði og eru trillusjómenn
þar, ekki síður en annars staðar,
mjög óhressir með að fá ekki að
veiða um helgar. Gæftir hafa ver-
ið lélegar í sumar en veiði góð
þegar gefur. í flestum tilfellum
verka þeir fiskinn sjálfir og kem-
ur því útgerð þeirra fiskvinnslu-
húsunum ekki til góða. Hins veg-
ar hefur nokkur hópur fólks at-
vinnu af þessari útgerð.
Togararnir fá viðbótar-
kvóta gegn því
að landa annars staðar
Ef á það er litið hvað togararnir
eiga mikið eftir af kvóta kemur f
ljós að bæði Ólafur bekkur og
Sólbergið eiga ekki eftir nema
sem svarar til einum eða tveim
túrum hvort skip og óvíst hve
miklu af því verður landað
heima. Sigurbjörgin á eftir um
1.000 tonna kvóta sem hún verð-
ur að ná ef á að vera hægt að
standa við skuldbindingar vegna
breytinganna á skipinu í frysti-
skip. Ef Sigurbjörgin nær ekki að
fylla þennan kvóta á árinu fá hin
skipin að veiða það sem á vantar
en frekar ólíklegt er talið að til
þess komi. Eins og áður segir
hefur Sólbergið fengið viðbótar-
kvóta gegn því að landa fiskinum
annars staðar og sama gildir um
Ólaf bekk sem mun fiska eitt-
hvað fyrir Hvaleyri í Hafnarfirði.
Erfitt að fá
keyptan kvóta
Það er aðallega tvennt sem veld-
ur því að erfiðara er að fá keypt-
an kvóta nú en í fyrra. í fyrsta
lagi völdu margir sóknarmark í
stað aflamarks og er markaður-
inn þrengri fyrir vikið. í öðru lagi
hefur veiðin verið mun betri það
sem af er þessu ári en á sama
tíma í fyrra og því hafa menn
mun minni kvóta að selja. Engu
að síður hefur verið verslað
nokkuð með kvóta það sem af er
árinu en verð fyrir óveiddan fisk
er mun hærra nú en í fyrra. Þeir
sem keyptu kvóta strax í vor gátu
fengið hann á svipuðu verði og í
fyrra eða á u.þ.b. 2,50 krónur á
hvert kg en nú er talað um að
verðið sé komið upp í 3,50 til 5
krónur fyrir hvert kg af þorski.
Þorsteinn Ásgeirsson fram-
kvæmdastjóri Útgerðarfélags Ól-
afsfjarðar og Hraðfrystihúss Ól-
afsfjarðar segir að það sé hrein
geðveiki að ætla að fara að kaupa
kvóta á 5 krónur fyrir kg, þá sé
betra að loka vegna þess að út-
gerðin geti aldrei staðið undir svo
miklum viðbótarkostnaði. Þor-
steinn kvaðst telja það vera einu
raunhæfu lausnina að auka kvót-
ann heilt yfir, „ég vil meina að
fiskgengdin gefi alveg tilefni til
þess,“ sagði hann. Þorsteinn seg-
ir að ef farið hefði verið út í það
að stýra veiðunum úr landi eins
og sums staðar er gert og reynt
með því að treina kvótann fram
eftir árinu, þá hefði það aðeins
orðið til þess að atvinnuleysið
hefði komið öðruvísi út. Aldrei
hefði borist meira á land en svo
að vel hafðist undan að vinna úr
aflanum og það hefði því aðeins
verið kostnaðarauki fyrir útgerð-
lina að dreifa veiðunum á lengri
tíma.
Bæjarráð biður umfund
með alþingismönnum
Bæjarráð Ólafsfjarðar hélt fund
síðastliðinn miðvikudag með út-
gerðaraðilum á staðnum og
starfsmanni vinnumiðlunarskrif-
stofunnar til að ræða stöðu at-
vinnumála á staðnum. Þar var
samþykkt að leita eftir því að al-
þingismenn kjördæmisins kæmu
á fund til Ólafsfjarðar til þess að
kynna sér ástandið og einnig að
leita eftir því hvort sjávarútvegs-
ráðherra hyggðist grípa til eiri-
hverra aðgerða til að leýsa vanda
þeirra sjávarplássa sem standa
frammi fyrir hráefnisskorti í fisk-
vinnslu.
Verður ástandið
enn verra næsta ár?
Hér að framan hefur aðeins verið
fjallað um ástandið eins og það er
og eins og horfur eru á að það
verði til áramóta. Ef litið er til
lengri tíma eða fram á næsta ár er
ekki annað að sjá en að sami
vandi komi upp þá og jafnvel er
hugsanlegt að ástandið eigi enn
eftir að versna. Ólafur bekkur er
einn þeirra japönsku togara sem
rætt hefur verið um að fari í
gagngerar breytingar á næsta ári
og ef af því verður mun hann
verða frá veiðum í a.m.k. 4 mán-
uði. Sigurbjörgin mun halda
áfram að vinna sinn afla um borð
og útgerðarmenn Sólbergsins eru
að þreifa fyrir sér með að láta
smíða fyrir sig 1.500-1.600 tonna
verksmiðjuskip. Að vísu gengur
eitthvað erfiðlega að koma þess-
ari hugmynd í gegnum kerfið en
ef af þessu verður þá verður Sól-
bergið selt úr landi.
Nýjar atvinnugreinar
Líkiega mun eitthvað af nýjum
störfum skapast í Ólafsfirði á
næsta ári. T.d. má nefna að Sæ-
ver hf. sem stofnað var með það
fyrir augum að framleiða kavíar
tekur líklega til starfa á næsta ári
og verið er að athuga hvort ekki
sé grundvöllur fyrir því að fyrir-
tækið fari einnig út í rækju-
vinnslu. Einnig eru í fæðingu
fleiri fyrirtæki sem ættu að geta
veitt einhverju af fólki vinnu en
það vegur þó ekki upp það at-
vinnuleysi sem nú er til staðar í
Ólafsfirði, það þarf meira að
koma til. Á það skal bent að í
Ólafsfirði er mikið fjármagn
bundið í fiskvinnslunni og virðist
því í fljótu bragði liggja beinast
við að útvega meiri fisk á land,
t.d. með því að kaupa skip, til
þess að þetta fjármagn nýtist að
fullu. Þar með væri atvinnumál-
um staðarins líka borgið.